Ferill 427. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 702  —  427. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til fjáraukalaga II fyrir árið 2025 (breytt skipan Stjórnarráðsins).

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið á fundi sínum með fulltrúum fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Ekki var talin þörf á að senda málið til umsagnar annarra aðila en Ríkisendurskoðunar. Stofnunin skilaði ekki inn umsögn en benti á skýrslu sína um eldri breytingar á Stjórnarráðinu.

Stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á breytingum á stjórnarmálefnum ráðuneyta.
    Skýrslan var gefin út árið 2023 og stofnunin hefur væntingar um að breytingarnar núna taki að einhverju marki mið af ábendingum sem fram komu í skýrslunni. Ábendingar sneru einkum að þremur þáttum:
     1.      Að efla þarf miðlæga verkstjórn og vanda undirbúning breytinga á Stjórnarráði Íslands. Mikilvægt er að Stjórnarráðið í heild búi yfir sveigjanleika til að takast á við umfangsmikla uppstokkun stjórnarmálefna og að hvert ráðuneyti geti tekið við ábyrgð nýrra málaflokka og verkefna.
     2.      Að styrkja stoðeiningar Stjórnarráðsins. Er þar einkum vísað til þjónustu Fjársýslu ríkisins og Umbru – þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins.
     3.      Að tryggja miðlæga yfirsýn. Ríkisendurskoðun telur mikilvægt að skoðað verði hvort ráðast þurfi í breytingar á uppbyggingu fjárhags- og mannauðskerfis ríkisins svo að flutningur stjórnarmálefna eða tiltekinna verkefna milli ráðuneyta gangi fyrir sig með hnökralausum hætti.

Tilgangur frumvarpsins.
    Frumvarpinu er ætlað að breyta fjárheimildum málefnasviða og málaflokka til samræmis við ákvörðun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um breytingar á verkaskiptingu ráðherra og fækkun ráðuneyta úr 12 í 11 talsins, þar sem menningar- og viðskiptaráðuneytið er lagt niður.
    Þann 15. mars sl. öðluðust þrír forsetaúrskurðir gildi, úrskurður nr. 4/2025 um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, úrskurður nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og úrskurður nr. 6/2025 um skiptingu starfa ráðherra.
    Unnið hefur verið að yfirferð á breytingum á fjárheimildum sem leiðir af framangreindum forsetaúrskurðum og samkomulagi milli ráðuneyta í hverju tilfelli fyrir sig. Samhliða fækkun ráðuneyta um eitt er heitum þriggja þeirra breytt til að endurspegla breytta verkaskiptingu Stjórnarráðsins:
     1.      Matvælaráðuneyti verður atvinnuvegaráðuneyti.
     2.      Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti verður menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
     3.      Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti verður félags- og húsnæðismálaráðuneyti.

Yfirlit um breytingar fjárheimilda.
    Umfangsmestu breytingar frumvarpsins varða tilfærslu verkefna og flutning fjárheimilda frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu, sem er lagt niður. Verkefni ráðuneytisins færast annars vegar til nýs menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, samtals að fjárhæð 24,3 ma.kr., og hins vegar til nýs atvinnuvegaráðuneytis, að fjárhæð 2,9 ma.kr.
    Önnur veruleg breyting er flutningur húsnæðis- og skipulagsmála frá innviðaráðuneyti til félags- og húsnæðismálaráðuneytis, en þar eru fjárheimildir að fjárhæð um 19,5 ma.kr. fluttar á milli ráðuneyta.
    Í 2. og 3. gr. frumvarpsins kemur fram nákvæm sundurliðun á málefnasvið og málaflokka. Í greinargerð frumvarpsins er gerð nánari grein fyrir einstökum verkefnum sem færast á milli ráðuneyta, málefnasviða og málaflokka.

Ávinningur af breytingum á Stjórnarráðinu.
    Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að gert er ráð fyrir að hagræðing á ársgrundvelli nemi um 330 m.kr., þar af 230 m.kr. með því að loka aðalskrifstofu menningar- og viðskiptaráðuneytisins og 100 m.kr. lækkun á launakostnaði ráðherra, aðstoðarmanna og bílstjóra ráðherra.
    Hagræðingin ætti að vera sýnileg í árslok sem afgangur fjárheimilda, en fjáraukalög eru almennt ekki notuð til að lækka heimildir þó að fyrirséð sé að gjöld verði lægri en fjárveiting segir til um.

Niðurstaða meiri hluta fjárlaganefndar.
    Í þessu tilfelli er ekki um að ræða hefðbundið fjáraukalagafrumvarp heldur er því einungis ætlað að endurspegla á tæknilegan hátt þær breytingar sem orðið hafa á Stjórnarráðinu í kjölfar ríkisstjórnarskipta, þ.e. að aðlaga framsetningu fjárheimilda að breyttri skipan ráðuneyta.
    Samþykkt frumvarpsins tryggir að fjárheimildir málefnasviða, málaflokka og ráðuneyta fyrir árið 2025 verði í fullu samræmi við breytta skipan Stjórnarráðsins sem tók gildi 15. mars sl. Ekki eru gerðar neinar aðrar tillögur um efnislegar breytingar fjárheimilda í frumvarpinu.

    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 11. júní 2025.

Ragnar Þór Ingólfsson,
form., frsm.
Dagur B. Eggertsson. Arna Lára Jónsdóttir.
Eiríkur Björn Björgvinsson. Heiða Ingimarsdóttir.