Ferill 186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 692 — 186. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með frávísunartillögu
um frumvarp til laga um sýslumann.
Frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Frumvarp dómsmálaráðherra um sýslumann boðar sameiningu sýslumannsembætta og þar með meiri háttar breytingu á fyrirkomulagi og starfsemi framkvæmdarvalds. Þrátt fyrir boðaða hagræðingu vegna breytinga í yfirstjórn og stoðþjónustu kemur hvergi fram nákvæm skýring á því hvernig sú hagræðing á að eiga sér stað, svo sem með tilliti til tíma og umfangs. Í frumvarpinu er mælt fyrir um að starfsfólk sýslumannsembætta sem er í starfi þegar lögunum er ætlað að taka gildi 1. janúar 2026 verði starfsfólk hjá hinu nýja embætti sýslumanns. Jafnframt er tekið fram að starfsfólk kunni þó í einhverjum tilvikum að þurfa að hlíta breytingum á starfi vegna skipulagsbreytinga í tengslum við stofnun nýs embættis og með hliðsjón af nýju skipuriti. Af þessu leiðir að líkur eru á að sameiningin verði kostnaðarsöm í upphafi og hugsanlega án þess að skila tilætluðum sparnaði til lengri tíma litið. Loks skortir mælanleg markmið um hvenær og hvernig hagræðing skuli nást og af þeim sökum er frumvarpið ekki í nægilega góðu samræmi við 1. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, þar sem fram kemur að markmiðið sé vandaður undirbúningur áætlana og lagasetningar sem varða efnahag opinberra aðila og öflun og meðferð opinbers fjár.
Til að tryggja að sameining sýslumannsembætta skili raunverulegri hagræðingu og bættri þjónustu er nauðsynlegt að frumvarpið verði endurskoðað með það fyrir augum að setja fram skýr markmið og áætlun um hvernig hagræðing skuli nást.
Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 10. júní 2025.
Ingibjörg Isaksen.