Ferill 259. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 722  —  259. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga (aldursviðbót, launavísitala og tölfræðiupplýsingar).

Frá Ingibjörgu Isaksen.


    5. gr. orðist svo:
    62. gr. laganna orðast svo ásamt fyrirsögn:

Árleg samræming við launaþróun.

    Greiðslur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 42. gr. og fjárhæð skv. 28. gr., skulu á hverjum tíma nema að lágmarki 85% af lægsta mánaðarlaunataxta fyrir 18 ára og eldri samkvæmt kjarasamningum Starfsgreinasambands Íslands á almennum markaði. Gera skal grein fyrir útgjöldum vegna tekjutryggingar, sbr. 1. málsl., í frumvarpi til fjárlaga ár hvert.

Greinargerð.

    Hér er lögð til breyting á 62. gr. laga um almannatryggingar þannig að greiðslur nemi minnst 85% af lægsta launataxta fyrir 18 ára og eldri samkvæmt kjarasamningum Starfsgreinasambands Íslands. Greiðslur yrðu því samræmdar árlegri þróun lágmarkslauna á vinnumarkaði. Vísað er til Starfsgreinasambandsins vegna umfangsmikillar aðildar sambandsins að gerð kjarasamninga sem tryggir sérfræðiþekkingu og stöðugleika við ákvarðanir. Útgjöld vegna tekjutryggingar skulu tilgreind í fjárlagafrumvarpi ár hvert til að auka gagnsæi og tryggja lífeyrisþegum greiðslur í takt við almenna launaþróun.