Ferill 351. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 738 — 351. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með tillögu til rökstuddrar dagskrár
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018 (aflaverðmæti í reiknistofni).
Frá 2. minni hluta atvinnuveganefndar.
Annar minni hluti atvinnuveganefndar telur málið vanbúið, sem endurspeglast meðal annars í því að ítrekað hefur þurft að gera breytingar á framsetningu tölulegra forsendna, endurskilgreina ýmsar meginreglur frumvarpsins, m.a. þær er lúta að afsláttum af veiðigjöldum, svokölluðu frítekjumarki (þó að það sé rangnefni). Atvinnuvegaráðherra hefur ítrekað verið gerður afturreka með tölulegar forsendur, nú síðast í liðinni viku þegar upplýsingar bárust frá Skattinum sem kollvörpuðu upphaflegum forsendum málsins.
Annar minni hluti tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í nefndaráliti 1. minni hluta nefndarinnar en vill bæta eftirgreindu við:
Þingleg meðferð þessa frumvarps hefur verið mörkuð linnulausum hrakföllum frá því að einu stysta og snubbóttasta samráðsferli sem sögur fara af lauk í samráðsgátt stjórnvalda, sem undanfara framlagningar málsins á Alþingi og fyrstu umræðu um það hinn 5. maí 2025.
Stuðningsmenn frumvarpsins hafa varið nokkru púðri í að útskýra að fyrsta umræða hafi tekið fimm þingfundadaga, þegar raunin er sú að umræða átti sér stað á fjórum þingfundum og aðeins þrír þeirra voru á starfsáætlun þingsins. Í því samhengi má nefna að atvinnuvegaráðherra klappaði málinu í 27 daga frá því að samráði í samráðsgátt lauk þar til málinu var útbýtt á Alþingi. Sá tími virðist ekki hafa verið vel nýttur til að grunda málið betur.
Samráðsleysi.
Það hvernig málið birtist í upphafi, sem viðbrögð til að leiða í jörðu pólitískan vanda sem ríkisstjórnin stóð frammi fyrir, hefur markað gæði þess og undirbúning allar götur síðan. Mjög stuttur umsagnarfrestur í samráðsgátt stjórnvalda, rétt rúm vika, þegar starfsreglur ríkisstjórnarinnar segja lágmarkssamráðstíma í samráðsgátt vera tvær vikur. Mjög takmarkað samráð við hagaðila sem kemur fram í greinargerð með frumvarpinu og sömuleiðis í umsögnum og komum umsagnaraðila fyrir nefndina draga upp mynd sýndarsamráðs.
Í þessu samhengi er ekki hægt að sleppa því að nefna þann fjölda gesta sem ekki fengu að koma fyrir nefndina, þrátt fyrir að hafa annaðhvort óskað eftir því eða boðið upp á það sjálfir, eða að nefndarmenn höfðu sérstaklega óskað eftir að viðkomandi aðili kæmi fyrir nefndina. Má þar nefna Skattinn, Byggðastofnun og fleiri.
Þráðurinn var gegnumgangandi sá sami, aðilar töldu samráð við hagaðila vera óforsvaranlegt.
Vanbúið frumvarp.
Sú gagnrýni sem fram hefur komið á undirbúning frumvarpsins hefur meðal annars snúist um skort á tölulegum upplýsingum og að misskilnings hafi gætt hjá þeim sem frumvarpið smíðuðu á virkni veiðigjalda og afleiddum áhrifum af tilteknum breytingum. Á köflum sé um að ræða algert skilningsleysi á mismunandi mörkuðum og mismunandi gæðum og verði vöru á milli markaða. Öll er þessi gagnrýni á rökum reist.
Þær breytingar sem meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til í nefndaráliti sínu virðast fyrst og fremst ætlaðar til að mæta vandamálum sem komu upp þegar ljóst varð að ráðherra hafði reiknað rangt, hafði misskilið áhrif breytinga, ofmetið meinta leiðréttingu á útreikningi veiðigjalda og áfram mætti telja.
Landsbyggðin.
81% þeirrar starfsemi sem tengist sjávarútvegi fer fram utan höfuðborgarsvæðisins, þ.e. á landsbyggðinni. Það er sérstakt að ríkisstjórnin skuli við upphaf kjörtímabils leggja með svo afgerandi hætti til einnar meginstoðar íslensks efnahagslífs og um leið meginstoðar atvinnulífs á landsbyggðinni.
Þær fiskvinnslur sem munu búa við skerta samkeppnisstöðu og verri rekstrarskilyrði að frumvarpinu samþykktu munu ekki borga reikninga sína til framtíðar með „von“ meiri hluta atvinnuveganefndar um að „þær vinnslur þar sem rekstrarlegur grundvöllur hefur verið lakari muni rétta úr kútnum gefist svigrúm til þess“ eins og segir í nefndaráliti meiri hlutans. Öll er þessi framsetning með miklum ólíkindum.
Meðal annars, en ekki eingöngu, vegna áhrifa á vinnslur landið um kring er frumvarpið ótækt til afgreiðslu eins og það er og er raunar árás á hagsmuni landsbyggðarinnar.
Sveitarfélögin.
Sveitarfélög sem hafa sent inn umsögn vegna málsins eru í öllum meginatriðum sammála. Áhyggjum af áhrifum á sveitarfélögin er lýst með sannfærandi hætti. Bæði í umsögn samtaka sjávarútvegssveitarfélaga og einstakra sveitarfélaga. Það er í raun sérstök ósvífni að halda því fram að frumvarpið hafi ekki áhrif á sveitarfélög, með þeim rökum að sveitarfélögin séu ekki beinn greiðandi veiðigjaldsins. Enn einu sinni lítur ríkisstjórnin fram hjá afleiddum áhrifum.
Raunveruleikinn er auðvitað sá að mörg sveitarfélög búa við að hátt hlutfall útsvarstekna og annarra tekna sem eru tilkomnar vegna veiða og vinnslu. Miklar breytingar á rekstrarskilyrðum útgerðarfyrirtækja og á samkeppnisstöðu sjávarútvegs munu hafa áhrif þar á, enda augljóst að frumvarpið eins og það liggur fyrir mun auka á þrýsting til samþjöppunar, draga úr fjárfestingum í greininni og minnka svigrúm fyrirtækja til að sinna samfélagstengdum verkefnum.
Nýsköpun.
Áhyggjur þeirra fyrirtækja sem starfa að nýsköpun í tengslum við sjávarútveg eru augljósar og nú þegar hefur raunar verið bent á samninga og verkefni sem hefur verið frestað á meðan sú óvissa varir sem frumvarpið umvefur þá sem starfa í sjávarútvegi.
Forsvarsmenn fjölda tæknifyrirtækja sem sérhæfa sig í nýsköpun og þjónustu fyrir sjávarútveginn lýsa yfir miklum áhyggjum vegna frumvarpsins sem þeir telja geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir rekstrargrundvöll og framtíð fyrirtækja þeirra.
Það er ámælisvert að enginn reki skuli hafa verið gerður að því að meta afleidd áhrif af þeirri miklu skattahækkun sem er fyrirhuguð samkvæmt frumvarpinu.
Nýting auðlinda og heildarskattspor.
Auðlindanýting og atvinnustarfsemi henni tengd verður alltaf umdeild, bæði hvað varðar umgengni um hverja auðlind fyrir sig og sömuleiðis vegna mögulegrar arðsskiptingar. Í þeim efnum á mikil vinna eftir að eiga sér stað, enda er sjávarútvegurinn eini greiðandi auðlindagjalda, sem einhverju marki ná, þrátt fyrir að ýmsar auðlindir gætu fallið undir sambærileg sjónarmið.
Það sem mestu skiptir að mati 2. minni hluta er að heildarskattspor sjávarútvegsins vaxi og þá helst með aukinni verðmætasköpun, aukinni sókn á grundvelli öflugra rannsókna og fleiri þátta. 2. meiri hluti telur einsýnt að sú mikla hækkun sem stjórnvöld áforma með frumvarpinu, þótt eitthvað hafi dregið úr eftir að í ljós kom að ráðherra hafði reiknað rangt, verði þess valdandi að heildarskattspor sjávarútvegsins minnkar. Slíku feigðarflani verður varla lýst öðru vísi en svo að ráðherra hafi einlægan vilja til að pissa í skóinn sinn.
Niðurlag.
Annar minni hluti atvinnuveganefndar telur nauðsynlegt að undirbúa betur og greina nánar áhrif fyrirhugaðra breytinga á fyrirkomulagi veiðigjalda. Að mati 2. minni hluta er ljóst að núverandi frumvarp þarfnast mun ítarlegri greiningar á mögulegum áhrifum þess á atvinnulíf, samkeppnishæfni sjávarútvegs og þjóðarbúið í heild sinni. Einkum þarf að tryggja að þær breytingar, sem frumvarpið felur í sér, séu í fullu samræmi við stjórnarskrána, sérstaklega jafnræðisreglu 65. gr. og meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar sem felst í 72. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttar.
Annar minni hluti telur enn fremur fullkomlega ótækt að boðaðar breytingar á nýju fyrirkomulagi veiðigjalda taki gildi 1. nóvember 2025. Slíkur hraði á málsmeðferð sé í engu samræmi við alþjóðlegar kröfur um fyrirsjáanleika og gagnsæi skattkerfisbreytinga og þar með tekjuöflunar ríkja. Þá gangi slík málsmeðferð gegn ákvæðum laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, einkum 6. og 7. gr.
Að framangreindu virtu leggur 2. minni hluti til að frumvarpinu verði vísað frá með svofelldri
RÖKSTUDDRI DAGSKRÁ:
Með vísan til þess sem að framan er ritað samþykkir Alþingi að vísa málinu frá og taka fyrir næsta mál á dagskrá.
Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 18. júní 2025.
Bergþór Ólason.