Ferill 471. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 697  —  471. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fylgdarlaus börn á flótta.

Frá Rósu Guðbjartsdóttur.


     1.      Hversu mörg fylgdarlaus börn á flótta komu til landsins ár hvert frá 2015–2024?
     2.      Hversu mörg þessara barna hafa hlotið dvalarleyfi hér á landi, m.a. tímabundið dvalarleyfi eða varanlegt dvalarleyfi? Svar óskast sundurliðað eftir ári þegar dvalarleyfi var veitt.
     3.      Hversu mörg þessara barna hafa hlotið íslenskan ríkisborgararétt? Veitti Alþingi ríkisborgararétt eða var hann veittur með öðrum hætti? Svar óskast sundurliðað eftir ári þegar ríkisborgararéttur var veittur.
     4.      Hvernig hafa stjórnvöld tryggt velferð þessara barna?
     5.      Hversu mörg fylgdarlaus börn á flótta bíða úrlausnar máls síns nú?


Skriflegt svar óskast.