Ferill 356. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 701  —  356. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um insúlínbirgðir.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Heldur ráðuneytið yfirlit yfir birgðastöðu insúlíns hér á landi og ef svo er, hve lengi myndu insúlínbirgðir endast ef upp kæmi einhvers konar neyðarástand og innflutningur á insúlíni yrði ómögulegur?
     2.      Eru stjórnvöld með stefnu um insúlínbirgðir sem tengist þjóðaröryggisstefnu er varðar heilbrigðisöryggi?


    Samkvæmt 29. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020, ber heildsöluleyfishöfum að eiga nægar birgðir af tilteknum nauðsynlegum lyfjum. Lyfjastofnun birtir á vef sínum lista yfir þau tilteknu nauðsynlegu lyf og er insúlín á þeim lista. Heildsöluleyfishöfum ber jafnframt að tilkynna Lyfjastofnun um yfirvofandi birgðaskort. Ráðuneytið fær sendar vikulegar skýrslur frá Lyfjastofnun um lyfjaskort og hvaða viðbrögð hægt er að grípa til vegna hans.
    Ráðherra getur og hefur kallað eftir birgðastöðu þegar ástæða hefur þótt til vegna aðstæðna, sbr. heimildir í 73. gr. lyfjalaga. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp heilbrigðisráðherra þar sem m.a. er skerpt á skyldum heildsöluleyfishafa að tilkynna yfirvofandi lyfjaskort og skyldu ráðherra til að setja viðmið um lágmarksbirgðir nauðsynlegra lyfja.
    Auk þess sem Lyfjastofnun heldur úti lista yfir nauðsynleg lyf er í 7. gr. reglugerðar um sóttvarnaráðstafanir nr. 817/2012 kveðið á um öryggisbirgðahald sem sóttvarnalækni er gert að hafa umsjón með og er insúlín, bæði stuttverkandi og langverkandi, tilgreint sem hluti af því öryggisbirgðahaldi.
    Ráðherra fól nýlega Landspítala í samstarfi við sóttvarnalækni og Sjúkrahúsið á Akureyri að vinna nýjan öryggisbirgðalista til að bregðast við heilbrigðisvá, sbr. reglugerð um sóttvarnaráðstafanir nr. 817/2012. Stefnt er að því að til séu sex mánaða birgðir af lyfjum á þeim lista og níu mánaða birgðir af innrennslisvökvum. Unnið er að nánari útfærslu og tímalínu.