Ferill 479. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 755  —  479. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um starfslok vararíkissaksóknara.

Frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur.


     1.      Hver verður kostnaður við starfslok Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara? Svar óskast sundurliðað eftir launum, föstum greiðslum, lífeyrissjóðsgjöldum og öðrum launatengdum gjöldum.
     2.      Telur ráðherra að unnt sé að bregðast við því á fullnægjandi hátt samkvæmt gildandi lögum þegar æðsti handhafi ákæruvalds lýsir undirmann sinn vanhæfan í öllum málum en enginn hefur vald til að leysa undirmanninn frá störfum án samþykkis hans?
     3.      Hefur ráðherra í hyggju að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, lögum um meðferð sakamála eða öðrum lögum til að skýra viðbrögð við sambærilegar aðstæður síðar?


Skriflegt svar óskast.