Ferill 398. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 707 — 398. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Gísla Stefánssyni um kröfulýsingu um úteyjar Vestmannaeyja.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hyggst ráðherra halda til streitu kröfulýsingu sinni um úteyjar Vestmannaeyja sem eru í meira en 2 km fjarlægð frá Heimaey?
Málsmeðferð óbyggðanefndar vegna krafna ríkisins á svæði 12 stendur enn yfir. Lögmenn íslenska ríkisins vinna að yfirferð á kröfum ríkisins og kröfum annarra málsaðila, með tilliti til fyrirliggjandi heimilda og þeirra sjónarmiða sem almennt hafa verið lögð til grundvallar í þjóðlendumálum. Við þá yfirferð verður tekið tillit til sérstöðu eyja og skerja samanborið við landsvæði á meginlandinu sem byggist einkum á framkomnum heimildum og hlutlægum forsendum.
Samhliða þessari vinnu fer fram nánari skoðun á sjónarmiðum óbyggðanefndar hvað varðar inntak og landfræðilegt gildissvið ákvæðis lokamálsliðar 2. kapítula rekabálks Jónsbókar, en óbyggðanefnd telur „almennt unnt að leggja til grundvallar að eyjar og sker sem eru allt að 2 km frá landi geti talist fyrir landi“ í skilningi ákvæðisins „og að slíkar eyjar og sker séu hlutar þeirra jarða sem næst liggja, svo framarlega sem staðhættir eða aðrar aðstæður mæla því ekki sérstaklega í mót.“
Umfjöllun óbyggðanefndar felur ekki í sér endanlega niðurstöðu eða úrskurð nefndarinnar vegna einstakra krafna og grundvallast ekki á rannsókn nefndarinnar á heimildum og öðrum upplýsingum um einstakar eyjar og sker. Hins vegar er um að ræða almennt sjónarmið sem nefndin mun horfa til í endanlegum úrskurðum sínum.
Að lokinni fyrrgreindri yfirferð lögmanna íslenska ríkisins er miðað við að kröfum á svæði 12 muni fækka verulega, einkum þar sem kröfur hafa verið umfangsmestar, þótt endanleg niðurstaða liggi ekki fyrir á þessu stigi.