Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 739 — 442. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um rekstrarumhverfi íþróttafélaga.
1. Hefur ráðherra átt samtal við fulltrúa íþróttahreyfingarinnar um rekstrarumhverfi íþróttafélaga, þ.m.t. um skattafyrirkomulag og önnur álitaefni sem komu fram á fjármálaráðstefnu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands 14. nóvember sl., í ljósi þess að hreyfingin hefur kallað eftir slíku samtali?
Fjármála- og efnahagsráðherrar núverandi og fyrrverandi hafa átt samtöl við íþróttahreyfinguna um rekstrarumhverfi hreyfingarinnar bæði fyrir og eftir fjármálaráðstefnu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands 14. nóvember sl. Kallað hefur verið eftir því að myndaður verði sérstakur vinnuhópur með fulltrúum ráðuneytisins, ráðuneytis íþróttamála og Skattsins ásamt starfshópi íþróttahreyfingarinnar til að fara yfir skipan skattamála hreyfingarinnar. Þær viðræður eru enn þá í gangi.
2. Er til skoðunar að einfalda regluverk um íþróttafélög, einkum er varðar virðisaukaskattsskyldu, til að draga úr álagi vegna reksturs og styrkja starfsemi þeirra?
Stjórnvöld hafa leitast við að hlúa að starfsskilyrðum íþróttafélaga með fjölbreyttum hætti, m.a. í gegnum skattalegar ívilnanir, beina fjárhagslega styrki og rekstrarlega fyrirgreiðslu. Skv. 5. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt eru m.a. aðgangseyrir að íþróttaviðburðum og afnot af íþróttamannvirkjum undanþegin virðisaukaskatti. Þessi undanþága er veigamikil og leiðir til þess að meginhluti kjarnastarfsemi íþróttafélaga fellur utan virðisaukaskattsskyldu, m.a. bera æfingagjöld eða félagsgjöld iðkenda sem innt eru af hendi til íþróttafélaga ekki virðisaukaskatt. Að auki hafa verið veittar tímabundnar ívilnanir, m.a. vegna kórónuveirufaraldursins, svo sem full endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna vinnu manna við mannvirki í eigu íþróttafélaga á ákveðnum tímabilum.
Íþróttafélög njóta einnig skattalegra ívilnana að öðru leyti, þar á meðal undanþágu frá tekjuskatti, að því gefnu að þau starfi til almannaheilla. Þá njóta þau verulegs stuðnings með fjárstyrkjum úr afrekssjóði ÍSÍ og ferðasjóði ÍSÍ, sem eru fjármagnaðir að stærstum hluta með árlegum fjárveitingum á fjárlögum, auk framlaga frá sveitarfélögum og úr öðrum opinberum sjóðum. Að auki eru í gildi reglur sem heimila frádrátt frá tekjum einstaklinga og lögaðila vegna einstakra framlaga til íþróttafélaga, sem getur eflt fjáröflunarskilyrði þeirra. Þá teljast greiðslur atvinnurekenda til íþróttaiðkunar starfsmanna ekki til skattskyldra tekna að ákveðnu marki samkvæmt skattmatsreglum.
Rekstrarumhverfi íþróttafélaga er þannig í reynd ívilnað með fjölbreyttum hætti umfram hefðbundinn atvinnurekstur. Þær ívilnanir ná til virðisauka- og tekjuskattslaga, beinna styrkja, aðgangs að opinberum úrræðum og sérstaks lagaumhverfis. Markmið þeirra er að tryggja samfélagslegt gildi íþróttastarfs, sérstaklega fyrir börn, ungmenni og heilsueflingu í landinu.
Það er vilji stjórnvalda að halda áfram að rýna í laga- og regluumhverfi fyrir íþróttastarfsemina og kanna hvort tilefni sé til frekari einföldunar eða skýringar, í samráði við hreyfinguna.