Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 694  —  304. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um erindi frá Skattinum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mörg erindi sendi Skatturinn á lögaðila og einstaklinga á árunum 2019–2024?
     2.      Hversu langan tíma tók það Skattinn að svara lögaðilum og einstaklingum eftir að svör bárust frá þeim? Óskað er upplýsinga um hve mörgum erindum var svarað innan mánaðar, þriggja mánaða, sex mánaða, tólf mánaða og eftir lengri tíma en ár.


    Við vinnslu svarsins var leitað til Skattsins með beiðni um upplýsingar og er báðum spurningunum svarað saman.
    Skatturinn á að jafnaði í miklum og fjölbreytilegum samskiptum við einstaklinga og lögaðila, svo sem í tengslum við álagningu opinberra gjalda, þ.m.t. vegna gagnaskila, sem lið í eftirliti fyrir álagningarskoðun eða eftir álagningu, við framkvæmd skattrannsókna, í tengslum við innheimtu eða skráningu fyrirtækja eða raunverulegra eigenda þeirra. Slík erindi geta eftir atvikum verið að frumkvæði Skattsins eða sem viðbrögð við erindum gjaldenda. Erindin geta verið afar fjölbreytt að efni til en af mjög mismunandi mikilvægi. Þá geta erindi af hálfu Skattsins lotið að þriðja aðila, þ.e. öðrum en gjaldanda sjálfum, til að mynda sem liður í upplýsingaöflun. Þessar snertingar við viðskiptavini Skattsins nema þúsundum ár hvert. Ekki eru allar sendingar til viðskiptavina Skattsins þess eðlis að þær kalli á viðbrögð af hálfu viðskiptavina, eða leiði til formlegra málalykta. Margar fyrirspurnir kunna að vera sendar, t.d. í skatteftirliti eða rannsóknum, sem verða ekki að „máli“, en að sama skapi geta margar fyrirspurnir verið liður í sama stjórnsýslumálinu. Það getur því verið erfitt að skilgreina hvað átt er við með „erindi“ sem Skatturinn sendir á lögaðila og einstaklinga.
    Sé aðeins horft til fyrri spurningarinnar má ætla að óskað sé eftir upplýsingum um fjölda allra „snertinga“ við viðskiptavini, án tillits til tilefnis slíkra snertinga, efnis þeirra eða eðlis. Sé horft til beggja spurninganna saman verður þó ráðið að samhengi er á milli þeirra. Sá skilningur er lagður í spurninguna að óskað sé eftir upplýsingum um það hversu langan tíma það tekur Skattinn að ljúka málum þegar hann á frumkvæði að samskiptum við viðskiptavini eða það sem kalla mætti „biðtíma“ mála, þ.e. þann tíma sem tekur að ljúka afgreiðslu erinda eftir að nauðsynlegra gagna hefur verið aflað, eða fullreynt er að afla þeirra. Þó er ekki alls kostar ljóst hvort seinni spurningin lýtur að heildarmálsmeðferðartíma „erinda“ frekar en að afmörkuðum þætti hans, en eins og fram hefur komið kann fleiri fyrirspurnum að vera beint til skattaðila sem liðar í sama málinu.
    Málaskráningarkerfi Skattsins, þar sem upplýsingar um mál og fyrirspurnir liggja fyrir, getur ekki með fullnægjandi hætti tekið saman tölfræði vegna málsmeðferðartíma, hvort heldur litið er til hans í heild eða með afmörkuðum hætti. Gefur málaskráningarkerfið því ekki kost á að taka saman þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að svara fyrirspurninni.