Ferill 412. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 709 — 412. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um vinnustundir ríkislögmanns vegna dómsmáls gegn ÁTVR.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvað voru unnar margar vinnustundir hjá ríkislögmanni fyrir hönd Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) vegna máls sem lauk með dómi Hæstaréttar nr. 19/2024 sem kveðinn var upp 4. desember 2024?
Samkvæmt upplýsingum sem var aflað frá ríkislögmanni er ekki haldið utan um skráningu á vinnustundum starfsmanna hans með þessum hætti varðandi einstök dómsmál sem þeir hafa með höndum. Upplýsingarnar liggja því ekki fyrir.