Ferill 474. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 726 — 474. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um uppbyggingu flugvalla til varna landsins.
Frá Njáli Trausta Friðbertssyni.
1. Hefur ráðuneytið mótað stefnu varðandi uppbyggingu flugvalla með tilliti til varna landsins?
2. Hvaða flugvellir sér ráðherra fyrir sér að gætu hentað varðandi uppbyggingu með tilliti til varna landsins?
3. Væri hægt að fjármagna slíka uppbyggingu flugvalla með hluta af 1,5% landsframleiðslu sem ætlað er að verja til uppbyggingar innviða vegna öryggis- og varnarmála?
4. Sér ráðherra fyrir sér að uppbygging flugvallanna verði bæði í þágu hernaðarlegra þarfa og almennra nota, svo sem í almennu millilandaflugi?
Skriflegt svar óskast.