Ferill 445. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 753 — 445. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til fjáraukalaga III fyrir árið 2025.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið á fundi sínum með fulltrúum fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Ekki var talin þörf á að senda málið til umsagnar. Tilgangur frumvarpsins er að endurspegla stefnumarkandi ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og breyta forgangsröðun ríkisfjármála.
Í lögum um opinber fjármál er mörkuð skýr stefna um hlutverk og efni fjáraukalaga. Nú háttar hins vegar svo til að með tilkomu nýrrar ríkisstjórnar hafa skapast þær aðstæður að hún fékk ekki tækifæri til þess að leggja fram frumvarp til fjárlaga á fyrsta starfsári sínu. Af þessu leiðir að gerð er tillaga um breytingar á gildandi fjárlögum með þriðja fjáraukalagafrumvarpi ársins 2025.
Efni frumvarpsins.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 21. desember sl. er gerð grein fyrir markmiðum og aðgerðum sem kalla á breytta forgangsröðun innan fjárlaga ársins. Í frumvarpinu kemur fram áhrif af þeirri vinnu sem ríkisstjórnin boðaði í upphafi, með því að veittar eru fjárheimildir til tiltekinna forgangsverkefna. Önnur verkefni verða felld niður, framkvæmd þeirra frestað eða þau endurskoðuð, til að mæta þeim fjárhagslegu skuldbindingum sem nýjar áherslur kalla á.
Áætlaður heildarkostnaður þeirra tillagna sem lagðar eru til í frumvarpinu nemur um 5,2 ma.kr. Á móti koma mótvægisaðgerðir sem nema um 4,1 ma.kr., m.a. vegna uppfærðra áætlana um útgreiðslur úr Orkusjóði, sem hafa verið minni en ráð var fyrir gert, og vegna lægri útgjalda atvinnuleysisbóta. Einnig er gert ráð fyrir að hliðra fjárfestingarverkefnum þar sem töf hefur orðið á því að nokkur verkefni hafi komist af stað.
Útgjaldamál eftir tilefnum.
Í eftirfarandi töflu koma fram helstu áherslumál ríkisstjórnarinnar til breytinga á fjárlögum ársins. Þar vega þyngst 3 ma.kr. vegna aukinna fjárveitinga til viðhalds og endurbóta á þjóðvegum landsins. Framlög til varnarmála eru aukin um 1,1 ma.kr. og er það hluti af viðbótarstuðningi við Úkraínu í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Í þriðja lagi er um að ræða 545 m.kr. til fjölgunar lögreglumanna og 350 m.kr. til að efla meðferðarúrræði við fíknivanda.
Önnur tilefni vega minna. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram nánari umfjöllun um einstök tilefni.
| Tilefni útgjaldamála | Í m.kr. |
| Ný og aukin verkefni | 5.228 |
|
Viðhald þjóðvega
|
3.000 |
|
Varnarmál
|
1.100 |
|
Fjölgun lögreglumanna
|
545 |
|
Efling meðferðarúrræða við fíknivanda
|
350 |
|
Varaleið ef sæstrengir rofna
|
90 |
|
Nýliðamenntun sérsveitarmanna
|
80 |
|
Undirbúningur þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB aðildarviðræður
|
25 |
|
Aukin nýting gervigreindar
|
20 |
|
Hagsmunafulltrúi aldraðra
|
18 |
| Mótvægisráðstafanir | 4.100 |
|
Orkusjóður, lægri útgreiðslur
|
1.200 |
|
Atvinnuleysisbætur, uppfærð áætlun
|
1.100 |
|
Fjárveiting til ráðstöfunar í orku- og loftslagsmál
|
600 |
|
Þjóðarhöll – hliðrun fjárfestingarframlags
|
500 |
|
Nýtt fangelsi – hliðrun fjárfestingarframlags
|
400 |
|
Stækkun framhaldsskóla – hliðrun fjárfestingarframlags
|
300 |
|
Nettóbreytingar heildargjalda
|
1.128 |
Endurmat á útkomu ársins 2025.
Í tengslum við undirbúning frumvarpsins og undirbúning tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 hafa afkomuhorfur ríkissjóðs verið endurmetnar. Heildarniðurstaðan er jákvæð þar sem í fjárlögum var áætlaður 63 ma.kr. halli á A1-hluta ríkissjóðs en nú er áætlað að hann verði um 28 ma.kr.
Núna er áætlað að heildartekjur verði um 50 ma.kr. hærri en gert var ráð fyrir í fjárlögum en á móti vegur að útgjöldin gætu orðið um 15 ma.kr. hærri. Uppgjör sl. árs vegna virðisaukaskatts og fjármagnstekjuskatts reyndist betra en áætlað var og hefur það bein áhrif á áætlun yfirstandandi árs. Auk þess er nú gert ráð fyrir samtals 11 ma.kr. hærri arðgreiðslum, t.d. frá Landsvirkjun.
Áætluð hækkun gjalda skýrist að miklu leyti af gjaldfærslu vegna skuldbindingar ríkissjóðs vegna svonefnds varúðarsjóðs fyrir lífeyrisaukasjóð A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
Samhliða vinnslu fjárlagafrumvarps í haust verða tekju- og gjaldaheimildir ársins endurmetnar með heildstæðum hætti og gerð grein fyrir því endurmati í greinargerð fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.
Niðurstaða – breytingartillögur.
Meiri hlutinn hefur sérstaklega kannað nokkur mál sem tengjast tillögum sem fram koma í frumvarpinu og einnig mál sem tengjast áherslum sem fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Lagðar eru til þrjár breytingartillögur.
1. Eftir endurmat á þeim útgjaldatilefnum sem fram koma í frumvarpinu er lagt til að framlögum til byggingar Þjóðarhallar verði ekki hliðrað um 500 m.kr. heldur 350 m.kr. Er það í samræmi við uppfærða áætlun um framgang verkefnisins og í samræmi við kostnaðarskiptingu milli ríkisins og Reykjavíkurborgar.
2. Í því skyni að breytingin leiði ekki til hækkunar heildargjalda er jafnframt lagt til að draga enn frekar úr framlögum Orkusjóðs um 150 m.kr. Það er einnig í samræmi við nýjustu áætlanir um útgreiðslur úr sjóðnum.
3. Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem stefnt er að sterku samkeppniseftirliti og öflugri neytendavernd er lagt til veita 80 m.kr. til málefnasviðs 16 Markaðseftirlit og neytendamál. Tillagan byggist að hluta til á ábendingum sem fram koma í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Samkeppniseftirlitið til að bregðast við verkefnastöðu stofnunarinnar sem og auknum kostnaði hjá áfrýjunarnefnd samkeppnismála. Tillagan er einnig í samræmi við áherslur í framlagðri fjármálaáætlun þar sem lagt er til að framlög til málefnasviðsins í heild hækki um 200 m.kr. árið 2026.
Meiri hlutinn leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
| Skv. frv. m.kr. |
Breyting m.kr. |
Samtals m.kr. |
||
| Breytingar á sundurliðun 1: | ||||
| 15 Orkumál | ||||
| 1. | Við 15.10 Stjórnun og þróun orkumála | |||
| 14 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti | ||||
|
a.
Fjármagnstilfærslur
|
-1.200,0 | -150,0 | -1.350,0 | |
|
b.
Framlag úr ríkissjóði
|
-1.450,0 | -150,0 | -1.600,0 | |
| 16 Markaðseftirlit og neytendamál | ||||
| 2. | Við 16.10 Markaðseftirlit og neytendamál | |||
| 04 Atvinnuvegaráðuneyti | ||||
|
a. Rekstrarframlög
|
80,0 | 80,0 | ||
|
b.
Framlag úr ríkissjóði
|
80,0 | 80,0 | ||
| 18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál | ||||
| 3. | Við 18.40 Íþrótta- og æskulýðsmál | |||
| 02 Mennta- og barnamálaráðuneyti | ||||
|
a. Fjárfestingarframlög
|
-500,0 | 150,0 | -350,0 | |
|
b.
Framlag úr ríkissjóði
|
-500,0 | 150,0 | -350,0 | |
Alþingi, 18. júní 2025.
| Ragnar Þór Ingólfsson, form., frsm. |
Arna Lára Jónsdóttir. | Dagur B. Eggertsson. | |
| Eiríkur Björn Björgvinsson. | Heiða Ingimarsdóttir. | ||