Ferill 419. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 700  —  419. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Hörpu Svavarsdóttur um sjúkraflug.


     1.      Hver hefur fjöldi sjúkrafluga verið síðustu fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     Fjöldi sjúkrafluga með sjúkraflugvél má sjá í meðfylgjandi töflu.

Ár Fjöldi
2020 618
2021 803
2022 886
2023 897
2024 939

     2.      Hvað eru margar sjúkraflugvélar til reiðu alla daga ársins til að sinna útköllum?
    Samkvæmt samningi um sjúkraflug innan lands skal rekstraraðili tryggja að ein sjúkraflugvél sé tiltæk allan sólarhringinn, alla daga ársins. Til viðbótar skal önnur flugvél vera reiðubúin sem varaflugvél ef þörf krefur. Þessar vélar skulu uppfylla kröfur um búnað og viðbragðstíma. Hvor vél fyrir sig hefur burði til að flytja tvo sjúklinga í börum á sama tíma. Þá eru einnig þrjú sæti fyrir sjúkraflutningsmenn, heilbrigðisstarfsmenn og fylgdarmenn.
    Með þessu fyrirkomulagi er leitast við að tryggja öruggt og stöðugt aðgengi að sjúkraflugi fyrir íbúa landsins allt árið um kring, óháð staðsetningu eða veðuraðstæðum.

     3.      Hver eru hámarksþyngdarmörk sjúklinga í sjúkraflugi?
    Fyrir sjúkraflug innan lands með flugvél hefur verið fjárfest í sjúkraflutningsbúnaði sem er í eigu ríkisins, en ábyrgð á rekstri búnaðarins er á höndum Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Um er að ræða LifePort-sjúkrabörur og börustæði, en samkvæmt fyrirmælum framleiðenda er hámarksþyngd sjúklings sem fluttur er á slíkum sjúkrabörum 136 kg.
    Sé flutningur með flugvél ekki mögulegur er hægt að kalla til þyrlur Landhelgisgæslunnar, en samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er engin hámarksþyngd við flutning, hvorki í sæti né börur. Takmarkandi þáttur í slíkum flutningi er stærð farþegans, en skilyrði er að sjúklingur passi gegnum dyr inn í farþegarými og í sæti eða í sjúkrabörur ef flutningur er þess eðlis.

     4.      Hafa verið gerðar ráðstafanir svo að allir íbúar landsins óháð þyngd komist í sjúkraflug þegar á þarf að halda?
    Eins og áður hefur komið fram eru engar þyngdartakmarkanir í þyrlum Landhelgisgæslunnar og eru þær almennt reiðubúnar til sjúkraflutninga, óháð líkamsþyngd sjúklings. Þyrlur gegna þannig mikilvægu hlutverki í að tryggja aðgengi allra landsmanna að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu þar sem aðstæður krefjast loftflutnings.
    Óvíst er hvort hægt væri að afnema allar þyngdartakmarkanir í sjúkraflugi með flugvél án umtalsverðra breytinga á skipulagi þjónustunnar, m.a. með auknum kröfum til stærðar flugvéla o.fl.