Ferill 473. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 717 — 473. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um tilkynningar um háska á sjó og viðbrögð við þeim.
Frá Vilhjálmi Árnasyni.
1. Hversu margar tilkynningar bárust Landhelgisgæslunni um aðstoð eða háska á sjó frá ársbyrjun 2019 til 1. júní 2025, sundurliðað eftir tegund báta; skemmtibátar, farþegaskip, fiskiskip sundurliðað eftir aflamarksskipum, krókaaflamarksbátum og strandveiðibátum og annað?
2. Hversu oft var brugðist við tilkynningum vegna háska á sjó frá ársbyrjun 2019 til 1. júní 2025, sundurliðað eftir tegund báta; skemmtibátar, farþegaskip, fiskiskip sundurliðað eftir aflamarksskipum, krókaaflamarksbátum og strandveiðibátum og annað?
Skriflegt svar óskast.