Ferill 469. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 695 — 469. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um skatt af barnalífeyri.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hversu mörg börn greiddu tekjuskatt af barnalífeyri ár hvert frá 2020–2024 sem þau fengu vegna foreldramissis? Svar óskast sundurliðað eftir aldri barnanna.
2. Hverjar voru skatttekjur ríkisins ár hvert frá 2020–2024 af barnalífeyri barna undir 16 ára aldri?
3. Hverjar voru skatttekjur ríkisins ár hvert frá 2020–2024 af barnalífeyri barna á aldrinum 16–18 ára?
4. Hverjar voru útsvarstekjur sveitarfélaga ár hvert frá 2020–2024 af barnalífeyri barna undir 16 ára aldri?
5. Hverjar voru útsvarstekjur sveitarfélaga ár hvert frá 2020–2024 af barnalífeyri barna á aldrinum 16–18 ára?
6. Hyggst ráðherra hækka frítekjumark barna undir 16 ára aldri sem hefur ekki hækkað í samræmi við verðlag frá árinu 2014?
Skriflegt svar óskast.