Ferill 202. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 687 — 202. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og stofnana sem heyra undir það verið frá árinu 2018 við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, þ.e. upplýsingakerfa, gagnagrunna, staðlaðs skrifstofuhugbúnaðar og annarra stafrænna innviða sem nýtast í almennum rekstri ríkisaðila? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti, stofnunum og árum.
Í svarinu er miðað við tímabilið frá stofnun ráðuneytisins, eða 1. febrúar 2022, á það líka við hjá stofnunum. Þá er hér aðeins greint frá kostnaði vegna upplýsingatæknilausna sem sérstaklega hafa verið gerðar, aðlagaðar eða þróaðar fyrir ríkisaðila, en ekki kaupa á tilbúnum lausnum, notendaleyfum að þeim eða almennum uppfærslum.
| 2022* | 2023 | 2024 | 2025 | Athugasemdir | |
| Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið | 7.987.564 | 6.584.460 | 11.411.714 | 3.408.383 | |
| Hugverkastofan | 10.140.652 | 25.650.638 | 24.954.803 | 4.974.870 | |
| Listasafn Íslands | 11.406.790 | 1.000.000 | 1.000.000 | ||
| Náttúruminjasafn Íslands | 500.000 | 600.000 | 600.000 | Áætlaður kostnaður vegna vinnu sérfræðings við aðlögun á notendaviðmóti Sarps | |
| Þjóðminjasafn Íslands | - | - | - | - | |
| Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn | 4.283.000 | 4.581.000 | 6.072.000 | 2.663.000 | |
| Þjóðskjalasafn Íslands | 4.382.997 | 11.309.051 | 10.025.475 | 2.633.637 | |
| Listasafn Einars Jónssonar | - | - | - | ||
| Gljúfrasteinn - Hús skáldsins | - | - | - | ||
| Kvikmyndasafn Íslands | 16.183.397 | 25.357.474 | Kostnaður við þróun gagnagrunns var mun meiri, en var samstarfsverkefni við fyrirtækið Prógramm sem tók á sig um 60% kostnaðar í nafni nýsköpunar | ||
| Hljóðbókasafn Íslands | 6.000.000 | 204.200 | |||
| Þjóðleikhúsið | - | - | - | - | |
| Sinfóníuhljómsveit Íslands | - | - | - | - | |
| Íslenski dansflokkurinn | - | - | - | - | |
| Kvikmyndamiðstöð Íslands | 12.676.807 | 21.416.708 | 20.922.472 | 605.721 | |
| Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum | 10.600.000 | 10.600.000 | 11.120.000 | Stafræn þróun stöðugilda | |
| Miðstöð íslenskra bókmennta | - | - | - | ||
| Fjölmiðlanefnd | - | - | - | - | |
| Háskóli Íslands | 409.532.000 | 410.031.000 | 385.720.000 | Kostnaður nær bæði til þróunar og smíði Uglu sem og almenns kerfisreksturs (viðhald, rekstur og þjónusta). Almennt metur UT skiptingu milli nýsmíða og reksturs vera 60% nýsmíði og 40% rekstur. Kostnaður við þróun vefs HÍ og stofnana HÍ er ekki tekin með í þetta svar. | |
| Tilraunastöð Háskólans að Keldum | 1.267.058 | 2.115.829 | |||
| Háskólinn á Akureyri | 1.048.837 | 1.844.677 | 5.381.042 | 3.401.869 | |
| Landbúnaðarháskóli Íslands | - | - | - | - | |
| Hólaskóli - Háskólinn á Hólum | - | - | - | - | Aðili að sameiginlegum UT-lausnum með HÍ, svo sem Uglu |
| Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) | 33.488.944 | 30.703.210 | 36.409.664 | Áætlað hlutfall af heildarkostnaði við rekstur greiningar- og hugbúnaðarsviðs sem fer í þróunarvinnu | |
| Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra | 580.043 | 1.058.098 | 911.498 | 230.516 |