Ferill 388. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 729 — 388. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022 (öryggi og starfsumhverfi).
Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti, ÖBÍ réttindasamtökum, Blindrafélaginu, Neytendasamtökunum, Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra, Bifreiðastjórafélaginu Frama, Bifreiðastöðinni Hreyfli, Samtökum atvinnulífsins, Viðskiptaráði Íslands, Neytendastofu, Samgöngustofu, Samkeppniseftirlitinu og Hopp leigubílum ehf.
Nefndinni bárust níu umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, og lagt til að felld verði brott heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubifreiðastöð án starfsleyfis leigubifreiðastöðvar þar sem ein leigubifreið sem hann er skráður eigandi eða umráðamaður að hefur afgreiðslu. Verður þar með stöðvaskyldu komið á að nýju þar sem rekstrarleyfishafa er skylt að hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð sem fengið hefur starfsleyfi hjá Samgöngustofu. Auk þess eru lagðar til breytingar sem lúta m.a. að auknum skyldum leigubifreiðastöðva varðandi upplýsingaöflun, varðveislu gagna og að tryggja sanngjarna og gagnsæja verðlagningu og farveg fyrir kvartanir neytenda yfir verði og gæðum þjónustu. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er nú að störfum starfshópur um endurskoðun laga um leigubifreiðaakstur sem mun skila tillögum að breytingum haustið 2025. Til að bregðast við stöðunni á leigubifreiðamarkaði ákvað innviðaráðherra að leggja fram frumvarp þetta þar sem lögð yrðu til fyrstu skref í átt til breytinga á lögunum.
Umfjöllun nefndarinnar.
Aukið öryggi farþega.
Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er tilgangur þess að tryggja öryggi farþega og efla þannig traust almennings til leigubifreiðaaksturs. Þá er því ætlað að bregðast við þeirri óviðunandi stöðu sem upp er komin á leigubifreiðamarkaði hér á landi. Í umsögnum um málið komu fram skiptar skoðanir á því hvort þörf væri á frumvarpinu til að auka öryggi farþega eða hvort það fengist með öðrum leiðum. Annars vegar var bent á að stöðvaskyldan sem lögð væri til með frumvarpinu gæfi færi á virku eftirliti með starfsgreininni og skráningu ferða og upplýsinga. Hins vegar var bent á að þá stöðu sem upp væri komin mætti frekar rekja til veikrar framkvæmdar og skorts á virkri eftirfylgni með gildandi lögum en skorts á stöðvaskyldu. Aukin eftirfylgni með lögum fengist ekki með stöðvaskyldu heldur frekar með aukinni tækniinnleiðingu og virkara eftirliti með framkvæmd laganna.
Að mati meiri hlutans er ljóst að sú breyting sem felst í frumvarpinu, að rekstrarleyfishöfum verði skylt að skila leigubifreiðastöðinni þar sem þeir hafa afgreiðslu tilskildum upplýsingum og stöðinni að safna og geyma þær upplýsingar með stafrænum hætti í rafrænni skrá, mun auðvelda aðgengi eftirlitsaðila og lögreglu að nauðsynlegum upplýsingum svo hægt sé að viðhafa eftirlit með atvinnugreininni. Í því felst aukið öryggi fyrir farþega sem geta leitað beint til stöðvarinnar komi eitthvað upp á í viðskiptum þeirra við leigubílstjóra. Þá er afar mikilvæg sú breyting frumvarpsins að leigubifreiðastöð skuli vera með farveg fyrir kvartanir neytenda yfir verði og gæðum þjónustu með hliðsjón af þeim atvikum sem upp hafa komið síðustu misseri og lúta m.a. að ofrukkun fargjalds. Meiri hlutinn beinir þeirri ábendingu til ráðuneytisins að taka til skoðunar hvort nefnd eða vettvangi fyrir kvartanir vegna leigubílaaksturs, umfram það sem stöðvunum sjálfum er skylt að hafa, verði komið á fót að danskri fyrirmynd.
Áhrif á farveitur.
Með lögfestingu laga um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, stóðu vonir til þess að aukin fjölbreytni yrði á markaðnum, t.d. með innkomu farveitna eins og þeirra sem þekktar eru erlendis, t.d. Uber og Lyft. Með farveitu getur farþegi bókað leigubíl í gegnum smáforrit og séð þar upplýsingar um hvenær bíllinn kemur, hverrar tegundar hann er og bílnúmer, hvert verð ferðarinnar er, upplýsingar um leigubílstjórann og hvaða einkunn hann hefur fengið frá öðrum farþegum. Eftir samþykkt laganna hefur eitt íslenskt farveitufyrirtæki, Hopp leigubílar ehf., hafið starfsemi en erlend fyrirtæki hafa ekki komið á markaðinn. Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar verður það þó ekki rakið til laganna heldur líklegra að það sé vegna smæðar íslenska markaðarins en allar kröfur sem leiði til þess að farveitur þurfi að aðlaga sig að sérstökum kröfum geti dregið úr vilja til að hefja hér starfsemi. Meiri hlutinn leggur áherslu á að frumvarpið inniheldur ekki sérstakar kröfur sem kæmu verr niður á erlendum farveitum en öðrum leigubifreiðastöðvum. Í greinargerð með frumvarpinu kemur auk þess fram að lögum í Noregi var nýlega breytt á sama veg, þ.e. að tenging við stöð varð skylda, en þar í landi bjóði Uber og Bolt þjónustu sína. Meiri hlutinn tekur því undir það mat að ekki verði séð að þær breytingar sem frumvarpið leggi til séu til þess fallnar að þrengja möguleika slíkra farveitna til að stunda starfsemi sína hér á landi. Þá bendir meiri hlutinn á að í umsögn Hopp leigubíla ehf. er tekið fram að farveitan geti uppfyllt allar þær kvaðir sem frumvarpið leggi á leigubifreiðastöðvar. Að mati meiri hlutans eru mikil tækifæri til nýsköpunar og tækniþróunar í atvinnugreininni og rétt að löggjöfin endurspegli þau ólíku rekstrarform sem fyrir eru á markaðnum, þ.e. hefðbundnar leigubílastöðvar og farveitur. Beinir meiri hlutinn því til starfshóps ráðherra sem enn er að störfum að skoðaðar verði sérstaklega mögulegar breytingar á lögunum með það í huga.
Afgreiðsla á leigubifreiðastöð.
Samkvæmt a-lið 3. gr. frumvarpsins skal rekstrarleyfishafi hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð sem fengið hefur starfsleyfi hjá Samgöngustofu. Fram komu athugasemdir um að óskýrt væri af frumvarpinu hvort ætlunin væri að takmarka rétt rekstrarleyfishafa, þ.e. leigubílstjóra, til að aka fyrir fleiri en eina leigubifreiðastöð. Samkvæmt gildandi lögum væri slíkt heimilt sem hefði aukið sveigjanleika leyfishafa og samkeppni. Mikilvægt væri að leigubílstjórum væri heimilt að aka fyrir fleiri leigubifreiðastöðvar og þar með eiga möguleika á fleiri ferðum með farþega sem auki tekjustreymi.
Meiri hlutinn áréttar að frumvarpið felur ekki í sér takmörkun á því að rekstrarleyfishafi hafi afgreiðslu á fleiri en einni leigubifreiðastöð og bendir á að í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að rekstrarleyfishafar hafi frjálst val um hvaða stöðvum þeir vilji tengjast. Hafi leyfishafi afgreiðslu á fleiri en einni leigubifreiðastöð verður hann þó að gæta þess að skila nánar tilgreindum upplýsingum svo að stöðvarnar geti fullnægt sínum skyldum samkvæmt lögunum. Þá ber þeim að tryggja að neytendur séu upplýstir um fyrir hvaða stöð þeir keyri hverju sinni. Í þessu samhengi bendir meiri hlutinn á bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 28/2023 þar sem fram kom það mat stofnunarinnar að sú háttsemi leigubifreiðastöðvar að banna leigubifreiðastjórum sem nýttu sér þjónustu félagsins að nýta sér jafnframt þjónustu annarra leigubifreiðastöðva fæli í sér sennilegt brot gegn samkeppnislögum.
Breytingartillögur.
Gildistaka.
Með frumvarpinu eru lagðar auknar skyldur á leigubifreiðastöðvar og þeim falið að safna upplýsingum frá rekstrarleyfishöfum þannig að eftirlitsaðilar og löggæsluyfirvöld eigi auðveldara með að nálgast þær. Fram kom að nauðsynlegt væri að veita leigubifreiðastöðvum svigrúm til að bregðast við þeim breyttu kröfum sem frumvarpið leggur á stöðvarnar og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að standa undir þeim. Tekur meiri hlutinn undir það og leggur til að gildistöku frumvarpsins verði frestað til 1. október 2025.
Þá er lögð til smávægileg breyting á orðalagi í 5. tölul. c-liðar 3. gr. frumvarpsins sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
2. 5. gr. orðist svo:
Lög þessi öðlast gildi 1. október 2025.
Ingibjörg Davíðsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 16. júní 2025.
| Guðbrandur Einarsson, form. |
Sigurður Helgi Pálmason, frsm. | Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | |
| Dagur B. Eggertsson. | Jónína Björk Óskarsdóttir. | ||