Ferill 259. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 725 — 259. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga (aldursviðbót, launavísitala og tölfræðiupplýsingar).
Frá 1. minni hluta velferðarnefndar.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
Fyrir nefndinni lýstu umsagnaraðilar yfir efasemdum um 5. gr. frumvarpsins þar sem lagt er til að ákvörðun um breytingar á greiðslum almannatrygginga taki mið af launavísitölu í stað launaþróunar eins og mælt er fyrir um í 62. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007. Í umsögn Samtaka atvinnulífsins kemur m.a. fram að þróun launavísitölu hafi sögulega verið töluvert umfram almennar kjarasamningsbundnar launahækkanir og kostnaðarmat kjarasamninga. Þá segir í umsögninni að tvöföld trygging bóta með beintengingu við vísitölu stuðli að ósjálfbærri útgjaldaaukningu og þróun bóta umfram þá tekjuaukningu sem launafólk fær í sinn hlut og er þróun bóta almannatrygginga umfram þróun launa til þess fallin að draga úr hvata til þátttöku á vinnumarkaði. Í umsögn ASÍ kemur fram að sambandið telji að þær breytingar sem lagðar eru til muni leiða til þess að greiðslur almannatrygginga muni dragast aftur úr lágtekjuhópum, og bent á það að þau sjónarmið hafi áður komið fram í umsögnum um fjárlög. Það sé óásættanlegt að kjör elli- og örorkulífeyrisþega dragist aftur úr öðrum lágtekjuhópum og mælst til þess að greiðslur almannatrygginga taki hækkunum til samræmis við lægstu laun á vinnumarkaði.
Fyrsti minni hluti gerir engar athugasemdir við markmið frumvarpsins, þ.e. að tryggja að kjör elli- og örorkulífeyrisþega dragist ekki aftur úr öðrum hópum. Aftur á móti er sú leið sem lögð er til með frumvarpinu til að ná því markmiði því marki brennd að um 20% útgjalda ríkisins aukast sjálfkrafa á ári hverju án þess að tekjur fylgi eftir eða mat fari fram á heildaráhrifum. Verði frumvarpið að lögum verður aukin hætta á halla í ríkisrekstri og skuldasöfnun og er þannig gengið gegn meginmarkmiðum fjármálastefnu og laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Verði frumvarpið að lögum verður auk þess líkast til dregið úr möguleikum stjórnvalda til að bregðast við framtíðarefnahagssveiflum. Þá er varfærni eitt af grunngildum laganna, en í því felst að mikilvægt er að forðast ákvarðanir sem hafa ófyrirséðar afleiðingar, rétt eins og mælt er fyrir um í 5. gr. frumvarpsins.
Fyrsti minni hluti tekur jafnframt undir erindi fjármála- og efnahagsráðherra um málið þar sem fram kemur að ekki liggi fyrir fullnægjandi greiningar á áhrifum breytingarinnar.
Fyrsti minni hluti áréttar að ábyrg hagstjórn er eitt helsta hlutverk stjórnvalda hverju sinni og leggur áherslu á mikilvægi vandaðrar lagasetningar er varðar efnahagsmál. Nauðsynlegt er að allar ákvarðanir stjórnvalda þeim tengdar séu teknar að vel ígrunduðu máli og eftir fullnægjandi mat á áhrifum. Það hefur ekki verið gert við undirbúning þessa frumvarps hvað 5. gr. frumvarpsins varðar. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að áætluð útgjaldaaukning verði 3–4 milljarðar kr. á ári að meðaltali, en hins vegar geti munurinn orðið „mun meiri“ enda kunna fjárhæðir greiðslna að sveiflast mikið á milli ára verði þær bundnar við launavísitölu. Þá bendir allt til þess að frumvarpið muni valda verðbólguþrýstingi verði það að lögum, enda nær fyrirséð útgjaldahækkun til yfir 60.000 einstaklinga.
Breytingartillaga.
Þær breytingar sem felast í 5. gr. frumvarpsins ganga í berhögg við meginmarkmið laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Þá liggja jafnframt ekki fyrir fullnægjandi greiningar á áhrifum frumvarpsins hvað 5. gr. varðar.
Í álitsgerð fjármálaráðs um fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 kemur fram að í 5. gr. frumvarpsins sé kveðið á um „grundvallarbreytingu á fjármögnun almannatryggingakerfisins“ og ætla megi að hún geti haft „veruleg áhrif á sjálfbærni opinberra fjármála til framtíðar“. Þá geldur fjármálaráð varhuga við því að tengja greiðslur almannatrygginga við vísitölu sem er óháð eðli almannatrygginga.
Í ljósi varnaðarorða hagaðila og sérfræðinga sem hafa tjáð sig um frumvarpið er það mat 1. minni hluta að ótækt sé að frumvarpið verði að lögum óbreytt.
Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
5. gr. falli brott.
Alþingi, 16. júní 2025.
| Njáll Trausti Friðbertsson, frsm. |
Rósa Guðbjartsdóttir. |