Ferill 351. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 736 — 351. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með frávísunartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018 (aflaverðmæti í reiknistofni).
Frá 1. minni hluta atvinnuveganefndar.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018, með það að markmiði að breyta viðmiði aflaverðmætis fyrir tiltekna nytjastofna sjávar og hækka með því þann skatt sem sjávarútvegsfyrirtæki greiða í veiðigjöld. Þá eru með frumvarpinu lagðar til breytingar á frítekjumarki álagningar hvers árs hjá gjaldskyldum aðilum.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
Nefndin tók á móti fjölmörgum gestum við umfjöllun málsins og barst henni mikill fjöldi umsagna, enda málið umfangsmikið og efni þess þjóðhagslega mikilvægt. Frumvarpið hefur hlotið mikla gagnrýni sérfræðinga og hagaðila sem leitast verður við að gera skil í þessu áliti 1. minni hluta atvinnuveganefndar.
Þess ber að geta að umfjöllun nefndarinnar var ábótavant að vissu leyti þar sem meiri hluti hennar hafnaði beiðnum 1. minni hluta um að fá gesti á fund nefndarinnar sem bersýnilega var þörf á. Meiri hlutinn lagðist m.a. gegn því að Ragnar Árnason, prófessor emeritus við hagfræðideild Háskóla Íslands, og Byggðastofnun kæmu á fund nefndarinnar. Bagalegast er þó að Skatturinn hafi ekki fengið að koma fyrir nefndina í kjölfar þess að útreikningur stofnunarinnar barst atvinnuveganefnd, sem varpaði ljósi á að útreikningar atvinnuvegaráðuneytisins sem liggja til grundvallar frumvarpinu voru rangir. Þrátt fyrir að með útreikningum Skattsins hafi forsendur frumvarpsins breyst og ósk 1. minni hluta þess efnis hafnaði meiri hlutinn að boða Skattinn á fund nefndarinnar.
Forsendur frumvarpsins um kostnað ríkisins vegna sjávarútvegs.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að ein af meginforsendum frumvarpsins sé sú að veiðigjöldin samkvæmt gildandi lögum standi ekki straum af þeim kostnaði sem fellur á ríkið við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu, sbr. 1. gr. laga um veiðigjald, nr. 145/2018, og með þeim rökstuðningi að árið 2023 hafi kostnaður ríkisins verið meiri en tekjur af veiðigjaldi.
Samkvæmt mati matvælaráðuneytisins sem birtist í lokaskýrslu Auðlindarinnar okkar kemur fram að heildarkostnaður ríkisins við sjávarútveginn hafi árið 2023 verið tæplega 7,9 milljarðar kr. á sama tíma og veiðigjöldin hafi skilað ríkinu tekjum upp á 10,2 milljarða kr. Því verður ekki annað séð en að ráðuneytið hafi byggt á röngum upplýsingum um kostnað ríkisins vegna sjávarútvegsins en í greinargerðinni er hvergi vísað til útreiknings á þeim kostnaði fyrir árið 2023 eða færð rök fyrir þeirri staðhæfingu að veiðigjöld standi ekki undir þeim kostnaði.
Forsendur frumvarpsins um fjárhæð veiðigjalds verði frumvarpið að lögum.
Í greinargerð með frumvarpinu er áætluð hækkun veiðigjalds 7–8 milljarðar kr. Samkvæmt nýlegum útreikningum Skattsins, sem sér um innheimtu veiðigjalds samkvæmt lögum nr. 145/2018, er hækkunin áætluð rúmir 12,5 milljarðar kr., eða tvöföldun á því gjaldi sem áætla má að verði innheimt standi lögin óbreytt. Munar þar mestu að í tölum Skattsins er áætlað veiðigjald á þorsk rúmar 64 kr. og á ýsu 42 kr. í ár, en í frumvarpinu er gert ráð fyrir að gjaldið á þorsk yrði tæpar 46 kr. og á ýsu 25 kr.
Mat atvinnuvegaráðuneytisins á áhrifum frumvarpsins, hvort sem um var að ræða áhrif á sjávarbyggðir eða sjávarútvegsfyrirtæki og samkeppnishæfni sjávarútvegsins, var unnið út frá þeirri forsendu að hækkun veiðigjaldsins yrði 7–8 milljarðar kr. en ekki 12,6 milljarðar kr. eins og nú er áætlað. Þegar forsendur frumvarpsins taka jafn veigamiklum breytingum og hér um ræðir, eða 57,5–80% meiri hækkun á veiðigjaldinu en ráðuneytið lagði til grundvallar, er ljóst að fyrra mat ráðuneytisins á áhrifum frumvarpsins er úrelt og framkvæma verður nýtt mat sem tekur mið af réttum útreikningi á áætlaðri hækkun veiðigjaldsins, sérstaklega er varðar áhrif frumvarpsins á fjárhag sveitarfélaga, líkt og ráðherra er skylt að gera skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Þær tillögur um breytingu á afslætti sem lagðar hafa verið til af meiri hluta nefndarinnar breyta því ekki að miklu munar á mati ráðuneytisins á aukningu skattheimtunnar og mati Skattsins.
Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu áætlar ráðuneytið að með því að taka frystiskip út úr reiknistofninum og fella niður 10% lækkun á frystum afurðum muni veiðigjaldið lækka. Í gögnum Skattsins kemur hins vegar fram að áhrifin verða þveröfug, þ.e. að veiðigjald hækki á nánast allar tegundir sjávarafla.
Útreikningar Skattsins sýna fram á að þær forsendur sem lagðar eru til grundvallar í frumvarpinu eru í meginatriðum rangar. Hafa þær forsendur ekki enn verið leiðréttar en erfitt er að réttlæta frekari meðferð málsins á vettvangi löggjafans þegar í ljós kemur að allar forsendur frumvarpsins eru brostnar. Að mati 1. minni hluta er rík ástæða fyrir ríkisstjórnina að taka frumvarpið aftur til meðferðar og bæta úr þeim annmörkum sem í ljós hafa komið, enda málið ekki tækt til frekari umræðu í óbreyttri mynd.
Reiknistofn veiðigjalds.
Tilgangur frumvarpsins er m.a. að „leiðrétta“ og skýra tiltekna þætti við útreikning reiknistofns veiðigjalda. Umrætt orðalag er villandi að því leyti að frumvarpið mælir ekki fyrir um leiðréttingu heldur breytingu. Með þessari hugtakanotkun er gefið til kynna að veiðigjald hafi alla tíð verið rangt reiknað. Svo er hins vegar ekki enda hefur veiðigjaldið ávallt verið reiknað í samræmi við ákvæði gildandi laga um veiðigjald hverju sinni. Í frumvarpinu er lagt til að hverfa frá þeim útreikningi á reiknistofni veiðigjalda sem við lýði hefur verið og miða þess í stað við meðalverð fyrir hvern mánuð á hvert kílógramm samkvæmt opinberum gögnum um fiskverð frá fiskistofu Noregs, með þeim rökum á þau gögn sýni betur fram á raunverulegt markaðsverð á Íslandi. Í frumvarpinu og nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar er að gæta ákveðins misskilnings um hvernig viðmið veiðigjalds er ákvarðað og gefið til kynna að sjávarútvegsfyrirtækin sjálf ákveði það. Raunin er aftur á móti sú að skýrar reglur gilda um milliverðlagningu samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, laga um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998, og kjarasamninga. Það fer því fjarri að viðmið veiðigjalds sé einhvers konar geðþóttaákvörðun hverrar útgerðar fyrir sig.
Ekki verður séð af upplýsingum frá umsagnaraðilum og fyrirliggjandi gögnum að fiskverð frá fiskistofu Noregs gefi rétta mynd af markaðsverði á fiskmarkaði hér á landi. Í minnisblaði sem unnið var af sérfræðingum atvinnuvegaráðuneytisins, dags. 12. desember 2024, er varað við því að miða reiknistofn veiðigjalds við verð á uppsjávarafla í Noregi þar sem verðið sé ákveðið í gegnum sölusamtök í eigu útgerða sem innihaldi m.a. hvata sem geti skekkt verðmyndun. Í minnisblaðinu segir jafnframt að erfitt sé að fullyrða að „markaðsverð sé til staðar“ í Noregi.
Í umsögnum til nefndarinnar hefur komið fram gagnrýni á að óvíst sé hvort breyttur reiknistofn veiðigjalds endurspegli raunverulegt aflaverðmæti og að útfærsla frumvarpsins sé með þeim hætti að hún stuðli ekki að sjálfbærri og hagkvæmri nýtingu. Í frumvarpinu er lögð til breyting á reiknistofni veiðigjalds bolfisks (þorsks og ýsu) og er lagt til að miðað verði við verð á fiskmörkuðum í Noregi. Í umsögnum sem nefndinni bárust er þessari aðferð harðlega mótmælt þar sem umhverfi veiða og vinnslu í Noregi sé að mörgu leyti ólíkt því sem hér þekkist og eðlismunur sé á uppsjávarafla sem veiðist innan íslenskrar lögsögu og er landað hér á landi og þess afla sem veiðist innan norskrar lögsögu og landað er í Noregi. Til að mynda sé talsverður munur á gæðum makríls sem veiddur er við Íslandsstrendur og þeim sem veiddur er í norskri lögsögu. Á Íslandi sé makríllinn veiddur að sumri til en ekki á þeim tíma þegar markaðsverð uppsjávartegunda er hæst, þ.e. að hausti, líkt og raunin er í Noregi. Því sé með öllu ótækt að miða skattheimtu á makríl hér á landi við verðmæti makríls sem veiddur er í norskri lögsögu enda gefi verðið á norskum markaði ranga mynd af verðmæti makríls á Íslandi. Frumvarpið í heild sinni sé haldið þessum annmarka, þ.e. að ekki sé hægt að yfirfæra verð á vöru í einu landi á sambærilega vöru í öðru landi.
Margar breytur geta verið til staðar sem ráða markaðsverði í einu landi sem eiga ekki endilega við annars staðar. Má sem dæmi nefnda skattheimtu, rekstrarkostnað fyrirtækja, efnahagssveiflur og tolla og styrki frá hinu opinbera sem geta átt við í einu landi en ekki öðru en geta haft áhrif á markaðsverð þeirrar vöru sem um ræðir hverju sinni. Því er varhugavert og jafnvel óábyrgt að miða skattheimtu við markaðsaðstæður í öðru landi.
Áhrif á fjárfestingargetu, nýsköpun og samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs.
Við umfjöllun nefndarinnar og í umsögnum til hennar hafa komið fram sjónarmið þess efnis að leiðrétting á reiknistofni veiðigjalds kunni að draga úr samkeppnishæfni sjávarútvegs á alþjóðamörkuðum og einnig samkeppnishæfni greinarinnar um fjármagn á markaði innan lands og til fjármögnunar.
Umfjöllun í greinargerð með frumvarpinu um áhrif þess á samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs er fremur innihaldslítil en þar er vísað til þess að samkeppnishæfni sjávarútvegs byggist ekki eingöngu á þeim sköttum og gjöldum sem lögð eru á starfsemina heldur einnig svigrúmi til að auka hagræði í rekstri og heimild til framsals aflahluta og leigu aflaheimilda. Þó eru önnur atriði sem vega þar á móti. Sem dæmi má nefna að launatengdur kostnaður er mjög hár hér á landi, fyrirtæki greiða í lífeyrissjóði starfsmanna sinna og lagður er sérstakur auðlindaskattur á sjávarútvegsfyrirtæki, sem frumvarpinu er ætlað að hækka til muna. Framangreint á sjaldnast við um sjávarútveg í öðrum löndum sem við berum okkur saman við og eru samkeppnisaðilar okkar.
Fyrsti minni hluti getur því tekið undir að skattheimta á tiltekna atvinnugrein sé ekki breytan sem kemur til skoðunar við mat á samkeppnishæfni hennar. Aftur á móti telur 1. minni hluti augljóst að skattahækkanir geta vegið þungt við það mat og að tvöföldun á skatti á atvinnugrein skerði óhjákvæmilega samkeppnishæfni hennar umtalsvert en ekki að „óverulegu leyti“ líkt og haldið er fram í frumvarpinu. Því er ljóst að áhrif hækkunar veiðigjaldsins munu leggjast enn þyngra á sjávarútveginn er gert er ráð fyrir í frumvarpinu.
Þá hafnar 1. minni hluti þeirri niðurstöðu meiri hlutans að samkeppnishæfni íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja verði ekki skert nema söluverðmæti sjávarafurða verði lægra en kostnaðarverð. Afstaða meiri hlutans virðist byggjast á grundvallarmisskilningi á hugtakinu samkeppnishæfni atvinnulífsins og hvað í því felist og svo virðist litið á að svo lengi sem ákvarðanir hins opinbera valdi því ekki að fyrirtæki komi hreinlega út í tapi geti þær ekki talist skerða samkeppnishæfni. Hið rétta er að með samkeppnishæfni er átt við hæfni fyrirtækis til að mæta eftirspurn og þörfum viðskiptavina sinna borið saman við aðra aðila sem bjóða upp á sambærilegar vörur.
Á alþjóðlegum fiskmörkuðum ríkir óneitanlega mikil samkeppni, ekki einungis á milli þeirra sem stunda veiðar heldur einnig þeirra sem stunda fiskeldi. Allir fiskframleiðendur eiga þó sameiginlegt að freista þess að fá sem hæst verð fyrir afurð sína. Tvöföldun skattheimtu á íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hefur án vafa neikvæð áhrif á samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og ætti sér enga hliðstæðu hjá samkeppnisaðilum, enda vandfundin sú atvinnugrein sem stæði af sér slíka skattahækkun án þess að samkeppnishæfni hennar yrði skert. Þrátt fyrir að íslenskur sjávarútvegur standi að mörgu leyti vel þá er hvorki arðsemi né vöxtur eigin fjár meiri en í öðrum greinum atvinnulífsins og því er fyrirséð að samkeppnishæfni hans bíður skaða verði frumvarpið að lögum.
Í umsögnum og gestakomum fyrir nefndina, m.a. frá nýsköpunarfyrirtækjum, voru viðraðar miklar áhyggjur af neikvæðum áhrifum frumvarpsins á nýsköpun og þróun í sjávarútvegi. Í máli umræddra aðila kom m.a. fram að yrði veiðigjald hækkað í samræmi við frumvarpið myndi það leiða til minni fjárfestingar í búnaði og öðru tengdu veiðum og vinnslu.
Mat atvinnuvegaráðuneytisins á áhrifum frumvarpsins á fjárfestingargetu, nýsköpun og samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs er að mati 1. minni hluta mjög takmarkað og ósannfærandi rök færð fyrir þeirri niðurstöðu að frumvarpið komi ekki til með að hafa veruleg áhrif á rekstur fyrirtækja í sjávarútvegi. Afstaða ráðuneytisins byggist á því frumvarpið hafi „ekki áhrif á hvert fiskverð eða aflaverðmæti nytjastofna er í viðskiptum á milli aðila“. Mat ráðuneytisins byggist því á þeirri hugmynd að skattlagning tiltekinnar vöru hafi engin áhrif á verð þeirrar vörur í viðskiptum milli aðila. Þessi ályktun ráðuneytisins stenst illa skoðun enda liggur í hlutarins eðli að ef skattur á vöru hækkar þá hækkar söluverð hennar í kjölfarið til að standa undir skattlagningunni. Dæmi eru um skatta sem sérstaklega eru lagðir á í þeim tilgangi að hækka verð á tiltekinni vöru. Má þar nefna áfengisgjald, kolefnisgjald og sykurskatt. Ekkert bendir til annars en að hið sama leiði af hækkun veiðigjalds. Sé skattur hækkaður á tekjur fyrirtækis verður það væntanlega að afla frekari tekna til þess að reksturinn gangi upp. Í tilvikum útgerða væri leið þeirra að afla þeirra tekna frá vinnslunum. Það myndi leiða af sér að vinnslurnar þyrftu að greiða mun hærra verð fyrir fiskinn, en fyrirséð er að rekstrargrundvelli fiskvinnsla verður með þessu stefnt í hættu.
Áhrif á sjávarbyggðir.
Fjölmargir umsagnaraðilar viðruðu áhyggjur sínar af mögulegum neikvæðum áhrifum frumvarpsins á sjávarbyggðir landsins, þ.m.t. talið þau 26 sveitarfélög sem standa að Samtökum sveitarfélaga í sjávarútvegi. 1. minni hluti hefur kynnt sér þær umsagnir vel, auk umsagna sem bárust í samráðsgátt stjórnvalda við vinnslu málsins en þær eru að meginstefnu samhljóða um að hækkun veiðigjalds leiði til aukinnar samþjöppunar fyrirtækja, sem aftur leiði af sér að fyrirtækjum í vinnslu fækkar og þau færi hugsanlega vinnslur sínar frá ákveðnum byggðarlögum. Geti það leitt til fækkunar starfa í vinnslu afurða en einnig afleiddra starfa, svo sem í þjónustu við útgerðir.
Þegar fyrirsjáanlegt er að tillaga að stjórnarfrumvarpi muni hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög er ráðherra skylt að framkvæma sérstakt kostnaðarmat, sbr. 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Niðurstaða ráðherra í því kostnaðarmati var sú að í frumvarpinu væru „ekki lagðar til breytingar sem munu fela í sér verulega neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi þeirra fyrirtækja sem greiða veiðigjald og hafi þau áhrif að útsvarstekjur sveitarfélaga lækki“. Byggir ráðherra mat sitt á þeirri forsendu að áhrif frumvarpsins verði ekki þau að greiðendur veiðigjalda hagræði í rekstri sínum verði veiðigjöld hækkuð, þar sem slíkar ákvarðanir séu „ávallt byggðar á viðskiptalegum grunni, en ekki vegna breytinga á viðmiði við útreikning reiknistofns að baki veiðigjaldi“, líkt og segir í greinargerð með frumvarpinu.
Í greinargerðinni virðist þess misskilnings gæta að viðbrögð fyrirtækja vegna skattahækkana, svo sem hagræðing í rekstri, séu ekki byggð á „viðskiptalegum grunni“. Hækkun veiðigjalda leiðir til hækkunar rekstrarkostnaðar sem leiðir eðli máls samkvæmt til aðgerða fyrirtækja til að standa straum af þeim kostnaði. Hagræðingaraðgerðir sjávarútvegsfyrirtækja vegna hækkunar rekstrarkostnaðar eru ávallt á viðskiptalegum grunni. Hagaðilar, hvort sem það eru sjávarútvegsfyrirtæki, nýsköpunarfyrirtæki eða sveitarfélög, hafa ítrekað varað við því að hætt sé við að sjávarútvegsfyrirtæki grípi til hagræðingaraðgerða, m.a. með því að loka fiskvinnslum, í kjölfar þeirrar skattahækkunar sem boðuð er í frumvarpinu enda má leiða líkur að því að rekstur fiskvinnsla verði ósjálfbær líkt og hann er víðast hvar í Noregi. Þar hefur verið farin sú leið að flytja fisk óunninn úr landi og með því hefur norska þjóðarbúið orðið af umtalsverðri verðmætasköpun sem felst í fullvinnslu sjávarafurða.
Þá er rétt að hafa í huga að í greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir því að veiðigjald hækki um 7–8 milljarða kr. á ári. Samkvæmt útreikningum Skattsins verður hækkunin hins vegar um 12,6 milljarðar kr. á ári. Því er fyrirséð að neikvæð áhrif frumvarpsins á sjávarútvegssveitarfélög verða mun meiri en áætlað var við gerð frumvarpsins.
Samræmi við stjórnarskrá.
Í umsögnum og við umfjöllun nefndarinnar hafa verið gerðar athugasemdir við það að breytingar þær sem lagðar eru til með frumvarpinu kunni að stangast á við stjórnarskrána og alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins, einkum hvað varðar heimildir til innheimtu skatts og þau viðmið sem frumvarpið notast við til mats á raunverulegu aflaverðmæti.
Með frumvarpinu er lagt til að breyta reiknistofni veiðigjalds svo að hann endurspegli betur raunveruleg aflaverðmæti og tryggi þannig þjóðinni sanngjarnt gjald fyrir nýtingu á sjávarauðlindinni. Samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, skal skattamálum skipað með lögum, sbr. 40. og 77. gr.
Samkvæmt útreikningum sérfræðinga og hagaðila má ætla að skattheimta á sjávarútvegsfyrirtæki geti numið um og yfir 100% af hagnaði af veiðunum í tilviki uppsjávarveiða. Dómstólar hafa almennt játað löggjafanum mikið svigrúm við ákvörðun um skattlagningu og þá sérstaklega þegar um skattlagningu á arð af nýtingu náttúruauðlinda er að ræða, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands frá 23. mars 2017 í máli nr. 213/2016. Þetta svigrúm er aftur á móti ekki ótakmarkað og gerð er sú krafa að skattlagning sé byggð á málefnalegum sjónarmiðum og sé hófleg. Í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.K.M. gegn Ungverjalandi, 14. maí 2013 (66529/11), reyndi á hvort skattlagning bryti gegn eignarréttarákvæði 1. gr. 1. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu. Í málinu reyndi á hvort álagning 98% skatts á efri mörk tekna jafngilti óréttlætanlegri sviptingu eignar í skilningi mannréttindasáttmálans. Tekjur kærandans sem námu yfir 3,5 milljónum ungverskra fórinta á mánuði báru 98% skatt sem leiddi til þess að hann greiddi 52% skatt af heildartekjum sínum í stað almenna tekjuskattshlutfallsins sem var 16%. Mannréttindadómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að umrædd skattheimta væri óhófleg og bryti þar með gegn 1. gr. 1. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu.
Af dómaframkvæmd Hæstaréttar og Mannréttindadómstóls Evrópu má skilja að þrátt fyrir hið ríka svigrúm sem löggjafinn hefur til skattlagningar verði hann eigi að síður að gæta meðalhófs. Hefur í þeim efnum verið litið til umfangs skatts, hversu íþyngjandi skattur er og yfir hversu langt tímabil skatturinn er lagður á. Á það síðastnefnda reyndi í dómi Hæstaréttar frá 10. apríl 2014 (726/2013), þ.e. hvort auðlegðarskatturinn sem lagður var á framtalsskyldar eignir skv. 72. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, á árunum 2010–2013 stæðist eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að auðlegðarskatturinn bryti ekki gegn eignarrétti stefnanda þar sem skatturinn hefði verið lagður á tímabundið. Því er hins vegar ekki til að dreifa í því frumvarpi sem hér um ræðir.
Þá verður skattlagning jafnframt að byggjast á almennum efnislegum mælikvarða og jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Við mat á því hvort skattur sé lagður á eftir almennum efnislegum mælikvarða reynir á sannvirðisreglu skattaréttar en í henni felst að við skattlagningu verði að miða við raunverulegt verðmæti í umráðum þess sem skatturinn er lagður á. Verði reiknistofn veiðigjaldsins miðaður við meðalverð á fiskmarkaði í Noregi er óvíst hvort gjaldið uppfylli sannvirðisregluna, sbr. umfjöllun um reiknistofn veiðigjalda hér að framan.
Í ljósi þess vafa sem uppi er um hvort sú leið sem lögð er til í frumvarpinu við útreikning veiðigjalds standist þær kröfur sem stjórnarskráin og mannréttindasáttmáli Evrópu gera til takmörkunar á eignarréttinum telur 1. minni hluti óráðlegt að samþykkja frumvarpið óbreytt.
Undirbúningur frumvarpsins.
Mat atvinnuvegaráðuneytisins á áhrifum frumvarpsins miðaði við að veiðigjaldið myndi hækka um 7–8 milljarða kr. en ekki 12,6 milljarða kr. líkt og útreikningar Skattsins sýnir. Í tilkynningu frá ráðuneytinu, dags. 16. júní sl., kemur fram að útreikningar Skattsins séu réttir en ekki þeir sem lágu til grundvallar við gerð frumvarpsins. Liggur því fyrir að þær forsendur sem lágu að baki frumvarpinu eru brostnar. Af því leiðir að ekki hefur verið lagt mat á raunveruleg áhrif frumvarpsins, þ.e. hina áætluðu 12,6 milljarða kr. skattahækkun heldur einungis þá 7–8 milljarða kr. hækkun sem frumvarpið sjálft gerir ráð fyrir. Í ljósi þess að réttir útreikningar á ætlaðri fjárhæð veiðigjaldsins eru miklu hærri en þeir útreikningar sem lagðir eru til grundvallar í frumvarpinu er ekki unnt að líta svo á að fullnægjandi mat á áhrifum frumvarpsins liggi fyrir.
Samkvæmt framangreindu leggur 1. minni hluti til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 18. júní 2025.
| Jón Gunnarsson, frsm. |
Njáll Trausti Friðbertsson. |