Ferill 374. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 685 — 374. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um kostnað vegna samræmdrar móttöku flóttafólks.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur heildarkostnaður verið á ári hverju vegna samræmdrar móttöku flóttafólks frá því að samningar þess efnis voru undirritaðir við sveitarfélög árið 2022?
Í töflunni að neðan má sjá kostnað vegna samræmdrar móttöku flóttafólks árin 2022–2024 eftir að farið var að gera samninga um þjónustu við samræmda móttöku við sveitarfélög árið 2022 og Vinnumálastofnun fór að greiða út útgjöld vegna þjónustunnar:
| Ár | Upphæð |
| 2022 | 453.805.186 kr. |
| 2023 | 1.006.674.059 kr. |
| 2024 | 1.140.163.316 kr. |