Ferill 408. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 750 — 408. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og sveitarstjórnarlögum (endurmat á fjárhagslegum áhrifum).
Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum sem fela í sér að ríki, sveitarfélög eða Samband íslenskra sveitarfélaga geti farið þess á leit við ríkisendurskoðanda að hann endurmeti áhrif lagasetningar, setningar stjórnvaldsfyrirmæla eða samþykktar annarra stefnumarkandi ákvarðana á fjárhag sveitarfélaga. Frumvarpið er lagt fram í tengslum við frumvarp innviðaráðherra um breytingu á sveitarstjórnarlögum (þskj. 304, 272. mál á yfirstandandi löggjafarþingi) en þar eru lagðar til breytingar sem miða að því að efla fjárhaldsstjórn sveitarfélaga, tryggja fjárhagslega sjálfbærni þeirra og bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga, auk þess að stuðla að vandaðri lagasetningu. Með þessu frumvarpi er mælt fyrir um aðkomu ríkisendurskoðanda að endurmati fjárhagslegra áhrifa stefnumörkunar stjórnvalda á sveitarfélög og þar með leitast við að draga úr líkum á því að ríki og sveitarfélög eigi í langvinnum deilum um það efni.
Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er ríkisendurskoðandi hlynntur þeim breytingum sem lagðar eru til og metur það svo að framangreint viðfangsefni falli að starfssviði og eftirliti hans með ráðstöfun opinberra fjármuna. Nefndin tekur undir það mat ríkisendurskoðanda.
Þá leggur nefndin til nokkrar lagatæknilegar breytingar sem hafa ekki efnisleg áhrif á efni frumvarpsins.
Með hliðsjón af framansögðu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Orðin „að beiðni sveitarfélaga eða ríkisins“ í 1. gr. falli brott.
2. Orðin „að beiðni ríkis eða sveitarfélaga“ í 2. gr. falli brott.
3. Í stað orðsins „Hlutaðeigandi“ í upphafi 3. gr. komi: Viðkomandi.
Ingibjörg Davíðsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 18. júní 2025.
| Vilhjálmur Árnason, form. |
Ása Berglind Hjálmarsdóttir, frsm. | María Rut Kristinsdóttir. | |
| Bryndís Haraldsdóttir. | Grímur Grímsson. | Karl Gauti Hjaltason. | |
| Sigmundur Ernir Rúnarsson. | Sigurjón Þórðarson. | ||