Ferill 259. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 728 — 259. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga (aldursviðbót, launavísitala og tölfræðiupplýsingar).
Frá 2. minni hluta velferðarnefndar.
Annar minni hluti leggst gegn tengingu greiðslna almannatrygginga við launavísitölu og þeirri sjálfvirknivæðingu ríkisútgjalda sem það felur í sér. 2. minni hluti leggst einnig gegn þeim áformum að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar ríkisins. 2. minni hluti gagnrýnir að ekki hafi verið tekið tillit til ábendinga í umsögnum sem komu fram um 5. gr. frumvarpsins og um niðurlagningu stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins.
Engin gögn hafa komið fram sem styðja það að leggja þurfi stjórn Tryggingastofnunar ríkisins niður, auk þess hafa ekki verið lagðar fram raunhæfar fyrirætlanir um fyrirkomulag aðhalds með rekstri stofnunarinnar. Þótt virða megi viðleitni félags- og húsnæðismálaráðherra til þess að draga úr ríkisútgjöldum með niðurfellingu stjórnar sem sögð er kosta 10 millj. kr. á ári þá hlýtur að þurfa að setja þann kostnað í samhengi við þau heildarútgjöld sem Tryggingastofnun ríkisins hefur umsjón með, en stofnunin veltir um 200 millj. kr. Því ætti stjórnin að hafa eftirlit með stofnuninni. Að mati 2. minni hluta skiptir máli að slíkri stofnun sé skipuð stjórn sem hafi afmarkað hlutverk gagnvart starfsemi stofnunarinnar og að sú stjórn heyri undir ráðherra.
Dæmi eru um stofnanir þar sem stjórnir hafa verið lagðar niður með sama hætti og í sama tilgangi og hér um ræðir, þ.e. að ráðherra einbeiti sér í ríkari mæli að eftirliti með starfseminni. Stjórn ÁTVR var lögð niður með lögum árið 2011 og fjármála- og efnahagsráðherra faldar skyldur stjórnar. Það hefur margítrekað komið í ljós að ráðherra sinnir ekki þeirri skyldu og lætur sig t.d. ekki varða viðskiptahætti stofnunarinnar. Nýleg lögbrot ÁTVR að þessu leyti, sem dómstólar hafa fjallað um og staðfest sem slík, hafa ekki í neinu hreyft við fjármála- og efnahagsráðherra sem hefur látið átölulausa viðskiptahætti ÁTVR og viðheldur ólögmætu ástandi löngu eftir uppkvaðningu dóms um lögbrot.
Tenging greiðslna almannatrygginga við launavísitölu (5. gr.).
Í umsögn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) um frumvarpið kemur fram að ASÍ telji ekki þörf á að breyta lögum þannig að þróun almannatrygginga sé fest við launavísitölu. Aðferðin sem lögð er til með lagabreytingunni rúmist innan núverandi laga. ASÍ telur eðlilegt að bætur almannatrygginga fylgi þróun lægstu launa til að tryggja að kjör elli- og örorkulífeyrisþega dragist ekki aftur úr öðrum hópum. ASÍ bendir á að í lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, segi í 62. gr. um árlegar breytingar fjárhæða að greiðslur almannatrygginga „skul[i] breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs“. ASÍ telur að það að festa lífeyri almannatrygginga við þróun launavísitölu veki spurningar bæði tæknilegs eðlis og um hvort aðferðin þjóni markmiðum sínum. Í umsögninni segir að festing almannatrygginga við launavísitölu leiði til þess að bætur almannatrygginga dragist aftur úr lágtekjuhópum eins og ASÍ hefur endurtekið vakið athygli á í umsögnum um fjárlög.
Í umsögn Samtaka atvinnulífsins (SA) kemur fram að laun séu endurgjald fyrir verðmætasköpun. Bætur almannatrygginga eigi að tryggja framfærslu. SA benda á að ef tengja á bætur almannatrygginga við launavísitölu verði að hafa í huga að þróun launavísitölu hefur sögulega verið töluvert umfram almennar kjarasamningsbundnar launahækkanir eða kostnaðarmat kjarasamninga. Þessi þróun hafi stuðlað að meiri verðbólgu og hærra vaxtastigi en ella og hafi því um langa hríð verið ein stærsta efnahagslega áskorun landsins. SA benda á að fyrirliggjandi tillögur séu að bætur almannatrygginga þróist umfram launavísitölu til lengri tíma litið og auki því enn frekar á vandann.
Viðskiptaráð sendi umsögn og hefur sent umsögn á fyrri stigum málsins en leggst gegn breytingunni um að greiðslur almannatrygginga fylgi launavísitölu í stað launaþróunar þar sem segir að hún muni þyngja byrðar vinnandi fólks þegar síst skyldi, hraða varanlega útgjaldavexti hins opinbera og veikja hvata til þátttöku á vinnumarkaði. Viðskiptaráð telur að breytingin gangi í berhögg við yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar um minnkun verðbólgu og lækkun vaxta.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti sendi nefndinni minnisblað þar sem segir að tenging greiðslna almannatrygginga við launavísitölu geti leitt til sjálfvirkrar aukningar útgjalda, óháð stöðu ríkisfjármála. Það geti dregið úr möguleikum stjórnvalda til að forgangsraða fjármunum til annarra verkefna og stangast á við markmið um sjálfbærni ríkissjóðs til lengri tíma þar sem framtíðarútgjöld aukist sjálfkrafa án þess að tekjur fylgi eftir eða mat fari fram á heildaráhrifum. Í minnisblaðinu segir jafnframt að með því að festa hækkanir greiðslna almannatrygginga við þróun launavísitölu, án þess að tekið sé mið af breyttum aðstæðum eða tekjustofnum ríkisins, geti jafnframt dregið úr möguleikum stjórnvalda til að bregðast við efnahagssveiflum.
Niðurlagning stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins.
Í umsögn ASÍ um að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að sambandið telji það óráðlegt og segir í umsögninni að betur færi á því að skilgreina hlutverk stjórnar frekar og rýna hvernig skipað sé í hana. Jafnframt gerir ASÍ athugasemdir í umsögn sinni við að lagabreytingatillaga um að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar ríkisins hafi ekki farið í gegnum samráðsferli stjórnvalda. ASÍ styður ekki tillögu um að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar ríkisins þar sem komið hefur verið inn á hagræðingu sem hlytist af því að leggja niður stjórnina og gerir ASÍ ekki athugasemdir við að fella stjórnarlaun niður.
Alþingi, 16. júní 2025.
Sigríður Á. Andersen.