Ferill 377. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 690  —  377. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um húsnæði Fjölbrautaskóla Suðurnesja.


     1.      Hefur verið gerð þarfagreining á húsnæði Fjölbrautaskóla Suðurnesja?
    Vegna fyrirhugaðrar stækkunar verk- og starfsnámsaðstöðu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur farið fram frumathugun á framkvæmdinni af hálfu Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE). Frumathugun samanstendur af forathugun og frumáætlun. Forathugunarskýrsla er fyrsti áfangi í ferli opinberra framkvæmda þar sem verkefni er lýst, hagsmunaaðilar skilgreindir, þarfagreining gerð, valkostir skoðaðir, mat lagt á stofn- og rekstrarkostnað ásamt gæða- og áhættuþáttum. Í frumáætlun eru settar fram forsendur varðandi gerð og gæði mannvirkis, frumuppdrættir og tíma- og kostnaðaráætlun. Að lokinni forathugun og frumáætlun er síðan unnin frumathugunarskýrsla og lá sú skýrsla fyrir í maí 2024.

     2.      Er stefnt að því að stækka húsnæði skólans, bæði hvað varðar verkmenntastofur og bóklegt nám?
    Fyrrgreind frumathugunarskýrsla byggist á þeirri forsendu að fyrirhugað sé að stækka húsnæði skólans fyrir verk- og starfsnám og miðast við allt að 1.900 fermetra stækkun í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga verður byggð allt að 1.400 fermetra viðbygging og í síðari áfanga verður byggð 500 fermetra bygging. Sú stækkun leiðir af sér að það losnar um rými innan skólans sem hingað til hefur verið notað fyrir verk- og starfsnám. Slík stækkun gagnast því jafnt verknámi sem og bóknámi.

     3.      Hefur verið haft samráð við bæjarstjórnir á Suðurnesjum hvað húsnæði skólans varðar?
    Með vísan til c-liðar 2. mgr. 47. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, var í apríl 2024 undirritað samkomulag milli mennta- og barnamálaráðuneytis og sveitarfélaga á Suðurnesjum um viðbyggingu fyrir verk- og starfsnámsaðstöðu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ. Þau sveitarfélög sem um ræðir eru Reykjanesbær, Sveitarfélagið Vogar og Suðurnesjabær. Til grundvallar samkomulaginu lá fyrir forathugunarskýrsla sem gerð er grein fyrir í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.