Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 735 — 223. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um tillögu til þingsályktunar um fjármálastefnu fyrir árin 2026–2030.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar.
Tillaga til þingsályktunar um fjármálastefnu fyrir árin 2026–2030 var lögð fram 25. mars 2025 og vísað til fjárlaganefndar tveimur dögum síðar að lokinni fyrri umræðu. Aðeins bárust tvær umsagnir. Þeir aðilar sem oftast senda inn umsagnir vegna ríkisfjármála kusu að einbeita sér að fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 í stað stefnunnar.
Fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytis komu á fund nefndarinnar og kynntu efni tillögunnar. Einnig komu fulltrúar fjármálaráðs og gerðu ítarlega grein fyrir áliti sínu um tillöguna. Fulltrúar frá ASÍ komu líka á fund nefndarinnar.
Lagarammi fjármálastefnu.
Tillagan byggist á 4. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Þar kemur fram að markmið stefnunnar skuli sett fram sem hlutfall af vergri landsframleiðslu (VLF) og að stefnan skuli vera í samræmi við grunngildi um sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi, sem skilgreind eru í 6. gr. sömu laga. Þingsályktanir um fjármálaáætlun skulu byggjast á samþykktri fjármálastefnu.
Mikilvægi þinglegrar meðferðar stefnunnar felur í sér að eftirlit Alþingis með framkvæmd stefnumörkunar í opinberum fjármálum verður markvissara en ella enda felur stefnan í sér heildarmarkmið til fimm ára sem eru útfærð nánar í árlegri fjármálaáætlun. Mikilvægt er að fjármálastefna hins opinbera og peningamálastefna séu í takt hvor við aðra og stuðli saman að því markmiði að halda verðbólgu niðri og viðhalda stöðugleika í hagkerfinu.
Tengsl við þingmál nr. 171 um breytingu á lögum um opinber fjármál.
Þingmál nr. 171 á yfirstandandi þingi er frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber fjármál þar sem m.a. er gert ráð fyrir að svokölluð afkomuregla verði aflögð og þess í stað komi stöðugleikaregla. Einnig er gert ráð fyrir að í stað skuldalækkunarreglu skuli stjórnvöld setja fram skýra skuldaþróunaráætlun ef skuldir eru umfram 30% af VLF-hámarkinu.
Forsendur stefnunnar og einnig forsendur þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun 2026– 2030 taka mið af því að lagafrumvarpið verði samþykkt áður en Alþingi afgreiðir fjármálastefnuna.
Meginatriði tillögunnar.
Leiðarljós framlagðrar fjármálastefnu er að ná jöfnuði í afkomu A1-hluta ríkisins árið 2027 og snúa yfir í afgang eftir það út áætlunartímabilið. Jafnframt er áætlað að skuldir A1-hluta hins opinbera lækki sem hlutfall af VLF.
Meiri hlutinn gerir þó breytingartillögu sem hækkar skuldahlutfallið og er betur gerð grein fyrir henni síðar í álitinu.
Tillagan er sett fram í einni töflu en með henni fylgir ítarleg greinargerð. Tillagan nær til áranna 2026–2030 og felur í sér þrjú meginmarkmið. Í greinargerðinni eru þau dregin svona fram:
1. Að sá hallarekstur sem verið hefur á A1-hluta hins opinbera verði stöðvaður þegar á árinu 2028 og í kjölfarið verði heildarafkoman jákvæð út áætlunartímabilið.
2. Að samhliða verði gripið í taumana á skuldaþróun hins opinbera þannig að skuldahlutfallið taki að síga örugglega að 30% af VLF og nái því marki innan ásættanlegs tíma. Í því skyni skal skuldaþróunaráætlun fyrir hið opinbera fylgja þeirri meginstefnu að andvirði af sölu ríkiseigna verði ráðstafað til niðurgreiðslu skulda.
3. Í samræmi við þessi áform um aðhaldssama fjármálastefnu er ráðgert að raunvöxtur útgjalda á komandi árum verði minni en vöxtur landsframleiðslunnar þannig að útgjöld sem hlutfall af VLF fari lækkandi.
Tölugrunnur stefnunnar.
Stefnan er lögum samkvæmt eingöngu sett fram sem hlutfall af VLF en nefndin hefur reiknað hlutföllin í framlagðri stefnu í fjárhæðir miðað við þjóðhagsspá Hagstofu Íslands og þannig kemur fjárhagslegt umfang stefnunnar í milljörðum króna skýrt fram.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og fram kemur í töflunni er gert ráð fyrir jafnvægi í afkomu A1-hluta ríkissjóðs árið 2027 í fyrsta skipti síðan árið 2019 og afgangi eftir það. Þá er gert ráð fyrir að sveitarfélögin verði rekin í jafnvægi frá og með árinu 2028.
Heildarskuldir ríkis og sveitarfélaga lækka ekki að nafnvirði á tímabilinu en lækka lítils háttar sem hlutfall af VLF. Áætlað er að heildarskuldir A1-hluta hins opinbera lækki úr 39,5% af VLF í 37,5% árið 2030. Á móti vegur að skuldir opinberra fyrirtækja lækka ekki sem hlutfall af VLF. Miðað er við að skuldir A-hluta sveitarfélaga lækki um eitt prósentustig á tímabilinu, úr 7% af VLF í 6%.
Efnahagshorfur og áskoranir til framtíðar.
Efnahagsforsendur fjármálastefnunnar byggjast á hagspá Hagstofu Íslands sem gefin var út 25. mars sl. Þar er reiknað með að hagkerfið verði nokkuð stöðugt út tímabil fjármálastefnunnar.
Í fyrirliggjandi fjármálastefnu er gert ráð fyrir að langtímaleitni hagvaxtar til 2030 sé um 2,3–2,6%, sem er á svipuðu róli og í forsendum fjármálaáætlunar sem lögð var fram í fyrra. Þá er hagvaxtarspáin í fjármálastefnunni fyrir árin 2026 og 2027 einnig á svipuðum stað og kemur fram í nýlegri hagspá Seðlabanka Íslands.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og ávallt er nokkur óvissa í forsendum og spám. Fjármálaráð bendir á hinar ýmsu áskoranir í alþjóðamálum, svo sem að hömlur í alþjóðaviðskiptum og stríðsátök geti dregið úr hagvexti hér á landi sem og annars staðar. En í slíku umhverfi verður spágerð óáreiðanlegri og því má alveg búast við mun meiri sveiflum í hagvexti en kemur fram í forsendum fjármálaáætlunar. Sögulega séð hefur hagvöxtur á Íslandi sveiflast töluvert síðastliðna áratugi eins fram kemur í eftirfarandi mynd. Sveiflurnar eru meiri en í nágrannalöndunum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Meiri hlutinn vill vekja athygli á að hann leggur til breytingu á 5. gr. laga um opinber fjármál í frumvarpi um stöðugleikareglu o.fl. sem er til umfjöllunar á Alþingi (171. mál) til að taka megi tillit til aukinna útgjalda til öryggis- og varnarmála. Þetta er að fordæmi annarra Evrópuríkja og nágrannalanda vegna óvissu í öryggismálum álfunnar. Greining á nauðsynlegum varnarviðbúnaði er talin benda til að skuldbindingar um aukin framlög til varnarmála þurfi að vera um 3,5% af landsframleiðslu í stað 2% af landsframleiðslu, sem eru fyrri markmið. Þessi markmið munu ekki ná nema að litlu leyti til Íslands í ljósi þess að Íslendingar hafa ekki eigin her. Fram hefur komið að rætt er um að aðildarríki Atlantshafsbandalagsins skuldbindi sig til að verja sem nemur 1,5% af VLF til varnartengdra innviða og verkefna. Þessi skuldbinding myndi ná til Íslands og þátta sem myndu styðja við varnarviðbúnað og áætlanir og auka áfallaþol landsins, svo sem á sviði almannavarna, heilbrigðisþjónustu, Landhelgisgæslu, lögreglu og samfélagslegra innviða tengdra viðbragðsaðilum, samgöngum, flugvöllum og höfnum.
Í því sambandi þarf þó að hafa í huga að töluverð framlög sem er nú þegar gert ráð fyrir í fyrirliggjandi fjármálaáætlun gætu fallið innan þessa 1,5% viðmiðs. Ljóst er að slíkar eða áþekkar breytingar á fjárframlögum þyrfti að gera í áföngum og mögulega yfir lengra tímabil en nemur fjármálaáætlun. Eftir er að semja um endanlega útfærslu á þessu viðmiði innan bandalagsins og þann tíma sem verði ætlaður til innleiðingar.
Meiri hlutinn telur eðlilegt að leiði alþjóðlegar skuldbindingar Íslands á vettvangi Atlantshafsbandalagsins til stóraukinna framlaga á sviði öryggis- og varnarmála væri eðlilegt að taka tillit til þess líkt og við veruleg frávik frá hagþróun og efnahagsforsendum samkvæmt lögum um opinber fjármál. Jafnframt bendir meiri hlutinn þó á að til langs tíma miðar stöðugleikareglan við að ef hækka þarf útgjöld um tugi milljarða króna vegna varnartengdra verkefna þarf á móti að fjármagna þau með skattkerfisbreytingum eða með breyttri forgangsröðun annarra útgjalda.
Það er verðugt markmið að ná hér á landi þeim stöðugleika í hagvexti sem stefnt er að í forsendum fjármálastefnu. En þó eru ýmsir þættir sem geta þar haft áhrif á hagsveifluna sem erfitt er að eiga við, svo sem þróun á alþjóðavettvangi, náttúruhamfarir o.fl. Þá er einnig vert að benda á að frá árinu 1995 hefur hagvöxtur hér á landi verið um 3,3% að meðaltali þrátt fyrir miklar sveiflur. En í forsendum fjármálastefnu er reiknað með að hagvöxtur verði að meðaltali 2,6%.
Á Íslandi eru ýmis tækifæri til að undirbyggja aukna framleiðni, hagvöxt og stöðugleika á næstu árum. Fjölbreytni í atvinnulífi styður við stöðugleika en ýmsar greinar hafa farið vaxandi, svo sem þekkingar- og hugverkageirinn, þ.m.t. lyfjageirinn, tæknigeirinn, skapandi greinar, ferðaþjónusta og fiskeldi. Ríkisstjórnin hyggst marka Íslandi atvinnustefnu til að styðja við margvísleg tækifæri og vaxtarmöguleika á þessum sviðum. Þar þarf að huga að og styrkja grunnmenntun á Íslandi sem undirbyggir vaxtarsprota í nýsköpun og tækniþróun. Þá eru mikil tækifæri í aukinni orkuöflun sem styður við framleiðslu og hagvöxt.
Þá geta vandaðar innviðafjárfestingar stutt við hagsæld og einnig aukin fjárfesting í rannsóknum og stafrænum innviðum stutt við framleiðnivöxt. Sammæli er um að veruleg innviðaskuld hefur hlaðist upp undanfarin ár og þörf fyrir bæði viðhaldsverkefni og nýframkvæmdir. Meiri hlutinn leggur áherslu á það stefnumið ríkisstjórnarinnar að efna til stórátaks í innviðaframkvæmdum um land allt og undirstrikar mikilvægi þess að rúma slíkt átak innan fjármálastefnunnar. Eðlilegt er að meta hagstæðustu ráðstöfun þess ábata sem verður af eignasölu ríkisins í framtíðinni, t.d. niðurgreiðslu skulda og þar með lækkun vaxta eða fjármögnun innviða til að styðja við framtíðarvöxt og velsæld, og hvetur meiri hlutinn til þess að það sé gert sem liður í framfylgd fjármálastefnunnar. Það myndi þýða lækkun innviðaskulda.
Enn þarf þó að styðja við að verðbólga haldi áfram að lækka og þar með að vextir fari lækkandi en í forsendum fjármálastefnunnar er gert ráð fyrir að verðbólga verði við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands á næsta ári og haldist stöðugt við 2,5% út tímabilið til 2030. Mikilvægt er að fjármálastefnan og fjárlög styðji við verðstöðugleika þannig að vextir lækki og haldist einnig stöðugir. Slíkar aðstæður undirbyggja fjárfestingar og það léttir undir með heimilum og fyrirtækjum landsins.
Lýðfræðileg þróun.
Mannfjöldi á Íslandi er nú um 390 þúsund manns en samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofu Íslands mun mannfjöldi við lok tímabils fjármálastefnunnar verða um 433 þúsund manns. Þetta jafngildir um 2% fjölgun á ári til ársins 2030. Miðað við flest önnur Evrópulönd er þetta umtalsverð fjölgun á ári. Reiknað er með að þessi fjölgun muni eiga sér stað þrátt fyrir að fæðingartíðni hafi farið lækkandi á Íslandi en samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar er fæðingartíðnin nú um 1,6 börn á hverja konu. Áætluð fjölgun er að miklu leyti vegna þess að gert er ráð fyrir að búferlaflutningar fólks til Íslands verði áfram töluverðir. Þá fer lífaldur fólks á Íslandi einnig áfram hækkandi.
Nokkur breyting mun verða á aldurssamsetningu þjóðarinnar á tímabili fjármálastefnunnar samkvæmt mannfjöldaspánni. Í dag er áætlað að hlutfall 65 ára og eldri sé um 15,8% og 85 ára og eldri séu um 1,7% af þjóðinni. Árið 2030 er áætlað að 65 ára og eldri verði 16,5% og 85 ára og eldri verði um 1,9% af þjóðinni. Áætlað er að til lengri tíma litið, fram yfir árið 2030, muni þessi hlutföll halda áfram að hækka. Samkvæmt alþjóðlegum stöðlum, t.d. hjá Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD), teljast aldraðir vera 65 ára og eldri en fólk á vinnualdri 20–64 ára. Hlutfall aldraðra á móti fólki á vinnufærum aldri er nú um 26,5% og verður orðið 27,1% árið 2030. Á næstu áratugum mun þetta hlutfall halda áfram að hækka og áætlað er að hlutfallið verði um 32% árið 2050.
Mannfjöldaspár Hagstofunnar hafa þó að þessu leyti þróast í hagstæða átt þar sem langtímaþróun á hlutfalli aldraðra á móti fólki á vinnualdri hefur farið lækkandi með nýrri spám. Helsta skýringin er sú að í nýrri spám er gert ráð fyrir meiri búferlaflutningum fólks sem er á vinnualdri til landsins. En mikill fyrirvari er á slíkum langtímaspám sem geta hæglega breyst. Mikilvægt er að fjalla skipulega og stöðugt um þetta við áætlunargerð hins opinbera. Skýringarmynd um þetta má sjá hér:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Miðað við önnur Evrópulönd er þetta hlutfall á Íslandi hagstætt og verður það áfram samkvæmt spám eins og fram kemur í eftirfarandi töflu:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Samt sem áður verður hækkun hlutfalls 65 ára og eldri á Íslandi áskorun sem þarf að takast á við í opinberum fjármálum. Í því samhengi þarf t.d. að líta til fjármögnunar á velferðarþjónustu, atvinnuþátttöku og framleiðni.
Almennt hafa rannsóknir sýnt að samband er milli öldrunar þjóða og hagvaxtar. En talið er að öldrun þjóðar hægi á hagvexti. En það er þó ekki einhlítt því að með öldrun þjóða eykst yfirleitt sparnaður sem skilar sér í framleiðslufjármagni. Einnig verður meiri þrýstingur á tæknibreytingar til að auka framleiðni til að bregðast við vinnuaflsskorti sem fylgir því að fólki á vinnufærum aldri fari fækkandi. Með auknu fjármagni og tæknibreytingum eru tækifæri til að auka framleiðni sem vegur upp á móti neikvæðum áhrifum öldrunar þjóða á hagvöxt.
Mikilvægt er að hagvöxtur haldi a.m.k. í við fólksfjöldaþróun, þannig að landsframleiðsla á mann lækki ekki og ekki verði minna til skiptanna, t.d. til að standa undir velferðarkerfum. Gangi forsendur fjármálastefnunnar eftir má gera ráð fyrir að á tímabili stefnunnar til ársins 2030 verði árlegur hagvöxtur hér á landi meiri en árleg fólksfjölgun samkvæmt spá Hagstofu Íslands.
Þróun skulda ríkissjóðs og hins opinbera í heild.
Í framlagðri stefnu er áætlað að skuldir hins opinbera samkvæmt skuldareglu verði tæplega 39% af vergri landsframleiðslu við lok árs 2025. Á tímabili fjármálastefnunnar er ráðgert að hlutfallið lækki í tæplega 37%. Frá árinu 2019 hafa ýmsar áskoranir valdið því að skuldahlutfallið hefur haldist talsvert yfir 30%. En síðastliðin ár hefur skuldahlutfallið verið á bilinu 36–40%. Þetta má sjá nánar á eftirfarandi mynd:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Skuldareglan samkvæmt lögum um opinber fjármál er reiknuð út með því að lífeyrisskuldbindingar og viðskiptaskuldir eru ekki taldar með ásamt því að eignir í sjóðum og bankainnstæðum eru dregnar frá.
Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að skuldir sem hlutfall af vergri landsframleiðslu séu að lækka eru skuldir hins opinbera í krónum talið ekki að lækka. Áætlað er að skuldirnar samkvæmt skuldareglu á tímabili fjármálastefnunnar hækki úr um 2.000 ma.kr. í um tæplega 2.400 ma.kr. Lækkun á skuldahlutfallinu er því nær alfarið tilkomin vegna áætlunar um hækkun vergrar landsframleiðslu.
Í samanburði við önnur lönd verður hins vegar að líta til alþjóðlega mælikvarða eins og t.d. Maastricht-skilgreiningarinnar á skuldum hins opinbera. Í þeirri skilgreiningu er miðað við heildarskuldir án þess að draga frá sjóði og innstæður eins og gert er ráð fyrir í skuldareglu laga um opinber fjármál. Við lok árs 2024 námu skuldir Íslands á Maastricht-mælikvarðanum 59,1% af VLF, en viðmið Maastricht-samkomulagsins er að skuldir eigi ekki að vera hærri en 60%. Miðað við önnur lönd í Evrópu er skuldastaða Íslands nokkuð góð eða 22,5 prósentustigum undir meðaltali ESB og um 6 prósentustigum undir meðaltali allra Evrópuríkja. Skuldir Norðurlandanna, fyrir utan Finnland, eru þó lægri heldur en Íslands.
Áður en kom að uppgjöri ÍL-sjóðs var áætlað að skuldir hins opinbera hafi verið í hámarki á árinu 2024 og fari lækkandi út tímabil fjármálastefnunnar. En reiknað er með að skuldir hins opinbera verði komnar undir 30% af vergri landsframleiðslu á næstu 10–15 árum. Staða þjóðarbúsins er sterk, gjaldeyrisforði Seðlabankans er stór og skuldir hins opinbera eru ekki á hættusvæði en mættu þó vera minni.
Mikilvægt er að hafa viðmið og eftirfylgni með markmiðum um skuldaþróun, sem stuðlar að sjálfbærni og getu opinberra fjármála til að stuðla að efnahagslegum stöðugleika og að eiga við óvænt framtíðaráföll. Því er sjálfbærni opinberra skulda mikilvægt atriði varðandi heilbrigði opinberra fjármála. Ef skuldir hins opinbera aukast mikið og verða ósjálfbærar leiðir það af sér hærri fjármagnskostnað sem getur jafnvel haft neikvæð ruðningsáhrif á einkageirann og þar með neikvæð áhrif á verðmætasköpun. Þá er mikilvægt að huga að skuldaþróun og sjálfbærni með komandi kynslóðir í huga þannig að núverandi kynsóðir séu ekki taka til sín of mikil gæði með skuldsetningu hins opinbera sem kemur í hlut framtíðarkynslóða að standa skil á.
Uppgjör ÍL-sjóðs.
Eftir að þingsályktunartillagan var lögð fram hefur Alþingi samþykkt fjáraukalög í tengslum við uppgjör ÍL-sjóðs (áður Íbúðalánasjóðs). Uppgjörið byggist á samkomulagi ríkisins við 18 lífeyrissjóði sem saman fara með mikinn meiri hluta skulda sjóðsins.
Áhrif uppgjörsins á afkomu ríkissjóðs eru á þann veg að gert er ráð fyrir að vaxtagjöld ríkissjóðs aukist um 15–17 ma.kr. á ári vegna aukinnar útgáfu skuldabréfa. Á móti vegur að vaxtatekjur aukast um 13–14 ma.kr. vegna yfirtöku vaxtaberandi eigna ÍL-sjóðs í tengslum við uppgjörið.
Samtals leiðir uppgjörið því til 2–4 ma.kr. lakari afkomu ríkissjóðs á ári, en sem hlutfall af VLF eru afkomuáhrifin óveruleg og kalla því ekki á breytingartillögu vegna afkomu ríkissjóðs.
Öðru máli gegnir um skuldaviðmið stefnunnar. Skuldir A1-hluta ríkissjóðs árið 2026 voru áætlaðar 32,5% af VLF en nú er áætlað að þær hækki upp í um 38,5% vegna uppgjörsins. Heildarskuldir A1-hluta ríkissjóðs, miðað við skuldaregluna, verða tæplega 300 ma.kr. hærri í lok næsta árs en gert var ráð fyrir í forsendum stefnunnar. Heldur dregur úr þessari hækkun á næstu árum þar á eftir og verður um 250 ma.kr. eða um 4% af VLF árið 2030.
Þessi skuldaaukning kallar á breytingartillögu við fjármálastefnuna fyrir öll árin. Þótt skuldir A1-hluta ríkissjóðs aukist um 4–6% á ári, þá gildir ekki það sama um samstæðuuppgjör ríkissjóðs í heild sinni. Skuldir ÍL-sjóðs falla niður á móti hækkuninni. Samanlagt batnar því skuldastaða ríkissjóðs í heild um 4–5% frá fyrri horfum. Þess sér þó ekki stað í breytingartillögum þar sem afkoma og skuldir fjármálafyrirtækja og sjóða eru ekki meðtalin í fjármálastefnunni.
Í töflunni sést að skuldir ríkissjóðs í heild lækka árlega á bilinu 4,4% til 5,4% þegar búið er að gera upp ÍL-sjóð, mest á næsta ári, en síðan lækkar mismunurinn og verður 4,4% árið 2030.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Áætlað er að jákvæð þróun verði til lækkunar skulda A1-hluta ríkissjóðs á næstu árum. Nú er áætlað að þær lækki hraðar en ráð var fyrir gert í forsendum stefnunnar, verði í hámarki í árslok 2025, eða 38,1%, en verði komnar niður í 35% í árslok 2035. Það skýrist m.a. af því að eignir ÍL-sjóðs sem ríkissjóður yfirtekur eru smám saman endurgreiddar þannig að markmið laga um að komast í 30% skuldahlutfall næst nánast á sama tíma eins og áður var áætlað eða á næstu 12–15 árum.
Álit fjármálaráðs.
Hlutverk fjármálaráðs er að leggja mat á hvort framlögð fjármálastefna og fjármálaáætlun fylgi þeim grunngildum sem fram koma í 6. gr. laga um opinber fjármál, sem eru sjálfbærni, varfærni, stöðugleiki, festa og gagnsæi. Einnig ber ráðinu að leggja mat á stefnuna með hliðsjón af ákvæðum 7. gr. laga um opinber fjármál um fjármálareglur.
Nokkrir punktar í niðurlagi álitsins sem meiri hlutinn vekur sérstaka athygli á eru:
– Fjármálaráð fagnar því að tekin skuli vera upp útgjaldaregla (sem ber heitið stöðugleikaregla). Sé henni beitt skynsamlega ætti hún að hjálpa sjálfvirkum sveiflujöfnurum á tekju- og gjaldahlið hins opinbera að vinna sitt verk.
– Tryggja þarf að útgjaldareglan sé ströng og bindandi, þannig ber að varast að líta til raunútgjaldavaxtar upp á 2% sem sérstakt markmið heldur sem hámark.
– Mikil óvissa ríkir um þróun efnahagsmála á tímabili stefnunnar. Hún endurspeglast í hagspánni sem stefnan byggist á.
– Stjórnvöld mættu huga að því hvers vegna umfang opinberra útgjalda sem hlutfall af VLF hefur haldist jafnhátt og raun ber vitni þrátt fyrir að neikvæðra áhrifa af COVID-19-faraldrinum ætti að vera lokið.
– Stefnan miðar við að hagkerfið vaxi hraðar en skuldirnar á næstu árum og þannig er ætlunin að lækka skuldir sem hlutfall af VLF. Bent er á að til þess að það raungerist er nauðsynlegt að stuðla að auknum hagvexti og framleiðni.
– Fjármálaráð staðfestir að það telur að gangi forsendur og framkvæmd framlagðrar fjármálastefnu eftir muni lækkun skuldahlutfalls uppfylla skilyrði laga um opinber fjármál.
Niðurstaða meiri hlutans – breytingartillögur.
Eins og fram kom í kaflanum um ÍL-sjóð leggur meiri hlutinn til breytingu þar sem hlutfall skulda af VLF, annars vegar vegna ríkissjóðs (A1-hluta) og hins vegar A1-hluta hins opinbera, hækki á bilinu 4,5–6% fyrir hvert ár stefnunnar. Í eftirfarandi töflu koma fram ný hlutföll skulda sem lagt er til að breytist og verði sem hér segir:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Bent er á að erlendu lánshæfismatsfyrirtækin taka mið af Maastricht-skilyrðunum frekar en íslensku skuldaviðmiðsreglunni samkvæmt lögum um opinber fjármál og uppgjörið vegna ÍL-sjóðs er þess vegna mjög jákvætt innlegg í mat á lánshæfi Íslands. Við uppgjörið lækka heildarskuldir ríkissjóðs um rúmlega 5% af VLF miðað við Maastricht-skilyrðin.
Auk þess leggur meiri hlutinn til tvær tæknilegar breytingar sem ekki hafa efnisleg áhrif.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Við töflu.
a. A1-hluti hins opinbera. Skuldir, þar af ríkissjóður (A1-hluti), breytist sem hér segir:
| Hlutfall af vergri landsframleiðslu, % | 2026 | 2027 | 2028 | 2029 | 2030 |
|
Samkvæmt frumskjali
|
32,5 | 32,5 | 32,5 | 32,0 | 31,5 |
|
Breyting
|
6,0 | 5,5 | 5,0 | 4,5 | 4,5 |
|
Samtals
|
38,5 | 38,0 | 37,5 | 36,5 | 36,0 |
| Hlutfall af vergri landsframleiðslu, % | 2026 | 2027 | 2028 | 2029 | 2030 |
|
Samkvæmt frumskjali
|
39,5 | 39,5 | 39,0 | 38,5 | 37,5 |
|
Breyting
|
6,0 | 5,5 | 5,0 | 4,5 | 4,5 |
|
Samtals
|
45,5 | 45,0 | 44,0 | 43,0 | 42,0 |
2. Liðir I, II og III, ásamt inngangsmálslið, falli brott.
Alþingi, 16. júní 2025.
| Ragnar Þór Ingólfsson, form., frsm. |
Dagur B. Eggertsson. | Eiríkur Björn Björgvinsson. | |
| Arna Lára Jónsdóttir. | Heiða Ingimarsdóttir. | ||