Ferill 475. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 727 — 475. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um þyrlukost Landhelgisgæslunnar.
Frá Njáli Trausta Friðbertssyni.
1. Hvort telur ráðherra skynsamlegra fyrir Landhelgisgæsluna að leigja eða eiga þyrlur til lengri tíma?
2. Hafa mögulegar fjármögnunarleiðir við kaup á þyrlum verið skoðaðar?
3. Kæmi til greina að kaup á þyrlum fyrir Landhelgisgæsluna yrðu hluti af þeim 1,5% af landsframleiðslu sem stendur til að setja í uppbyggingu innviða vegna öryggis- og varnarmála?
4. Hefur kostnaðargreining farið fram þar sem borinn er saman rekstrar- og viðhaldskostnaður annars vegar á þyrlum í eigu Landhelgisgæslunnar og hins vegar við áframhaldandi leigu? Ef svo er, hver er niðurstaðan?
5. Hvaða viðmið gilda um búnað þyrlna Landhelgisgæslunnar í samanburði við búnað þyrlna sambærilegra stofnana í öðrum NATO-ríkjum? Er búnaðurinn sambærilegur?
6. Hvað hefur Landhelgisgæslan haft margar þyrlur til umráða á hverju ári frá árinu 2006 þegar bandaríski herinn fór frá Keflavík?
7. Metur ráðherra núverandi ástand þyrlukosts Landhelgisgæslunnar fullnægjandi með tilliti til fjölda þyrlna, staðsetningar þeirra og verkefna sem Landhelgisgæslunni er ætlað að sinna?
Skriflegt svar óskast.