Ferill 213. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 719  —  213. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík og lögum um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga (framlenging fresta).

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Grindavíkurbæ, Járngerði, hagsmunasamtökum um uppbyggingu og framtíð Grindavíkur, Maraþon ehf. og fasteignafélaginu Þórkötlu og Bryndísi Gunnlaugsdóttur.
    Nefndinni bárust 11 umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024, og lögum um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, nr. 130/2024. Breytingarnar fela í sér framlengingu á fresti annars vegar til að sækja um kaup á íbúðarhúsnæði og hins vegar til að sækja um stuðningslán rekstraraðila.
    Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að fasteignafélagið Þórkatla hafi nú þegar samþykkt kaup á 944 eignum. Þá segir að frá nóvember sl. hafi þeim sem selt hafa hús sín til Þórkötlu boðist að gera hollvinasamning um afnot af húsinu. Slíkur samningur veiti hollvini heimild til að nota íbúðarhúsnæði innan tiltekinna marka. Nefndin fjallaði sérstaklega um aðgengi hollvina að eignunum og þá takmörkun að óheimilt væri að dvelja í þeim yfir nótt af öryggisástæðum. Fram kom það sjónarmið fyrir nefndinni að slík heimild myndi hugnast þónokkrum sem gert hafa hollvinasamning við Þórkötlu. Bent var á að opið væri fyrir alla umferð til og frá Grindavík og heimilt væri að dvelja í bænum yfir nótt. Takmörkun á aðgengi samkvæmt hollvinasamningnum gengi því lengra en efni væru til.
    Nefndin fagnar því að á meðan málið var til meðferðar hjá henni var tekin sú ákvörðun hjá fasteignafélaginu Þórkötlu að heimila hollvinum að gista í eignunum yfir sumartímann, þ.e. til 30. september 2025. Nefndin telur brýnt að hollvinir sem nýta sér heimild til gistingar verði upplýstir tímanlega um framhaldið eftir 30. september. Jafnframt komu fram upplýsingar fyrir nefndinni að hollvinum verði ekki gert að flytja innbú sem nýtt var yfir sumartímann til baka. Nefndin telur mikilvægt að Þórkatla leiti leiða til þess að heimild til gistingar verði framlengd. Þá hvetur nefndin Þórkötlu áfram í þeirri vinnu að móta fyrirkomulag sem tryggir að þeir sem þess óska geti með fyrirsjáanlegum hætti snúið til baka í eignirnar.
    Nefndin tekur jafnframt fram að margar umsagnir lúti að atriðum sem ekki falla undir efni frumvarpsins, t.d. önnur stuðningsúrræði til fyrirtækja. Að því gættu leiða þær ekki til að nefndin geri tillögu um breytingar á frumvarpinu. Þá áréttar nefndin að markmið laganna um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík er að verja fjárhag og velferð íbúa bæjarins og því er mikilvægt að hafa hliðsjón af því við skýringu 3. mgr. 1. gr. laganna þannig að vafatilvik verði ávallt skýrð í til samræmis við það, eins og meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar tók fram í áliti sínu við meðferð frumvarps þess sem varð að lögum nr. 16/2024 (þskj. 1101, 704. mál á 154. löggjafarþingi). Jafnframt beinir nefndin því til stjórnvalda að taka til skoðunar þær fáu umsóknir einstaklinga um húsnæðiskaup sem fengið hafa synjun.
    Að lokum fjallaði nefndin um 1. tölul. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 16/2024 sem kveður á um að fasteignafélagið Þórkatla sé undanþegið fasteignagjöldum vegna þeirra fasteigna sem keyptar eru á grundvelli laganna. Umrætt ákvæði fellur ekki undir efni þess frumvarps sem hér er til meðferðar. Nefndin undirstrikar þó að stjórnvöld þurfa að hafa framangreint í huga.

Breytingartillaga.
    Með 1. gr. frumvarpsins er lagt til að frestur til að sækja um kaup á íbúðarhúsnæði samkvæmt lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík verði framlengdur um þrjá mánuði, þ.e. til 1. júlí 2025. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að um 40–50 heimili séu eftir sem geti sótt um kaup samkvæmt lögunum og þar með nýtt sér framlengingu frestsins. Í umsögnum sem nefndinni bárust komu fram sjónarmið um að fresturinn ætti að vera lengri. Tekið var fram að sumir eigendur hefðu ekki enn gert upp hug sinn um hvort þeir ætluðu að óska eftir kaupum. Jafnframt að lengri frestur gæti haft það í för með sér að færri af þeim sem eftir stæðu myndu óska eftir kaupum en ella.
    Nefndin fellst á framangreind sjónarmið og telur að gefa verði íbúum Grindavíkur frekara svigrúm til ákvarðanatöku. Leggur nefndin því til breytingartillögu þess efnis að frestur til að sækja um kaup á íbúðarhúsnæði samkvæmt lögum nr. 16/2024 verði framlengdur út árið 2025.
    Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    1. gr. orðist svo:
    Í stað dagsetningarinnar „1. apríl 2025“ í 1. og 2. málsl. ákvæðis til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 1. janúar 2026.
    
    Vilhjálmur Árnason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir rita undir álitið með fyrirvara um að í fyrsta lagi sé aðeins minnst á vilja nefndarinnar hvað varðar uppkaup íbúðarhúsnæðis í eigu einstaklinga í nefndaráliti en uppkaup ekki tryggð með viðeigandi breytingartillögu. Í öðru lagi að ekki komi fram skýr áform stjórnvalda um að bæta Grindarvíkurbæ það mikla tekjufall sem sveitarfélagið verður fyrir vegna undanþágu fasteignafélagsins Þórkötlu frá greiðslu fasteignagjalda sem og annarra aðila sem eiga fasteignir innan þéttbýlis Grindavíkurbæjar. Loks í þriðja lagi að ekki sé afnumið tímamark brunabótamats, sbr. ákvæði til bráðabirgða IV í lögum nr. 16/2024, sem liggur til grundvallar ákvörðun kaupverðs.

Alþingi, 12. júní 2025.

Arna Lára Jónsdóttir,
form.
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
frsm.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir,
með fyrirvara.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. Pawel Bartoszek. Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.
Stefán Vagn Stefánsson,
með fyrirvara.
Vilhjálmur Árnason,
með fyrirvara.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
með fyrirvara.