Ferill 282. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 720  —  282. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (viðurkenning námsbrautarlýsinga o.fl.).

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá mennta- og barnamálaráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Félagi framhaldsskólakennara, Félagi iðn- og tæknigreina, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Landssamtökunum Þroskahjálp, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, umboðsmanni barna og Viðskiptaráði Íslands. Nefndinni bárust 11 umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sem varða viðurkenningu skóla til kennslu á framhaldsskólastigi, staðfestingu námsbrautarlýsinga, vinnustaðanám, samvinnu framhaldsskóla og samningsgerð skóla og ráðuneytis, innritun nemenda og réttindi og skyldur þeirra.

Umfjöllun nefndarinnar.
Námsbrautarlýsingar (9. gr.).
    Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á ákvæðum laga um framhaldsskóla um námsbrautarlýsingar. Breytingarnar miða einkum að því að einfalda ferli námsbrautarlýsinga án þess að dregið verði úr kröfum til námsbrauta sem og að auka yfirsýn ráðherra yfir námsbrautir í framhaldsskólum. Megintilgangur breytinganna er að námsbrautarlýsingar skóla verði ekki lengur birtar í Stjórnartíðindum til að öðlast gildi heldur verði viðurkenndar af ráðherra. Aftur á móti verði viðmiðunarnámsbrautir ráðherra birtar í Stjórnartíðindum og verði hluti aðalnámskrár.
    Í umsögn Samtaka iðnaðarins er bent á að þörf sé á samþættingu námsbrauta en til staðar sé óútskýrður munur á nokkrum brautarlýsingum innan sömu iðngreina sem valdi því að nemendur eigi erfitt með að flytja sig milli skóla og fái ekki nám sitt metið. Með samþættingu brauta milli skóla í sömu iðngreinum væri hægt að tryggja að nemendur fái nám metið milli skóla og að nám sé í takt við þarfir atvinnulífsins. Félag framhaldsskólakennara veltir því aftur á móti upp hvort verið sé að draga úr faglegu sjálfstæði framhaldsskóla með því að kveða á um að um nám í framhaldsskóla fari samkvæmt viðmiðunarnámsbrautum og innleiða miðlægar námsbrautir með miðlægt ákvörðuðu námsefni.
    Meiri hlutinn lítur svo á að tillögur að breytingum vegna námsbrautarlýsinga séu liður í því að auka skilvirkni. Núverandi fyrirkomulag er varðar staðfestingu námsbrautarlýsinga hefur reynst þungt í framkvæmd sem meðal annars hefur leitt til þess að framhaldsskólar hafa ekki allir uppfært námsbrautarlýsingar til samræmis við þróun kennslu á undanförnum árum. Breytingin muni leiða til aukinnar skilvirkni í framkvæmd þótt áfram verði tryggt að ekki verði dregið úr kröfum til framhaldsskóla um gæði náms og námsbrautarlýsinga. Þá er skerpt á skyldu ráðherra til að tryggja aðkomu starfsgreinaráða að viðurkenningu námsbrauta í starfsnámi og fagnar meiri hlutinn áherslu á aukið samstarf og samráð, eftir atvikum við fleiri aðila, svo sem háskóla.

Vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað (11. gr.).
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem miða að því að styrkja og bæta lagagrundvöll reglugerðar um vinnustaðanám, nr. 180/2021, sem og að styrkja stöðu nemenda í vinnustaðanámi almennt, m.a. þegar kemur að gerð samninga um vinnustaðanám. Þær breytingar varða það einkum að skýra ábyrgð framhaldsskóla á því að iðnnemandi eigi kost á vinnustaðanámi en við gildistöku reglugerðar um vinnustaðanám var framhaldsskólum falin ábyrgð fyrir því. Í ljósi þeirrar reynslu er með frumvarpinu lagt til að það verði lögfest að framhaldsskóli beri ábyrgð á gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamninga og hafi jafnframt eftirlit með þeim. Líkt og kemur fram í greinargerð með frumvarpinu þykir rétt að framhaldsskólarnir, sem bera ábyrgð á námi nemenda sinna, beri þessa ábyrgð sem er að öðru leyti í höndum nemanda og iðnmeistara, fyrirtækis eða stofnunar sem framfylgja samningi. Jafnframt er lögð til sú breyting að ráðherra haldi skrá yfir aðila sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms, í stað þess að slík skrá sé haldin af starfsgreinaráði. Með þeirri breytingu er ætlunin að skýra hver beri ábyrgð á því að hafa yfirsýn yfir fyrirtæki og vinnustaði sem uppfylla skilyrði til að taka nema í vinnustaðanám og lögð áhersla á að iðnmeisturum, fyrirtækjum og stofnunum beri að virða samningsskyldur sínar og er þar t.d. átt við ákvæði ráðningar- og kjarasamnings nemans, skyldur sem tengjast öryggi starfsumhverfis og viðbrögðum við einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 1009/2015.
    Í umsögnum um málið komu fram athugasemdir við þessar breytingar og bent var á að taka þurfi tillit til ráðningarsambands nemanda og vinnustaðar og virða sérstöðu iðnnáms hvað það varðar. Í sameiginlegri umsögn ASÍ, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Samtaka atvinnulífsins er m.a. bent á mikilvægi þess að tryggja skýra verkaskiptingu á framkvæmd vinnustaðanáms, samræmi milli laga og reglugerða og skapa sveigjanlegt en faglegt umhverfi fyrir mat á hæfni nemenda í starfsnámi. Samtök iðnaðarins gera athugasemdir við breytingu skv. 3. mgr. 11. gr. frumvarpsins þar sem fram kemur að framhaldsskólar beri ábyrgð á ráðningarsamningum og kjaramálum nemenda í vinnustaðanámi og telja að ákvæðið þarfnist endurskoðunar. Ráðningarsamband nemanda og vinnustaðar falli undir lög og kjarasamninga á vinnumarkaði og skólar geti því ekki borið ábyrgð á slíkum samningum eða skyldum sem snúa að launakjörum nemenda.
    Meiri hlutinn tekur undir markmið frumvarpsins sem er að auka rétt og öryggi nemenda um eðlilega námsframvindu. Framhaldsskólarnir beri ábyrgð á gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamninga og fylgi samningunum eftir en það er að öðru leyti í höndum nemanda og iðnmeistara, fyrirtækis eða stofnunar að framfylgja samningi. Jafnframt er kveðið á um að skóli staðfesti ráðningarsamning milli nema og vinnuveitanda sem gerður er samhliða vinnustaðanámssamningi og að slíkir samningar skuli vera í samræmi við gildandi kjarasamninga. Er það lagt til í samræmi við ábyrgð framhaldsskóla á gerð og eftirliti með vinnustaðanámssamningum. Líkt og fram kemur í umsögn Félags framhaldsskólakennara þá bendir meiri hlutinn á nauðsyn þess að samningar milli skóla, nemenda og vinnustaða séu skýrir og að eftirlit sé virkt til að tryggja öryggi og gæði námsins.

Mat á hæfni nemenda í vinnustaðanámi (12. gr.).
    Með 12. gr. frumvarpsins er lagt til að mat á hæfni nemanda í vinnustaðanámi sé í höndum iðnmeistara, fyrirtækis eða stofnunar, undir umsjón skólameistara. Sú áhersla er til þess fallin að samræma reglur sem gilda um námsmat í framhaldsskólum og styrkja rétt nemandans til skýringa og úrlausnar ágreinings vegna mats á hæfni í vinnustaðanámi, sbr. einnig 2. mgr. 30. gr. laganna um rétt til að fá útskýringar á námsmati.
    Samtök iðnaðarins benda á að með breytingum skv. 12. gr. frumvarpsins, um að mat á hæfni nemenda í vinnustaðanámi teljist hluti af námsmati, verði að miða við eðli vinnustaðanáms og uppbyggingu. Óhjákvæmilegt sé að horfa á það mat með öðrum augum en hefðbundið námsmat í skólum. Samtökin leggja áherslu á að rafræn ferilbók sé fyrst og fremst skráning á framvindu nemanda á vinnustað með það að markmiði að meta hæfni viðkomandi. Sé ætlunin að fella mat á hæfni nemenda samkvæmt rafrænni ferilbók undir fulltrúa skóla myndi það fela í sér grundvallarbreytingu á tilhögun vinnustaðanáms. Þá ítreka samtökin mikilvægi þess að gera skýran greinarmun á annars vegar almennri starfsþjálfun og hins vegar vinnustaðanámi í löggiltum iðngreinum, þar sem námi ljúki með sveinsprófi. Þar byggist hæfnismat á staðfestum færniþáttum samkvæmt aðalnámskrá og gildandi hæfnikröfum greinarinnar og er slíkt mat á ábyrgð viðkomandi iðnmeistara en ekki skóla. Skólar geti stutt við framkvæmdina með skráningu námsframvindu en geti ekki borið faglega ábyrgð á matsniðurstöðum.
    Í umsögn frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er bent á að með breytingunni verði að líta svo á að aðeins framhaldsskólar, undir umsjón skólameistara, muni geta komið að mati á hæfni nemenda en ekki framhaldsfræðsluaðilar líkt og hefur verið frá árinu 2007 með raunfærnimati. Í umsögn frá Félagi iðn- og tæknigreina kemur fram að með 12. gr. frumvarpsins skapist óvissa um skörun náms til sveinsprófs og náms í framhaldsskóla og að með breytingunni sé verið að stíga skref í þá átt að færa nám til sveinsprófs inn í framhaldsskólana sem væri grundvallarbreyting. Alþýðusamband Íslands telur nauðsynlegt að huga að því hvernig ábyrgð og fyrirkomulag mats er orðað í 12. gr. frumvarpsins og að það verði endurskoðað að mat á hæfni nemenda í vinnustaðanámi verði undir umsjón skólameistara. Það megi ekki fela í sér einhliða ákvörðunarvald yfir mati á vinnustaðanámi sem fari fram í ráðningarsambandi þar sem meistari og nemandi starfa saman og því eðlilegt að tryggja aðkomu stéttarfélags ef upp kemur ágreiningur milli nemanda og vinnustaðar um mat eða framkvæmd námsins.
    Meiri hlutinn telur að með breytingunum sé ekki ætlunin að gera grundvallarbreytingar á vinnustaðanámi heldur tryggja rétt nemenda til skýringa og úrlausnar ágreinings vegna mats á hæfni í vinnustaðanámi. Tilsjónarmenn með vinnustaðanámi meta hæfni nemanda samkvæmt hæfnikröfum starfsins og telst vinnustaðanámi lokið þegar nemandinn hefur náð öllum hæfniþáttum og þeirri hæfni sem tilskilin er. Breytingarnar feli ekki í sér að skólameistarar muni hafa aukin afskipti af störfum iðnmeistara eða viðkomandi fyrirtækja eða stofnana. Meiri hlutinn telur ljóst að ætlunin sé að nemandi geti leitað til skólameistara t.d. ef upp kemur ágreiningur um námsmat, til að styrkja rétt nemenda.

Skráning eininga úr raunfærnimati.
    Í 11. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um heimild ráðherra til að setja reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað í samráði við starfsgreinanefnd. Í reglugerð er ráðherra m.a. heimilt að mæla nánar fyrir um notkun stafrænna lausna við skráningu um framvindu náms og námsferil nemanda á vinnustað á grundvelli reglugerðar nr. 180/2021.
    Í erindi til nefndarinnar frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er bent á að í dag sé ekki verið að meta vinnustaðahluta í raunfærnimatsferlinu þar sem rafræn ferilbók er til staðar. Á grundvelli reglugerðar um framhaldsfræðslu, nr. 1163/2011, eru niðurstöður raunfærnimats skráðar í gagnagrunn á vegum stjórnvalda. Með þeirri skráningu er óformlegt nám og starfsreynsla metið til jafns við formlegt nám en eins og staðan er hafa ábyrgðaraðilar vegna framkvæmdar raunfærnimats ekki heimild til að skrá í ferilbók. Bent er á að lausnin liggi í tæknilegri útfærslu en það sé mikilvægt að framkvæmdaraðilar raunfærnimats geti skráð niðurstöður þess í gagnagrunn líkt og áður var. Þá er í sameiginlegri umsögn Alþýðusambands Íslands, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Samtaka atvinnulífsins undirstrikað mikilvægi þess að raunfærnimat geti nýst sem raunhæf leið fyrir nemendur utan hefðbundins skólakerfis. Raunfærnimat gegni lykilhlutverki sem leið fyrir fólk með starfsreynslu utan hefðbundins skólakerfis til að fá viðurkenningu fyrir hæfni sína og ljúka formlegu námi.
    Meiri hlutinn tekur undir nauðsyn þess að fundin verði lausn á þessu sem allra fyrst til að koma í veg fyrir frekari óvissu og að hægt verði að fá vinnustaðahluta metinn í raunfærnimati með skráningu í rafræna ferilbók. Meiri hlutinn beinir því til mennta- og barnamálaráðuneytis að hraða yfirstandandi vinnu eins og mögulegt er svo það megi tryggja viðeigandi lausn á tæknilegri útfærslu.

Innritun nemenda í framhaldsskóla (13. gr.).
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar er lúta að innritun nemenda í framhaldsskóla svo að heimilt verði að byggja á fleiri atriðum sem tengjast nemandanum en námsárangri. Kveðið er á um að hver framhaldsskóli beri ábyrgð á innritun nemenda í viðkomandi skóla í samræmi við reglugerð og önnur fyrirmæli ráðherra um innritun. Við ákvörðun verði heimilt að líta til sjónarmiða sem tengjast nemandanum, þ.m.t. námsárangurs í grunnskóla og annarra upplýsinga sem nemandinn lætur skólanum í té, og sjónarmiða sem tengjast skólasamfélagi viðkomandi skóla, þ.m.t. sjónarmiða um að auka fjölbreytni í nemendahópnum. Líkt og er rakið í greinargerð með frumvarpinu eru þessar breytingar lagðar til með vísan til álits umboðsmanns Alþingis frá 29. desember 2010 (mál nr. 5994/2010 og 6009/2010) þar sem fram kemur sú afstaða umboðsmanns að löggjafinn eigi að taka afstöðu til þeirra meginatriða sem fylgja skuli við innritun nemenda í framhaldsskóla á öðrum grundvelli en námsárangri.
    Í umsögnum og fyrir nefndinni voru gerðar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar og bent á að það geti verið vandasamt að leggja matskennd viðmið til grundvallar inntöku nemenda í framhaldsskóla fremur en að innrita á grundvelli námsárangurs sem byggist á hlutlægum mælikvarða. Stuðla þurfi að gagnsæi og gæta að jafnræði nemenda við innritun í framhaldsskóla auk þess sem ítrekað var mikilvægi þess að skólarnir hafi sjálfir forræði á samsetningu nemendahópa. Þá var því velt upp í umsögn Samtaka atvinnulífsins hvaða tilgangi það þjóni að fella tilvísun í skólasamninga skv. 44. gr. úr 32. gr. laganna, um innritun, og bent á að mikilvægt sé að umrædd breyting leiði í reynd ekki til þess að skólar sem starfa skv. 44. gr. missi forræði yfir þeim forsendum sem hver skóli fyrir sig velur að leggja til grundvallar við innritun innan ramma laganna.
    Meiri hlutinn ítrekar að um er að ræða heimild en ekki skyldu til að líta til annarra þátta en námsárangurs og er breytingin einkum gerð til að taka afstöðu til þess að heimilt sé að líta til annarra sjónarmiða við innritun nemenda í framhaldsskóla og treysta þar með heimild í lögum með vísan til álits umboðsmanns Alþingis. Meiri hlutinn undirstrikar að við innritun í framhaldsskóla skuli ávallt byggja á málefnalegum sjónarmiðum. Ráðherra verður heimilt að setja í reglugerð nánari fyrirmæli og ákvæði um innritun nemenda þar sem m.a. er kveðið á um skilyrði og málsmeðferð innritunar. Við útfærslu ákvæðisins telur meiri hlutinn mikilvægt að gætt verði að samráði við helstu hagsmunaaðila og byggt á málefnalegum sjónarmiðum. Markmið breytinganna sé ekki að draga úr sérhæfingu hjá framhaldsskólum og gera þá einsleita. Þá verði kveðið á um heimild fyrir framhaldsskóla til að gera sérstakar kröfur um undirbúning og námsárangur vegna innritunar á einstakar námsbrautir eða tiltekna hluta námsbrauta í framhaldsskóla.

Réttindi nemenda, ábyrgð og skólabragur (14. gr.).
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar er varða réttindi nemenda, ábyrgð þeirra og skólabrag og gerðar breytingar sem varða viðbrögð skóla við brotum nemenda á skyldum sínum og er varða skyldu framhaldsskóla til að gera viðbragðsáætlanir, þ.m.t. um kynferðislegt ofbeldi. Í ljósi mikillar umræðu undanfarið um ofbeldi ungmenna, þar á meðal í framhaldsskólum, hefur verið fjallað um mikilvægi þess að bæta verklag og setja skýrari ramma með því að laga ákvæði laga um framhaldsskóla betur að þeim veruleika sem nemendur, kennarar, skólastjórnendur og annað starfsfólk stendur frammi fyrir þegar erfið mál koma upp innan framhaldsskólanna.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að hægt sé að bregðast við þegar erfið mál koma upp með það að markmiði að aðstoða þá nemendur sem brjóta gegn skyldum sem á þeim hvíla á grundvelli laganna og að það verði skýrt í hvaða farveg mál fari en jafnframt verði að verja þau sem verða fyrir brotum. Líkt og fram kemur í 33. gr. laga um framhaldsskóla eiga allir nemendur framhaldsskóla rétt á kennslu við sitt hæfi í hvetjandi námsumhverfi og skal skólinn í hvívetna haga störfum sínum þannig að nemendur finni til öryggis og njóti hæfileika sinna.
    Í umsögn um málið frá umboðsmanni barna kemur fram að það sé mat umboðsmanns að breytingar skv. 14. gr. frumvarpsins feli í sér víðtækar takmarkanir á réttindum nemenda. Einkum eru gerðar athugasemdir við breytingar skv. 2. mgr. 14. gr. frumvarpsins þar sem umboðsmaður telur að verið sé að draga úr skyldu skólans gagnvart nemendum ef hegðun, skólasókn eða námsárangri reynist áfátt og telur þær draga úr réttindum nemenda. Umboðsmaður barna fjallar einnig um inntak fræðsluskyldu stjórnvalda en öll börn eiga rétt á að stunda nám í framhaldsskóla fram til 18 ára aldurs skv. 32. gr. laga um framhaldsskóla. Börn eiga stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar auk þess sem kveðið er á um rétt barna til grunn- og framhaldsmenntunar í 28. gr. barnasáttmálans, sbr. lög nr. 19/2013. Með vísan til réttinda barna til menntunar og fræðsluskyldu stjórnvalda er því velt upp hvað felist í þeirri skyldu ef heimilt er að vísa börnum úr skóla vegna hegðunar, skólasóknar eða námsárangurs og aðeins gerð krafa um að nemandi fái leiðbeiningar um hvernig hann geti haldið áfram námi í framhaldsskóla. Þegar um börn er að ræða beri að leggja aukna áherslu á að tryggja réttláta málsmeðferð og leggja áherslu á sértæk, jákvæð og uppbyggileg viðbrögð frekar en refsingar. Meta þurfi viðeigandi viðbrögð í hverju máli fyrir sig.
    Meiri hlutinn áréttar að það hefur reynst erfitt í framkvæmd á grundvelli gildandi laga að bregðast við m.a. vegna hegðunar nemenda og hafa nýleg mál vegna alvarlegra brota nemenda gagnvart öðrum nemendum varpað ljósi á mikilvægi þess að ákvæði 33. gr. a í lögunum verði endurskoðað frá grunni. Tryggja þurfi aukin úrræði og stuðning við skóla til að bregðast við í einstökum málum, m.a. með því að veita skýrari ramma og leiðbeiningar. Má í því samhengi benda á leiðarvísi um viðbrögð við einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi (EKKO) á meðal nemenda í framhaldsskólum sem var unninn af mennta- og barnamálaráðuneyti í samvinnu við þverfaglegan samráðshóp og gefinn út 2024. Meiri hlutinn undirstrikar það sem fram kemur í greinargerð um að markmið ákvæðisins sé að kveða á um lausnamiðaða nálgun út frá stuðningsþörfum nemanda ef hegðun, skólasókn eða námsárangur er ófullnægjandi. Gengið er út frá því að skóla beri að reyna að leita orsaka og afla upplýsinga um stuðningsþarfir nemandans áður en gripið er til meira íþyngjandi viðbragða. Þar sem það á við eigi að gera áætlun um stuðning við nemanda sem getur eftir atvikum verið unnin á grundvelli laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, og jafnvel í samstarfi við aðra þjónustuveitendur. Meiri hlutinn telur mikilvægt að til staðar séu heimildir fyrir skóla til að bregðast við og beita viðurlögum ef upp koma alvarleg mál, til að mynda alvarleg ofbeldisbrot. Það sé skýrt að ávallt skuli gæta meðalhófs og beita vægasta úrræði á grundvelli heildarmats á hagsmunum nemandans en jafnframt verði heimilt að líta til hagsmuna annarra nemenda sem eftir atvikum hafa orðið fyrir áhrifum af broti en einnig þarf að virða réttindi þeirra til náms og velferðar. Meiri hlutinn tekur jafnframt undir þau sjónarmið umboðsmanns barna að tryggja þurfi réttláta málsmeðferð, einkum þegar um er að ræða börn og að meta þurfi viðeigandi viðbrögð í hverju máli fyrir sig. Ákvæði stjórnsýslulaga gilda þegar teknar eru íþyngjandi ákvarðanir á grundvelli 4. og 5. mgr. ákvæðisins til að bregðast við eða beita viðurlögum gagnvart nemendum. Meiri hlutinn telur að með ákvæðinu sé leitast við að gæta hagsmuna barna og stuðla að því að vægasta úrræði sé beitt á grundvelli meðalhófs og annarra grundvallarreglna stjórnsýsluréttar. Ávallt skuli hafa að leiðarljósi það sem er barni fyrir bestu þegar tekin er ákvörðun sem varðar barn.

Breytingartillögur.
Ábyrgð nemenda í starfi á vegum nemendafélaga (14. gr.).
    Með breytingum skv. 1. mgr. 14. gr. frumvarpsins er ætlunin að skýra skyldur nemenda í framhaldsskólum og að fram komi að þær taki einnig til starfs sem fari fram innan nemendafélaga, sem eru lögbundinn þáttur í starfsemi framhaldsskóla og starfa á ábyrgð skóla.
    Í umsögnum um málið frá Nemendafélagi Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Nemendafélagi Verzlunarskóla Íslands er lýst yfir áhyggjum af breytingunum, einkum hvað varðar það að nemendum beri að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks í starfi á vegum nemendafélaga og er bent á að með því sé verið að skerða sjálfstæði nemendafélaganna. Þá bendir umboðsmaður barna jafnframt á að það þurfi að orða ákvæðið með öðrum hætti þannig að skýrt sé að nemendum beri að fara eftir skólareglum í starfi sem fer fram á vegum nemendafélaga, t.d. umgengnisreglum, en að nemendur hafi fullt sjálfstæði við þátttöku í slíku starfi og þurfi ekki að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks. Þá er bent á mikilvægi þess að samráð sé haft við nemendafélög framhaldsskóla.
    Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið og telur mikilvægt að það verði skýrt að með ákvæðinu sé ekki ætlunin að draga úr sjálfstæði nemendafélaga í framhaldsskólum og gera nemendum skylt að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks í starfi á þeirra vegum. Markmið ákvæðisins sé aftur á móti að undirstrika að skyldur nemenda taka til starfs sem fer fram innan nemendafélaga sem eru lögbundinn þáttur í starfsemi framhaldsskóla og nemendur skulu fara eftir skólareglum í öllu starfi á ábyrgð skóla. Með vísan til framangreinds leggur meiri hlutinn til breytingu sem er ætlað að gera ákvæðið skýrara hvað þetta varðar og tengja starf á vegum nemendafélaga frekar við skólareglur framhaldsskóla.

    Þá leggur meiri hlutinn til breytingar sem eru tæknilegs eðlis og ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif heldur eingöngu að lagfæra orðalag og leiðrétta millivísun í a-lið 13. gr.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Í stað orðsins „Nám“ í 1. efnismálsl. a-liðar 9. gr. komi: Um nám.
     2.      Við a-lið 13. gr.
                  a.      Í stað vísunarinnar „3. mgr.“ í 1. efnismálsl. komi: 4. mgr.
                  b.      Í stað orðanna „úr grunnskóla“ í 2. efnismálsl. komi: í grunnskóla.
     3.      1. málsl. 1. efnismgr. 14. gr. orðist svo: Nemendum ber að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks í öllu því sem skólann varðar, fara eftir skólareglum, þar á meðal í starfi á vegum nemendafélaga framhaldsskóla, sbr. 39. gr., og fylgja almennum umgengnisreglum í samskiptum við starfsfólk og samnemendur.

Alþingi, 13. júní 2025.

Víðir Reynisson,
form.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,
frsm.
Guðmundur Ari Sigurjónsson.
Grímur Grímsson. Heiða Ingimarsdóttir.