Ferill 351. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 723 — 351. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018 (aflaverðmæti í reiknistofni).
Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.
Nefndinni barst 61 umsögn um málið auk tveggja minnisblaða frá atvinnuvegaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018, með það að markmiði að breyta viðmiði aflaverðmætis fyrir tiltekna nytjastofna sjávar þannig að viðmið í reiknistofni veiðigjalds endurspegli betur raunverulegt aflaverðmæti. Þá eru með frumvarpinu lagðar til breytingar á frítekjumarki álagningar hvers árs hjá gjaldskyldum aðilum til að koma til móts við litlar og meðalstórar útgerðir og botnfisksútgerðir sem ekki reka vinnslu.
Frumvarpinu er ætlað að mæta betur tilgangi innheimtu veiðigjalda skv. 1. gr. laganna, þ.e. að mæta kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu og til að tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar. Með frumvarpinu er leitast við að gera reiknistofn veiðigjalds gagnsærri en í núgildandi lögum.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
Líkt og að framan er rakið tók nefndin á móti fjölmörgum gestum við umfjöllun málsins, og barst henni mikill fjöldi umsagna, enda málið umfangsmikið og efni þess þjóðhagslega mikilvægt. Samráð nefndarinnar við umsagnaraðila og gesti hefur verið uppbyggilegt og hefur meiri hlutinn lagt sig fram við að eiga í uppbyggilegum samræðum við fjölbreyttan hóp aðila og hlustað af gaumgæfni á málefnaleg sjónarmið sem fram komu í gestakomum til nefndarinnar. Kallað hefur verið eftir breytingum á greinum frumvarpsins og leitast meiri hlutinn við að ræða þær helstu og bregðast við eftir því sem þörf þykir.
Samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs.
Við umfjöllun nefndarinnar og í umsögnum til hennar hafa komið fram sjónarmið þess efnis að leiðrétting á reiknistofni veiðigjalds kunni að draga úr samkeppnishæfni sjávarútvegs, ekki bara á alþjóðamörkuðum heldur einnig samkeppnishæfni greinarinnar um fjármagn á markaði innan lands. Komu þessar sömu athugasemdir fram í umsagnaferli sem átti sér stað við vinnslu atvinnuvegaráðuneytisins á frumvarpinu. Í umsögnum til nefndarinnar virðist þess misskilnings gæta að leiðrétting á reiknistofni veiðigjalds leiði til þess að fyrirtækjum verði gert skylt að miða við markaðsverð í viðskiptum sín á milli, meiri hlutinn áréttar að sú er ekki raunin. Sú leiðrétting á veiðigjaldi sem er grundvöllur frumvarpsins miðar að því að raunverulegt markaðsverð verði notað sem grunnur þess reiknistofns sem veiðigjald byggist á. Meiri hlutinn áréttar að milliverðlagning verður áfram heimiluð, sem og heimild aðila til kaupa og sölu á afla sín á milli, eða svokölluð lóðrétt samþætting veiða og vinnslu.
Samkeppnisumhverfi íslensks sjávarútvegs er alþjóðlegt og hlutdeild íslenskra fyrirtækja á alþjóðamarkaði lítil. Leiðir af því að íslensk fyrirtæki geta ekki stýrt verði nema að nokkru leyti með því að draga úr veiðum, heldur selja þau afla á markaðsverði á hverjum tíma.
Er það mat meiri hlutans að breytingar á reiknistofni veiðigjalds muni ekki draga úr samkeppnishæfni íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja enda haldist söluverðmæti afurða yfir kostnaðarverði. Þá er það mat meiri hlutans að efni umsagna gefi ekki tilefni til þess að ætla að það mat sem fylgir greinargerð frumvarpsins á samkeppnishæfni íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja sé rangt. Þvert á móti hefur meiri hlutinn í umfjöllun sinni orðið þess áskynja að samkeppnisstaða sjávarútvegs sé sterk. Því bera hvort tveggja vitni arðsemi atvinnugreinarinnar og hækkað hlutfall eiginfjárstöðu fyrirtækja í greininni á umliðnum árum. Samkvæmt úttekt Hagstofu á hag veiða og vinnslu (2023) var rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA) í fiskveiðum 24,9% og 18,3% í fiskvinnslu samanborið við meðalhlutfall um 10% hjá öðrum fyrirtækjum (að undanskilinni fjármála- og vátryggingastarfsemi). Er það mat meiri hlutans að það umframhagnaðarhlutfall verði trauðla með öðru skýrt, að meginefni, nema með arðsemi af nýtingu á auðlind sem búið er að takmarka aðgang að. Er það og mat meiri hlutans að þetta bendi jafnframt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki njóti nú þegar verulegs forskots á aðrar atvinnugreinar, þegar kemur að kostnaði við aðgang að framleiðsluefni (sjávarauðlindum) og að þau muni áfram njóta slíks forskots, líkt og fram kemur í áhrifamati frumvarpsins, jafnvel þótt reiknistofn veiðigjalda sé leiðréttur og þjóðin fái sanngjarnt og eðlilegt endurgjald fyrir nýtingu hennar sem verði reiknað á gagnsærri grunni. Að teknu tilliti til framangreindra þátta telur meiri hlutinn að afar ólíklegt verði að teljast að fjármálastofnanir og aðrir fjárfestar verði afhuga lánveitingum til vel rekinna sjávarútvegsfyrirtækja þó að þau greiði sanngjarnt afgjald fyrir not af auðlind.
Reiknistofn veiðigjalds.
Í umsögnum til nefndarinnar hefur komið fram gagnrýni á það hvort breyttur reiknistofn veiðigjalds endurspegli raunverulegt aflaverðmæti og á það að útfærsla frumvarpsins sé með þeim hætti að hún stuðli ekki að sjálfbærri og hagkvæmri nýtingu. Er það mat meiri hlutans að um sé að ræða grundvallarþátt málsins. Hefur meiri hlutinn, með aðstoð ráðuneytisins, lagt mat á þennan þátt málsins.
Í frumvarpinu er lagður til leiðréttur reiknistofn veiðigjalds bolfisks (þorsks og ýsu) og er lagt til að miðað verði við verð á fiskmörkuðum. Það verð sem fæst fyrir fyrrgreindar tegundir á mörkuðum er markaðsverð sem myndast við kaup og sölu ótengdra aðila á afla. Er það mat meiri hlutans að vandfundin sé betri skilgreining á hugtakinu markaðsverð. Verðið er það sama og þau fyrirtæki sem stunda eingöngu vinnslu sjávarafurða, en ekki veiðar, greiða fyrir afla. Er það mat meiri hlutans að hæpið sé að telja að fyrirtæki sem, í krafti lóðréttrar samþættingar, stunda bæði veiðar og vinnslu með því rekstrarlega hagræði sem af slíkri samþættingu hlýst, verði fyrir slíkum forsendubresti að hagkvæmni rekstrar breytist verulega, eða að rekstur verði ósjálfbær. Þá bendir meiri hlutinn á að við umfjöllun nefndarinnar hefur ekki verið lögð fram önnur raunhæf tillaga til útreiknings markaðsverðs bolfisks. Hafa margir umsagnaraðilar vísað til núverandi reiknireglu veiðigjalds, sem sömu umsagnaraðilar mótmæltu harðlega við setningu fyrri laga.
Hvað varðar reiknistofn veiðigjalds uppsjávarafla er ljóst að ekki er til staðar markaður sem endurspeglar markaðsverð á Íslandi. Í frumvarpinu er því notast við markaðsverð á uppsjávarafla í Noregi. Í umsögnum til nefndarinnar er þessari aðferð mótmælt og byggt á því að umhverfi veiða og vinnslu í Noregi sé ólíkt því sem hér þekkist, þá er því einnig haldið fram að eðlismunur sé á uppsjávarafla sem veiðist innan íslenskrar lögsögu og er landað hér á landi og þess afla sem veiðist innan norskrar lögsögu og landað er í Noregi. Með frumvarpinu er leitast við að ná fram raunverulegu verðmæti aflans. Er það mat meiri hlutans að meintur eðlismunur afla á Íslandi og í Noregi sé óverulegur. Í forsendum reiknistofns frumvarpsins er miðað við það verð sem fæst í Noregi á þeim tíma sem veiðar eru stundaðar á Íslandi, þ.e. að sumri, en ekki á þeim tíma þegar markaðsverð uppsjávartegunda er að jafnaði hæst, þ.e. að hausti. Er það því mat meiri hlutans að um sé að ræða sambærilegt verð fyrir sambærilega vöru, stærstur hluti aflans er nýttur með sambærilegum hætti í báðum löndum. Þó verður að taka til greina að lítils háttar munur er á nýtingu makríls í löndunum tveimur þar sem veiðitímabil makríls á Íslandi er að jafnaði fyrr á árinu en veiði í Noregi. Meiri hlutinn er meðvitaður um að þetta geti leitt af sér gæðamun á afla, sem er bundinn við sveiflur í fitumagni í afurðinni. Meiri hlutinn bendir á að þrátt fyrir framangreindan eðlismun hafa íslensk sjávarútvegsfyrirtæki náð góðum árangri í meðferð og vinnslu makríls, sést það glögglega í útflutningstölum, en árið 2023 voru yfir 70% af makríl flutt frosin úr landi. Að framangreindu virtu og til að koma til móts við þau sjónarmið sem fram komu í umsögnum leggur meiri hlutinn til breytingartillögu sem nánari grein verður gerð fyrir hér að aftan.
Í frumvarpinu notaði atvinnuvegaráðuneytið tilteknar forsendur þegar veiðigjöld fyrir þorsk og ýsu voru reiknuð aftur í tímann. Þeim forsendum er lýst í frumvarpinu. Við umfjöllun nefndarinnar hafa komið fram útreikningar sem leiða til nokkuð ólíkrar niðurstöðu en þeirrar sem ráðuneytið setti fram í frumvarpinu og eru þær niðurstöður jafnframt ólíkar innbyrðis. Á grundvelli vinnu nefndarinnar leggur meiri hlutinn til að forsendur og aðferðir við útreikning og álagningu veiðigjalds verði skýrðar þannig að ekki leiki vafi á því hvernig þeir útreikningar eru framkvæmdir. Nefndinni bárust útreikningar frá Skattinum og tók meiri hlutinn tillit til þeirra útreikninga sem þar er að finna við mótun breytingartillögu sinnar. Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til breytingartillögu sem nánari grein verður gerð fyrir hér að aftan.
Áhrif á sjávarbyggðir.
Fyrir nefndinni og í umsögnum til hennar hafa komið fram áhyggjur af mögulegum neikvæðum áhrifum frumvarpsins á sjávarbyggðir landsins. Meiri hlutinn hefur kynnt sér þær umsagnir vel, auk þess hefur meiri hlutinn kynnt sér þær umsagnir sem bárust í samráðsgátt stjórnvalda við vinnslu málsins, en þær eru að meginstefnu samhljóða.
Er það mat umsagnaraðila að leiðréttur reiknistofn veiðigjalds geti leitt til aukinnar samþjöppunar fyrirtækja, sem aftur leiði af sér að fyrirtækjum í vinnslu fækki og þau muni mögulega færa vinnslur sínar frá ákveðnum byggðarlögum. Geti það leitt til fækkunar starfa, bæði í vinnslu afurða en einnig afleiddra starfa, svo sem í þjónustu við útgerðir. Í umsögnum til nefndarinnar, í umfjöllun nefndarinnar, í greinargerð frumvarpsins og við vinnslu málsins í samráðsgátt stjórnvalda hefur verið fjallað um það að erfitt sé að greina bein áhrif frumvarpsins á ákvarðanir á rekstrarlegum grundvelli sem fyrirtæki kunna að taka á grundvelli breytts reiknistofns samkvæmt frumvarpinu. Að mati meiri hlutans eru mögulegar breytur sem taka þyrfti tillit til við útreikning slíks mats það margar að almennur ómöguleiki sé að spá fyrir um slíkt. Fyrir nefndinni og í umsögnum til hennar hafa komið fram áhyggjur sveitarfélaga sem byggja afkomu sína á sjávarútgerð. Nefndin hefur fjallað ítarlega um málið á síðustu vikum, fyrir nefndina hafa komið sérfræðingar með breiðan bakgrunn og telur meiri hlutinn málið vera vel upplýst, þar á meðal þann hluta málsins sem snýr að sjávarútvegssveitarfélögum. Er það mat meiri hlutans að ekkert bendi til þess að áhrif leiðréttingar á reiknistofni veiðigjalds verði meginbreyta í aukinni samþjöppun fyrirtækja í sjávarútvegi, sem leiða muni til aukinna áhrifa á hluta áðurnefndra sveitarfélaga, en hvetur atvinnuvegaráðuneytið til að fylgjast grannt með þróun mála og bregðast við ef þurfa þykir.
Með frumvarpinu er lagt til að veiðigjald verði reiknað út frá raunverulegu verðmæti afla, markaðsverði. Gjöld á þau verðmæti sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki skapa við vinnslu haldast óbreytt. Þau verða áfram 33% af hagnaði. Er það mat meiri hlutans að þær vinnslur sem starfa á traustum rekstrarlegum grundvelli muni gera það áfram. Þá er það von meiri hlutans að þær vinnslur þar sem rekstrarlegur grundvöllur hefur verið lakari muni rétta úr kútnum gefist svigrúm til þess. Meiri hlutinn ítrekar þó þá afstöðu sína að þær rekstrarlegu ákvarðanir sem sjávarútvegsfyrirtæki kunna að taka í framtíðinni eru ekki endilega háðar efni þessa frumvarps. Meiri hlutinn hvetur atvinnuvegaráðuneytið til að fylgjast vel með þróun mála og bregðast við ef þurfa þykir.
Samkvæmt fyrirliggjandi greiningum atvinnuvegaráðuneytisins borguðu tíu stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins um 60% af heildarinnheimtum veiðigjöldum ársins 2023. Nam þetta samtals um 7,6% af EBITDA-rekstrarhagnaði þeirra. Þeir tíu greiðendur sem þar á eftir koma greiddu í veiðigjöld 12% af EBITDA-rekstrarhagnaði og hjá næstu tíu námu greidd veiðigjöld 10,8% af EBITDA-rekstrarhagnaði. Er það því mat meiri hlutans að ljóst sé að umtalsverð verðmæti skapist við veiðar og fiskvinnslu, raunar nokkuð umfram það sem gengur og gerist í öðrum atvinnurekstri. Er það því jafnframt mat meiri hlutans að fullyrðingar um meintan forsendubrest rekstrar í íslenskum sjávarútvegi eigi tæplega við rök að styðjast.
Það er eigi að síður svo að samþjöppun og hagræðing í sjávarútvegi hefur verið veruleg á síðustu áratugum. Kostnaður þess hefur að miklu fallið á hinar mörgu fjölbreyttu sjávarútvegsbyggðir landsins. Áskoranir þeirra byggða hafa verið verulegar og það hefur síst hjálpað að íslenska ríkinu hefur verið þröngur stakkur sniðinn þegar kemur að því að efla slíkar byggðir. Er það mat meiri hlutans að sanngjarnt og réttlátt gjald af nýtingu sameiginlegra auðlinda sé ein grundvallarforsenda þess að búa ríkinu úrræði og slagkraft til að bregðast við þeim áskorunum sem hagræðing fyrirtækja kann að leiða af sér, m.a. fyrir sjávarútvegsbyggðir, hvort sem það verður gert á grundvelli nýsköpunar í atvinnurekstri, atvinnuuppbyggingar almennt eða með bættri byggðastefnu.
Að höfðu samráði við atvinnuvegaráðuneytið og í ljósi mögulegra áhrifa frumvarpsins á sjávarbyggðir telur meiri hlutinn rétt að gera breytingar á frumvarpinu. Leggur meiri hlutinn til að komið verði enn frekar til móts við lítil og meðalstór fyrirtæki með breytingum á frítekjumarki frumvarpsins. Leggur meiri hlutinn til, í samræmi við umsagnir, að gengið verði lengra en gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Frekari grein verður gerð fyrir breytingartillögu meiri hlutans hér að aftan.
Nýsköpun í sjávarútvegi.
Fyrir nefndinni og í umsögnum til hennar hefur þeim sjónarmiðum verið haldið á lofti að leiðrétting á reiknistofni veiðigjalds kunni að hafa þau afleiddu áhrif að hvatar til nýsköpunar og þróunar í sjávarútvegi minnki eða hverfi jafnvel alfarið. Þá hafa umsagnaraðilar viðrað þau sjónarmið að breytingar á reiknistofni veiðigjalds muni leiða til minni fjárfestingar í búnaði og öðru sem til þarf til veiða og vinnslu. Í umsögnum virðist almennt byggt á þeirri forsendu að leiðréttur reiknistofn veiðigjalds muni leiða til þess að samþættingu veiða og vinnslu verði hætt. Leiði það til aukningar á útflutningi óunnins afla, svokallaðs gámafisks, og aukinnar samþjöppunar sjávarútvegsfyrirtækja. Hér að framan hafa verið rakin allítarlega þau sjónarmið meiri hlutans og þær staðreyndir frumvarpsins að áfram verði heimilað að samþætta veiðar og vinnslu. Samkeppnisforskot íslensks sjávarútvegs hvað þetta varðar mun því haldast óbreytt. Íslenskur sjávarútvegur hefur náð markverðum árangri í þróun tæknilegra lausna við vinnslu afurða. Hefur sú þróun átt sér stað samhliða þróun á umgjörð íslensks sjávarútvegs. Aukin hagræðing og von um enn meiri ábata er megindriffjöður þess árangurs sem náðst hefur. Önnur mikilvæg forsenda nýsköpunar og þróunar er dyggilegur stuðningur íslenska ríkisins, sem greitt er fyrir, m.a. með innheimtu veiðigjalda. Á undanförnum árum hafa íslenskar útgerðir og vinnslur náð miklum árangri í þróun verðmæta úr þeim hluta sjávarafla sem áður taldist verðlítill eða jafnvel verðlaus, má þar nefna allt frá sárabindum til íblöndunarefna í gosdrykki. Aðgangur að þeim hluta hráefnis verður áfram til staðar, enda samþætting veiða og vinnslu áfram heimil.
Meiri hlutinn bendir á að allir þeir sem stunda atvinnustarfsemi, hvort sem er sjávarútvegsfyrirtæki eða aðrir, fjárfesta í rannsóknum, búnaði og annarri þróun, með það að markmiði að tryggja eða eftir atvikum afla sér meiri ábata af rekstri. Er það mat meiri hlutans að sanngjarnt og eðlilegt veiðigjald hafi hingað til ekki gert þróun vinnslu og annarrar tækni sem og fjárfestingu í búnaði óarðsama, frumvarpið muni í engu breyta þeirri grundvallarforsendu alls rekstrar.
Samræmi við stjórnarskrá.
Í umsögnum og við umfjöllun nefndarinnar hafa verið gerðar athugasemdir við það að breytingar þær sem lagðar eru til með frumvarpinu kunni að stangast á við stjórnarskrána og alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins, einkum hvað varðar heimildir til innheimtu skatts og þau viðmið sem frumvarpið notast við til mats á raunverulegu aflaverðmæti.
Með frumvarpinu er lagt til að breyta reiknistofni veiðigjalds svo að hann endurspegli betur raunveruleg aflaverðmæti og tryggi þannig þjóðinni sanngjarnt gjald fyrir nýtingu á sjávarauðlindinni. Samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, skal skattamálum skipað með lögum, sbr. 40. og 77. gr. Af dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands má ráða að svigrúm löggjafans til mats á því hvað teljist hæfilegir skattar sé rúmt. Þá hefur Hæstiréttur jafnframt slegið því föstu að veiðigjald sé í eðli sínu skattur. Meiri hlutinn telur ástæðu til að árétta það að þrátt fyrir að veiðigjald sé skattur í skilningi laga og stjórnarskrár, er hann eðlisólíkur öðrum hefðbundnum sköttum og gjöldum, svo sem tekjuskatti, virðisaukaskatti, fasteignagjöldum og svo mætti lengi telja. Sá skilningur löggjafans að veiðigjald sé gjald fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind sést mjög skilmerkilega á því að gjaldið er frádráttarbært frá öðrum sköttum, sem hluti rekstrarkostnaðar.
Það er mat meiri hlutans að eðlilegt sé að innheimta gjald fyrir nýtingu sameiginlegrar auðlindar þjóðarinnar. Þá telur meiri hlutinn sérstaka ástæðu til að nefna að gagnrýni á að innheimt sé veiðigjald hefur ekki komið fram í umsögnum, eða annarri vinnu nefndarinnar. Skoðanir kunna þó að vera skiptar um hversu há slík gjöld eigi að vera. Meiri hlutinn ítrekar að arðsemi sjávarútvegs er veruleg og sömuleiðis eigið fé greinarinnar. Á tíu ára tímabili milli 2012 og 2022 jókst eigið fé íslensks sjávarútvegs úr 106 milljörðum kr. í 449 milljarða kr. samkvæmt upplýsingum úr gagnagrunni Deloitte um afkomu sjávarútvegsins frá október 2024. Þá kemur fram í sama gagnagrunni að á árunum 2019 til 2023 hafi útgreiddur arður úr greininni verið 95 milljarðar kr. Það má því ætla að svigrúm greinarinnar til greiðslu veiðigjalds á sanngjörnum grunni sé verulegt. Þá telur meiri hlutinn einnig ástæðu til að nefna að sjávarútvegsfyrirtæki starfa á samkeppnismarkaði, rétt eins og önnur fyrirtæki. Eðlilegt er og sanngjarnt að greitt sé fyrir aðföng með gagnsæjum og fyrirsjáanlegum hætti, en ekki með þeim hætti að fyrirtæki ákveði sjálf hvert viðmið gjaldsins eigi að vera.
Þá er það jafnframt mat meiri hlutans að það reikniviðmið sem lagt er til endurspegli betur raunverulegt aflaverðmæti, sé málefnalegt, sé byggt á almennum mælikvörðum og uppfylli meðalhóf. Frumvarpið er að mati meiri hlutans skýrt, tekur mið af jafnræðisreglu og sú gjaldtaka sem lögð er til er fyrirsjáanleg. Reiknistofn veiðigjaldsins er einfaldur, hlutlægur og gagnsær. Þá er það mat meiri hlutans að sú aðferð sem lögð er til með frumvarpinu við að umreikna verðmæti í erlendum gjaldmiðli á árlegum grunni sé skýr og málefnaleg. Að mati meiri hlutans samræmist frumvarpið ákvæðum stjórnarskrárinnar.
Breytingartillögur meiri hlutans.
Reiknistofn (1. gr.).
Meiri hlutinn leggur til þríþætta breytingu á 1. gr. frumvarpsins.
Í fyrsta lagi er um að ræða breytingu sem snýr að lönduðum afla fiskiskipa sem ekki teljast frystiskip. Leggur meiri hlutinn til að þegar 50% eða meira af lönduðum afla skv. 3. málsl. 1. mgr. 5. gr., í einstakri tegund eru frystar afurðir skuli lækka aflaverðmæti þeirrar tegundar þess skips um 20%. Er breytingunni ætlað að skýra betur hvernig fara skuli með frystan afla skipa sem falla ekki undir skilgreininguna frystiskip enda sé kostnaður og tekjur vegna veiða þeirra notaður til útreiknings veiðigjalda.
Í öðru lagi er um að ræða breytingu sem snýr að meðalverði og aflaverðmæti makríls. Er það mat meiri hlutans að rétt sé að miða áfram við þann reiknistofn sem lagður er til í frumvarpinu en draga 20% af markaðsverði í Noregi. Telur meiri hlutinn að sú breyting komi til móts við þau sjónarmið sem að framan eru reifuð um verðmat og verðgildi makríls við Íslandsstrendur samanborið við Noreg.
Í þriðja lagi leggur meiri hlutinn til tvær breytingar á 2. tölul. 2. efnismgr. b-liðar 1. gr. frumvarpsins til að skýra betur hvernig standa skuli að útreikningi og álagningu veiðigjalds. Fyrri breytingin lýtur að því að fella brott það að miða skuli við meðaltal hvers mánaðar, en bent hefur verið á að sú aðferðafræði sé óþarflega flókin og skili ekki endilega niðurstöðu sem endurspegli betur markaðsverð. Seinni breytingin lýtur að því að skýra betur hvaðan gögn sem varða veiðimagn og verð eru fengin. Í því samhengi leggur meiri hlutinn til að gögn séu fengin frá Verðlagsstofu skiptaverðs.
Álagning (2. gr.).
Fyrir nefndinni hafa komið fram áhyggjur af áhrifum frumvarpsins á smærri útgerðir. Í ljósi þeirra þykir meiri hlutanum rétt að taka í auknum mæli tillit til þeirra sjónarmiða sem fram koma í umsögnum þar að lútandi og leggur til breytingu á 2. gr. frumvarpsins.
Meiri hlutinn leggur til að miðað verði við að frítekjumark vegna þorsks og ýsu verði 65% af fyrstu 15 millj. kr. og 45% af næstu 55 millj. kr. hvers árs hjá hverjum gjaldskyldum aðila. Telur meiri hlutinn þessa breytingu koma vel til móts við þær áhyggjur sem viðraðar hafa verið í umsögnum til nefndarinnar og varða smærri sjávarútvegsfyrirtæki.
Í minnisblaði atvinnuvegaráðuneytisins til nefndarinnar, dags. 13. júní sl., eru settar fram töflur þar sem fram koma upplýsingar um núverandi og reiknað frítekjumark samkvæmt frumvarpinu. Töflurnar eru teknar upp í nefndarálitið til skýringar.
Tafla 1: Núverandi og reiknað frítekjumark samkvæmt frumvarpi.
| Ár | Frítekjumark skv. núgildandi lögum | Reiknað frítekjumark skv. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar janúar 2025 | Frítekjumark fyrir allar tegundir aðrar en þorsk og ýsu |
Frítekjumark fyrir þorsk og ýsu | Samtals hámark frítekjumarks |
| Grunnfjárhæð | 6.000.000 | 9.000.000 | 50.000.000 | ||
| Hlutfall af álagningu | 40% | 40% | 40% | ||
| 2021 | 2.732.436 | 2.729.860 | 2.774.161 | 15.412.006 | 18.186.167 |
| 2022 | 2.872.115 | 2.853.209 | 2.899.512 | 16.108.398 | 19.007.909 |
| 2023 | 3.146.865 | 3.121.674 | 3.172.333 | 17.624.074 | 20.796.408 |
| 2024 | 3.390.432 | 3.368.372 | 3.423.035 | 19.016.858 | 22.439.893 |
| 2025 | 3.537.536 | 3.539.163 | 3.596.597 | 19.981.093 | 23.577.690 |
| 2025 | 3.600.000 | 20.000.000 | 23.600.000 | ||
Tafla 2: Innheimt núverandi veiðigjald og áætlað innheimt veiðigjald samkvæmt frumvarpi eftir flokkun greiðenda samkvæmt núverandi innheimtu.
| Flokkun greiðenda eftir núverandi innheimtu veiðigjaldi | 2023 | 2024 | ||||
| Núverandi innheimt | Áætlun innheimtu skv. frumvarpi | Áætluð hlutfallsleg hækkun | Núverandi innheimt | Áætlun innheimtu skv. frumvarpi | Áætluð hlutfallsleg hækkun | |
| Undir 1 millj. kr. | 156.260.579 | 287.791.716 | 84,17% | 222.705.844 | 396.978.062 | 78,25% |
| 1–10 millj. kr. | 194.092.191 | 294.508.198 | 51,74% | 183.752.646 | 290.301.971 | 57,99% |
| 10–50 millj. kr. | 279.674.618 | 339.877.185 | 21,53% | 308.064.060 | 363.016.908 | 17,84% |
| 50–100 millj. kr. | 1.692.601.493 | 2.191.827.787 | 29,49% | 1.817.444.657 | 2.425.031.139 | 33,43% |
| 100–250 millj. kr. | 1.427.170.672 | 2.327.216.948 | 63,07% | 1.575.551.604 | 2.634.258.493 | 67,20% |
| 250–500 millj. kr. | 2.177.454.924 | 3.972.225.380 | 82,43% | 2.897.534.373 | 5.119.460.558 | 76,68% |
| 500–1000 millj. kr. | 3.022.711.771 | 5.889.052.692 | 94,83% | 3.270.889.904 | 6.643.130.235 | 103,10% |
| Yfir 1000 millj. kr. | 1.114.609.165 | 2.139.243.795 | 91,93% | – | – | – |
| Samtals | 10.064.575.413 | 17.441.743.700 | 73,30% | 10.275.943.089 | 17.872.177.366 | 73,92% |
Tafla 3: Núverandi og reiknað frítekjumark samkvæmt tillögu að þrepaskiptu frítekjumarki.
| Ár | Frítekjumark skv. núgildandi lögum | Reiknað frítekjumark skv. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar janúar 2025 | Frítekjumark fyrir allar tegundir aðrar en þorsk og ýsu | Frítekjumark fyrir þorsk og ýsu (lægra þrep) | Frítekjumark fyrir þorsk og ýsu (efra þrep) | Samtals hámark frítekjumarks |
| Grunnfjárhæð | 6.000.000 | 9.000.000 | 15.000.000 | 55.000.000 | ||
| Hlutfall af álagningu | 40% | 40% | 65% | 45% | ||
| 2021 | 2.732.436 | 2.729.860 | 7.513.353 | 19.072.357 | 15.412.006 | 26.585.710 |
| 2022 | 2.872.115 | 2.853.209 | 7.852.844 | 19.934.142 | 16.108.398 | 27.786.986 |
| 2023 | 3.146.865 | 3.121.674 | 8.591.736 | 21.809.792 | 17.624.074 | 30.401.528 |
| 2024 | 3.390.432 | 3.368.372 | 9.270.718 | 23.533.362 | 19.016.858 | 32.804.081 |
| 2025 | 3.537.536 | 3.539.163 | 9.740.783 | 24.726.603 | 19.981.093 | 34.467.386 |
| 2025 | 9.750.000 | 24.750.000 | 20.000.000 | 34.500.000 |
Tafla 4: Innheimt núverandi veiðigjald og áætlað innheimt veiðigjald samkvæmt tillögu að þrepaskiptu frítekjumark eftir flokkun greiðenda samkvæmt núverandi innheimtu.
| Flokkun greiðenda eftir núverandi innheimtu veiðigjaldi | 2023 | 2024 | ||||
| Núverandi innheimt | Áætlun innheimtu skv. tillögu | Áætluð hlutfallsleg hækkun | Núverandi innheimt | Áætlun innheimtu skv. tillögu | Áætluð hlutfallsleg hækkun | |
| Undir 1 millj. kr. | 156.260.579 | 200.710.424 | 28,45% | 222.705.844 | 273.991.242 | 23,03% |
| 1–10 millj. kr. | 194.092.191 | 235.134.289 | 21,15% | 183.752.646 | 214.686.230 | 16,83% |
| 10–50 millj. kr. | 279.674.618 | 325.816.084 | 16,50% | 308.064.060 | 329.519.007 | 6,96% |
| 50–100 millj. kr. | 1.692.601.493 | 2.211.384.954 | 30,65% | 1.817.444.657 | 2.327.562.710 | 28,07% |
| 100–250 millj. kr. | 1.427.170.672 | 2.507.556.256 | 75,70% | 1.575.551.604 | 2.620.699.314 | 66,34% |
| 250–500 millj. kr. | 2.177.454.924 | 4.317.165.342 | 98,27% | 2.897.534.373 | 5.410.767.005 | 86,74% |
| 500–1000 millj. kr. | 3.022.711.771 | 6.488.152.954 | 114,65% | 3.270.889.904 | 6.522.817.448 | 99,42% |
| Yfir 1000 millj. kr. | 1.114.609.165 | 2.268.348.948 | 103,51% | – | – | |
| Samtals | 10.064.575.413 | 18.554.269.250 | 84,35% | 10.275.943.089 | 17.700.042.957 | 72,25% |
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Við 1. gr.
a. 3. málsl. 1. efnismgr. b-liðar orðist svo: Þegar 50% eða meira af lönduðum afla fiskiskips, sem ekki telst frystiskip skv. 2. málsl. 1. mgr., í einstakri tegund eru frystar afurðir skal lækka aflaverðmæti þeirrar tegundar þess skips um 20%.
b. Í stað orðanna „og birta opinberlega“ í 1. tölul. 2. efnismgr. b-liðar komi: umreikna í íslenskar krónur og birta meðalverð opinberlega og skal ríkisskattstjóri leggja þær upplýsingar til grundvallar útreikningi veiðigjalds.
c. Við c-lið 1. tölul. 2. efnismgr. b-liðar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Aflaverðmæti makríls skal miðast við 80% af aflaverðmæti tegundarinnar.
d. 2. tölul. 2. efnismgr. b-liðar orðist svo: Fiskistofa skal reikna aflaverðmæti fyrir þorsk og ýsu og birta vegið meðaltalsverð slægðs og óslægðs afla á fiskmarkaði á 12 mánaða tímabil sama ár og reiknistofn miðast við. Fiskistofa skal við útreikninginn notast við upplýsingar frá Verðlagsstofu skiptaverðs. Fiskistofu ber að birta útreikningana opinberlega og skal ríkisskattstjóri leggja þá til grundvallar útreikningi veiðigjalds.
2. 2. efnismálsl. a-liðar 2. gr. orðist svo: Frítekjumark vegna þorsks og ýsu skal vera 65% af fyrstu 15 millj. kr. og 45% af næstu 55 millj. kr. álagningar veiðigjalds hvers árs hjá hverjum gjaldskyldum aðila.
Alþingi, 14. júní 2025.
| Sigurjón Þórðarson, form. |
Eiríkur Björn Björgvinsson, frsm. |
Eydís Ásbjörnsdóttir. |
| María Rut Kristinsdóttir. | Lilja Rafney Magnúsdóttir. | Vilborg Kristín Oddsdóttir. |