Ferill 462. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 710 — 462. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Þorgrími Sigmundssyni um U2-vottorð vegna atvinnuleitar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu hátt hlutfall þeirra sem fengu U2-vottorð á árunum 2015–2024, og þar með í atvinnuleit í öðru ríki en þáðu atvinnuleysisbætur frá Íslandi, voru erlendir ríkisborgarar? Hversu hátt hlutfall þeirra fékk útgefið U2-vottorð til þriggja mánaða oftar en einu sinni á fyrrnefndu tímabili?
Í meðfylgjandi töflu má sjá hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarfjölda þeirra sem fóru í atvinnuleit erlendis með svokölluð U2-vottorð á árunum 2015–2024. Um 10% þeirra sem fengu slík vottorð á umræddu tímabili fengu slíkt vottorð oftar en einu sinni.
| Ár | Erlendir ríkisborgarar |
| 2015 | 58% |
| 2016 | 64% |
| 2017 | 76% |
| 2018 | 84% |
| 2019 | 88% |
| 2020 | 93% |
| 2021 | 92% |
| 2022 | 91% |
| 2023 | 92% |
| 2024 | 94% |
| 2025 | 95% |
Heimild: Vinnumálastofnun.