Ferill 405. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 686 — 405. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Á. Andersen um erlenda ríkisborgara á vinnumarkaði.
1. Hvert var hlutfall þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd hér á landi af heildarfjölda starfandi á vinnumarkaði á ári hverju árin 2022–2025?
Í töflu 1 má sjá hlutfall þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd hér á landi af heildarfjölda starfandi á vinnumarkaði á ári hverju árin 2022–2024. Upplýsingar vegna ársins 2025 liggja ekki fyrir.
Tafla 1.
| 2022 | 2023 | 2024 |
| 1,6% | 0,9% | 0,6% |
| Heimild: Hagstofa Íslands, Útlendingastofnun. | ||
2. Hversu margir erlendir ríkisborgarar, einnig þeir sem hafa íslenskan ríkisborgararétt auk hins erlenda, voru atvinnulausir á ári hverju árin 2022–2025?
3. Hvert var hlutfall sama hóps af heildarfjölda atvinnulausra á ári hverju árin 2022– 2025?
Í töflu 2 má sjá heildarfjölda erlendra ríkisborgara sem skráðir voru án atvinnu hjá Vinnumálastofnun á árunum 2022–2024 og það sem af er ári 2025 sem og hlutfall þeirra af heildarfjölda skráðra atvinnuleitenda á sama tímabili. Upplýsingar um fjölda íslenskra ríkisborgara sem eru með tvöfalt ríkisfang og eru skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun liggja ekki fyrir.
Tafla 2.
| Ár | Fjöldi alls | Fjöldi erlent ríkisfang | Hlutfall af heild |
| 2022 | 19.355 | 8.143 | 42% |
| 2023 | 17.039 | 8.144 | 48% |
| 2024 | 19.240 | 10.181 | 53% |
| 2025 | 12.904 | 7.338 | 57% |
| Heimild: Vinnumálastofnun. | |||
4. Frá hvaða ríkjum komu fimm fjölmennustu hópar erlendra ríkisborgara sem skráðir voru atvinnulausir á ári hverju árin 2022–2025?
Í töflu 3 má sjá ríkisföng fimm fjölmennustu hópa erlendra ríkisborgara sem skráðir voru án atvinnu hjá Vinnumálastofnun á ári hverju árin 2022–2025.
Tafla 3.
| 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Ríkisfang | Ríkisfang | Ríkisfang | Ríkisfang |
| Pólland | Pólland | Pólland | Pólland |
| Litháen | Litháen | Litháen | Litháen |
| Rúmenía | Rúmenía | Rúmenía | Úkraína |
| Lettland | Lettland | Úkraína | Rúmenía |
| Spánn | Spánn | Lettland | Lettland |
| Heimild: Vinnumálastofnun. | |||