Ferill 478. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 752 — 478. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um fjölda fanga.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hvað útskýrir mun á fjölda gæsluvarðhaldsfanga í svari við fyrirspurn á þskj. 403 á yfirstandandi þingi annars vegar og í svari við fyrirspurn á þskj. 1761 á 154. lgþ. hins vegar?
2. Hversu margir fangar með erlent ríkisfang voru í íslenskum fangelsum sl. fimm ár og hvert var hlutfall erlendra fanga? Svar óskast sundurliðað eftir árum og óskað er eftir því að ekki sé miðað við meðaltalstölur eins og í svari við fyrrgreindri fyrirspurn á þskj. 403.
Skriflegt svar óskast.