Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 756 — 223. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um fjármálastefnu fyrir árin 2026–2030.
Frá minni hluta fjárlaganefndar.
Minni hluti fjárlaganefndar telur gagnrýnivert hvernig staðið er að framlagningu fjármálastefnu fyrir árin 2026–2030. Eins og fram kemur í umsögn fjármálaráðs var fjármálastefna lögð fram nánast samhliða fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 þrátt fyrir að lög kveði skýrt á um að fjármálastefna skuli samþykkt áður en fjármálaáætlun kemur til umræðu. Að baki aðskilnaði framlagningar fjármálastefnu og fjármálaáætlunar liggur sú hugmyndafræði að fjármálastefnan sé forsenda fyrir nánari markmiðum fjármálaáætlunar og verði því að standa sjálfstæð. Af þessu leiðir að hugsanlega þurfi að fresta afgreiðslu fjármálaáætlunar, sé ekki nægilegur tími til afgreiðslu hennar á vorþingi. Þessi nálgun rýrir trúverðugleika stefnumörkunar í opinberum fjármálum og gerir hana að sýndarmennsku frekar en raunverulegu stjórntæki.
Aukið óvissuástand.
Frá því að fjármálastefnu var útbýtt hinn 25. mars sl. hefur óvissa um þróun alþjóðahagkerfisins aukist til muna. Á þessum tíma hefur ríkisstjórnin boðað aukin útgjöld til varnarmála og samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar þarf að draga úr þorskafla á komandi árum, svo að dæmi séu tekin. Þá sér ekki fyrir endann á tollastríði helstu viðskiptablokka heimsins. Þessar nýju áskoranir draga enn frekar úr trúverðugleika þeirra forsendna sem fjármálastefnan byggist á.
Í áliti fjármálaráðs um fyrirliggjandi fjármálastefnu er sérstaklega vikið að óvissu í efnahagsmálum. Í álitinu kemur eftirfarandi fram: ,,Búa þarf í haginn fyrir næsta áfall. Það er ekki aðeins staða efnahagsmála sem kallar á varfærna fjármálastefnu. Það gerir einnig staða opinberra fjármála, með tilheyrandi þýðingu fyrir viðnámsþrótt þjóðarbúsins. Svigrúm hins opinbera til að mæta efnahagsáföllum nú er heilt yfir minn en í aðdraganda þeirra stóru efnahagsáfalla sem riðið hafa yfir það sem af er 21. öldinni; fjármálakreppunnar og heimsfaraldursins. Skyldi álíka stórt áfall ríða yfir nú er því hætt við að stjórnvöld væru í nokkuð veikari færum en áður, frá sjónarhóli opinberra fjármála, til að styðja við heimili og fyrirtæki. Hættan á stórum efnahagsáföllum hefur ekki minnkað heldur aukist, ef eitthvað er, í ljósi varhugaverðrar stöðu í alþjóðamálum.“ Minni hlutinn tekur undir þessi orð en furðar sig á því að fjármálastefnan taki ekki mið af þessum orðum sem þó standa í stefnunni skýrum stöfum.
Í umsögn fjármálaráðs kemur einnig fram mikilvægi þess að hugað sé að fjölmörgum þáttum, þar sem breytingar hafa bein áhrif á efnahag heimila og rekstrarskilyrði fyrirtækja. „Mikilvægt er að stefnan stuðli að skilvirku og réttlátu skattkerfi og styðji um leið við hagvaxtargetu þjóðarbúsins og efnahagslegan stöðugleika.“ Erfitt er að sjá hvernig stefnan tekur tillit til þessara sjónarmiða, m.a. með hliðsjón af boðuðum hækkunum veiðigjalds og öðrum skattahækkunum/breytingum.
Aukinn raunvöxtur.
Í greinargerð með fjármálastefnu kemur eftirfarandi fram: „Framangreind markmið um útgjaldaþróun grundvallast á áformum um hóflegan raunvöxt útgjalda ríkissjóðs í samræmi við skilyrði stöðugleikareglu. Undirliggjandi áætlanir gera ráð fyrir að raunvöxtur útgjalda á þennan mælikvarða verði 2,6% á milli áranna 2025 og 2026 en 1,3% að jafnaði á síðari árum stefnunnar. Það er innan þess hámarks sem stöðugleikareglan veitir, en eins og fram hefur komið nemur það 2,0% árlega að teknu tilliti til tekna af nýjum tekjuráðstöfunum til hækkunar eða lækkunar. Að teknu tilliti til nýrra tekjuráðstafana sem áformaðar eru á milli áranna 2025 og 2026, og greint er frá nánar í fjármálaáætlun, er nettóútgjaldaauki á næsta ári vel innan þess sem heimilað er samkvæmt reglunni. Hóflegur raunvöxtur útgjalda á tímabili stefnunnar er forsenda þess að markmið um bætta afkomu hins opinbera náist.“
Athyglisvert er að ríkisstjórnin beitir ekki aðhaldsaðgerðum til að tryggja að raunvöxtur útgjalda milli áranna 2025 og 2026 verði ekki undir þeim mörkum sem ríkisstjórnin vill þó binda í lög. Boðaðar hagræðingaraðgerðir taka því í fyrsta lagi gildi á seinni hluta fjármálastefnunnar og þar með fjármálaáætlunar.
Betur færi á því að í fjármálastefnu væru a.m.k. kynnt þau hagræðingarverkefni sem leiða til þess að afkomumarkmið næstu ára náist frekar en ella. Ekki þarf að leggja fram útfærðar tillögur en þó einhvers konar vísbendingu um aðhald í rekstri ríkisins, verkefni sem frestað verður eða hvernig draga megi úr rekstri ríkisins, svo sem með sameiningu stofnana.
Stöðugleikaregla.
Vísað er í fjármálastefnu til boðaðra breytinga á lögum um opinber fjármál með því að innleiða svokallaða stöðugleikareglu. Heiti hinnar boðuðu stöðugleikareglu er þó rangnefni. Stöðugleiki, eins og hann er skilgreindur í lögum um opinber fjármál og samkvæmt grundvallarkenningum hagfræðinnar, varðar aðgerðir hins opinbera sem taka eiga mið af hagsveiflu hverju sinni og snerta verðbólgu, atvinnustig og vaxtastig. Þessum aðgerðum er almennt ætlað að draga úr útgjöldum á tímum þenslu en styðja við hagkerfið í niðursveiflu. Hin boðaða stöðugleikaregla varðar miklu frekar takmörk á umfangi aukinna útgjalda milli ára séu þau ekki fjármögnuð og samsvarandi tekjuaukningu. Slík hugsun er þó nú þegar hluti af grunngildum laganna.
Sjálfbærni felur í sér langtímahugsun. Tilvísun til stöðugleika varðar aðgerðir til skamms tíma sem taka mið af hagsveiflu hverju sinni. Um gjörólík hugtök er að ræða sem þó eru tengd saman í greinargerð með frumvarpi um stöðugleikareglu vegna misskilnings.
Í áliti meiri hluta fjárlaganefndar um frumvarp um stöðugleikareglu segir að „leiði alþjóðlegar skuldbindingar Íslands á vettvangi Atlantshafsbandalagsins til stóraukinna framlaga á sviði öryggis- og varnarmála væri eðlilegt að taka tillit til þess með sama hætti eins og við veruleg frávik frá hagþróun og efnahagsforsendum í 5. gr. laga um opinber fjármál og gerir breytingartillögu þess efnis. Jafnframt bendir meiri hlutinn þó á að til langs tíma miðar stöðugleikareglan við að ef hækka þarf útgjöld um tugi milljarða króna vegna varnartengdra verkefna þá þarf á móti að fjármagna þau með skattkerfisbreytingum eða með breyttri forgangsröðun annarra útgjalda.“
Ljóst er að framlög til varnarmála stóraukast á næstu árum jafnvel þótt aðeins sé miðað við 1,5% af landsframleiðslu. Ekki verður séð annað en að álit meiri hluta fjárlaganefndar leggi grunninn að því að slík aukning útgjalda raski verulega ef ekki alveg áformum um skuldalækkun ríkisins auk þess sem ólíklegt er að hægt verði með góðu móti að finna tekjustofna sem fjármagni aukalega tugi milljarða árlega sem fari í varnarmál, án þess að slíkt hafi veruleg áhrif á aðrar forsendur fjármálastefnu, fjármálaáætlunar og fjárlaga hvers árs. Nú stefna Evrópuþjóðir jafnframt að því að hækka framlag til varnarmála í allt að 5% af landsframleiðslu.
Þá er rétt að benda á að umdeilanlegt er að undanskilja fjárfestingar svokallaðri stöðugleikareglu. Ekki er æskilegt að allar fjárfestingar séu undanskildar, heldur greinarmunur gerður á þeim fjárfestingum sem til að mynda borga sig upp á um fimm árum og þeim sem borga sig upp á lengri tíma.
Þá má benda á að tilgangur almenns varasjóðs, sbr. 24. gr. laga um opinber fjármál, er að bregðast við „útgjöldum sem eru tímabundin, ófyrirsjáanleg, óhjákvæmileg og ekki er unnt að bregðast við með öðrum hætti.“ Mikilvægt er að almennur varasjóður verði stækkaður verulega næstu ár (og aðhald ríkisfjármála aukið til muna um leið) til að bregðast við þeim efnisþáttum sem undanskildir eru stöðugleikareglu, svo sem náttúruhamförum.
Þar sem reglur sem sambærilegar eru við boðaða stöðugleikareglu (útgjaldaviðmið) gilda erlendis, þótt engin þeirra vísi til stöðugleika, er yfirleitt ekki miðað við raunvöxt, nema þá með mjög skýrum útfærslum. Íslenska leiðin fer því gegn erlendum viðmiðum og fræðikenningum.
Enn fremur stangast boðuð stöðugleikaregla á við gildi um gagnsæi, sbr. 6. gr. laganna. Hugtakið „raunútgjöld“ er mjög flókið hugtak og engan veginn gagnsætt. Það kemur enn fremur hvergi fram í skilgreiningum laga um opinber fjármál. Að staðvirða opinber útgjöld til að kalla fram vöxt raunútgjalda er afar flókið og niðurstaðan oft ónákvæm þar sem margar verðvísitölur þarf að skoða eftir eðli útgjalda. Þá tekur vægi mismunandi útgjaldategunda stöðugum breytingum. Ríkisútgjöld samanstanda af fjölbreyttum liðum sem lúta ólíkri verðlagsþróun, mismunandi kostnaðarbreytingum milli ára, óstöðugu vægi einstakra útgjaldaflokka, og flóknum tæknilegum og framleiðnitengdum áhrifum, sem gerir nær ógerlegt að beita einni einfaldri og samræmdri 2% reglu um raunvöxt án þess að fórna nákvæmni, gagnsæi og trúverðugleika í opinberum fjármálum.
Loks er rétt að taka fram að boðuð stöðugleikaregla/útgjaldaregla nær einungis yfir 80% ríkisútgjalda, m.a. í ljósi þeirra þátta sem undanskildir eru, sem gerir fyrrnefnt 2% viðmið um raunvöxt í raun enn rýmra en ella.
Skuldir lækka aðeins hlutfallslega vegna vaxtar hagkerfisins.
Skuldastaða hins opinbera virðist batna samkvæmt áætlunum ríkisstjórnarinnar en sú lækkun er eingöngu vegna þess að hagkerfið er að vaxa. Engin raunveruleg niðurgreiðsla skulda mun eiga sér stað á næstu fimm árum. Þetta er augljós veikleiki í fjármálastefnunni þar sem ekki er gripið til raunverulegra aðgerða til að styrkja fjárhagsstöðu hins opinbera með niðurgreiðslu skulda. Um leið er fjármálastefna sett fram með nánast villandi forsendum.
Í framangreindu ljósi bendir fjármálaráð á að framlögð stefna feli í sér að afkoma hins opinbera sem hlutfall af vergri landsframleiðslu (VLF) muni batna og skuldir hins opinbera sem hlutfall af VLF muni lækka þar sem raunvöxtur útgjalda verði minni en vöxtur vergrar landsframleiðslu. Með öðrum orðum, bætt afkomu- og skuldaviðmið eiga að nást í gegnum nefnara þessara viðmiða þar sem gengið er út frá því að hagkerfið muni vaxa að raunvirði. Óvenjumikil óvissa ríkir um hagvöxt og stjórnvöld hafa lítil bein áhrif á hann til skamms tíma. Hins vegar hafa stjórnvöld bein áhrif á ríkisútgjöldin sjálf, sem er stærð með minni óvissu. Það væri því varfærnara og trúverðugra ef stefnan miðaði að því að bæta afkomu- og skuldaviðmið með minni aukningu eða samdrætti ríkisútgjalda í stað þess að treysta á hagvöxt.
Skuldaþróunaráætlun – yfirlit í stað áætlunar.
Í greinargerð með fjármálastefnu kemur eftirfarandi fram um boðaða stöðugleikareglu: „Með frumvarpinu [um breytingar á lögum um opinber fjármál] er gert ráð fyrir að afkomuregla laganna verði felld brott þar sem hún samrýmist ekki nægilega vel sveiflujöfnunarvirkni nýju stöðugleikareglunnar. Sama gildir um tölusetta skuldalækkunarreglu laganna í núverandi mynd. Í staðinn verði tekinn upp nýr þáttur í fjármálastefnu sem feli í sér að þegar skuldir eru umfram hámarkið þurfi stjórnvöld að setja fram skýra skuldaþróunaráætlun á grundvelli greiningar á því hvernig skilyrði laganna um tölusett skuldahámark verði uppfyllt innan ásættanlegs tíma með hliðsjón af stöðu ríkisfjármála og horfum í efnahagsmálum. Slíka áætlun er að finna neðar í þessari greinargerð.“
Þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi sett fram „skuldaþróunaráætlun“ sem hluta af fjármálastefnu sinni fyrir árin 2026–2030 er í raun vart hægt að tala um eiginlega áætlun. Þetta má meðal annars leiða af eftirfarandi röksemdum:
Óskýr tímasetning og markmið ná langt í framtíðina.
Hin meinta skuldaþróunaráætlun stjórnvalda gerir ráð fyrir að lögbundið skuldamarkmið, um að skuldahlutfall hins opinbera verði undir 30% af VLF, náist ekki fyrr en eftir 10–20 ár (2037–2038). Slíkt tímamark fellur illa að kröfum laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, þar sem gerð er krafa um að fjármálastefna og áætlanagerð sé skýr, raunhæf og nákvæmlega tímasett.
Engar raunhæfar aðgerðir tilgreindar.
Áætlun stjórnvalda inniheldur engar sundurliðaðar eða nákvæmlega útfærðar aðgerðir sem ætlaðar eru til þess að tryggja markmiðin sem sett eru fram. Stefnt er einfaldlega að því að afkoma hins opinbera verði jákvæð um ákveðið hlutfall af landsframleiðslu frá árinu 2030, án þess að tilgreina hvernig eigi að ná því markmiði með tilteknum aðgerðum eða fjárhagslegri stjórnun.
Skortur á skýrum lagalegum kröfum um framsetningu.
Í frumvarpinu um hina svokölluðu stöðugleikareglu eða skuldaþróunaráætlun eru engin skilyrði sett fram um það hvernig skuldaþróunaráætlun skuli útfærð eða kynnt með nákvæmum hætti. Þar af leiðandi er hægt að fullyrða að áætlunin sem lögð er fram af ríkisstjórninni sé lítið annað en almenn yfirlýsing eða viljayfirlýsing um hugsanlega framtíðarþróun, án raunverulegs efnis eða bindandi áætlunargerðar sem hægt sé að fylgja eftir eða meta með áþreifanlegum hætti.
Ósamræmi við grunngildi laga um opinber fjármál.
Grunngildi 6. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál, eru skýr krafa um að fjármálastefna skuli vera gagnsæ, ábyrg og markviss, byggjast á skýrum og mælanlegum markmiðum og fylgja eigi eftir með raunhæfum og skilgreindum aðgerðum. Hin framlagða skuldaþróunaráætlun uppfyllir ekki þessi grunngildi laganna, enda er markmiðasetning langt fram í tímann og út fyrir gildistíma fjármálaáætlunar fyrir árin 2026–2030 og án þess að skýr aðgerðaskref séu kynnt eða bundin í tímasettri framkvæmdaáætlun.
Því verður að fullyrða að það sem ríkisstjórnin kallar skuldaþróunaráætlun sé í raun ekki áætlun heldur fremur almenn yfirlýsing eða stefnuyfirlýsing sem fellur ekki nægilega vel að markmiðum og grunngildum laga um opinber fjármál. Án raunhæfrar útfærslu, mælanlegra aðgerða og skýrra lagaákvæða um framsetningu áætlunarinnar er því erfitt að halda því fram að um eiginlega skuldaþróunaráætlun sé að ræða.
Tekjustefna (skattastefna) án innihalds – óvissa um hallalaus fjárlög 2027.
Tekjustefna ríkisstjórnarinnar í fjármálastefnunni er óljós og almennt orðuð án þess að koma með raunhæf úrræði eða skýrar aðgerðir. Minni hlutinn gagnrýnir harðlega að tekjustefnan segi í raun ekkert og skapi þannig verulega óvissu um hvort markmið um hallalaus fjárlög ríkisins árið 2027 standist. Óskýr stefnumörkun varðandi tekjuöflun dregur úr trúverðugleika áætlunarinnar. Þá liggur ekkert fyrir um auknar tekjur af auðlindanýtingu, svo sem í ferðaþjónustu, og frumvarp um veiðigjald er í uppnámi á Alþingi.
Þess má geta að tekjustefna ríkisstjórnarinnar eins og hún birtist í fjármálastefnu telur 370 orð, sem jafngildir stuttri grein á samfélagsmiðlum.
Betur færi á því að fjármálastefnan innihéldi heildarsýn stjórnvalda á gjaldtöku í greinum á borð við ferðaþjónustu, sjávarútvegs og á sviði orkumála.
Síðast en ekki síst ber að vekja athygli á því að útgjöld hafa og munu aukast til muna, ýmist vegna þegar samþykktra frumvarpa ríkisstjórnarinnar og þess sem stefnt er að afgreiðslu á, svo sem stofnunar þjóðaróperu, tengingar örorkubóta við launavísitölu og svonefnds sorgarleyfis.
Athugasemdir og ábendingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).
AGS hefur nýlega birt mat á stöðu íslensks efnahags (e. Iceland: Staff Concluding Statement of the 2025 Article IV Mission). Að sögn AGS kólnaði efnahagurinn hratt árið 2024 en vænta má aukins vaxtar árið 2025 og 2026. Verðbólga er þrálát og mun ekki ná verðbólgumarkmiði fyrr en seint árið 2026. AGS telur mikilvægt að fara varlega í vaxtalækkanir og bendir á að aukin áhætta sé til staðar vegna verðbólguvæntinga og alþjóðlegrar óvissu.
AGS telur markmið um hallalausan rekstur árið 2028 fyrir hið opinbera jákvæð. Hins vegar bendir AGS á mikilvæga veikleika, þar á meðal of litla fjárfestingu, skort á trúverðugleika varðandi tekjuöflunaraðgerðir og ófullnægjandi gagnsæi og eftirlit. Sérstaklega er bent á að ríkisstjórnin treysti of mikið á aðgerðir sem ekki hafi verið lögfestar.
Æskilegt er að tekið sé tillit til nýjustu umsagnar AGS um stöðu efnahagsmála á Íslandi við gerð fjármálastefnu til næstu ára.
Afkomumarkmið langt frá raunhæfum þörfum.
Minni hlutinn bendir á að afkomumarkmið fjármálastefnunnar eru fjarri því að vera nægjanleg sé tekið mið af áskorunum næstu ára. Af því leiðir að þegar umræða um fjármálaáætlun hefst þá hlýtur hún að byggjast á mjög veikum grunni. Þá liggur ekkert fyrir um svokallaðar hagræðingaraðgerðir, svo erfitt er að segja hvort útgjaldaþróun næstu ára sé innan skekkjumarka, en ljóst er að draga þarf úr útgjöldum til að auka heildarjöfnuð og hefja almennilega niðurgreiðslu skulda. Í þessu ljósi er rétt að vekja athygli á því að svo virðist sem ekki sé stefnt að því að hagræðing í ríkisrekstri leiði til aukins rýmis til að greiða markvisst niður skuldir á næstu árum.
Margar af grunnforsendum efnahagsmála eru ekki nægilega vel skilgreindar eða metnar í forsendum fjármálastefnunnar. Þannig þyrfti að fjalla frekar um þrýsting vinnuaflsþarfar á launaþróun. Veruleg óvissa um þróun vinnumarkaðar og launa næstu ár og engar hagræðingaraðgerðir boðaðar innan ríkisins. Rétt er að taka fram að orðið „vinnumarkaður“ kemur einu sinni fyrir í greinargerð með fjármálastefnunni.
Sveitarfélögin gleymast – furðulegur skortur á umræðu.
Megintilgangur laga um opinber fjármál er að ná yfir hagstjórn landsins almennt, þ.m.t. sveitarfélög. Í fjármálastefnunni er hins vegar lítið sem ekkert fjallað um stöðu sveitarfélaga, sem er einfaldlega furðulegt í ljósi mikilvægis þeirra fyrir hagstjórn og opinber fjármál. Skýra verður betur forsendur markmiða fjármála hins opinbera og í hverju samkomulag ríkis og sveitarfélaga fólst í aðdraganda að mótun fjármálastefnu fyrir árin 2026–2030. Jafnframt þarf að útskýra raunsæi markmiða í fjármálum hins opinbera og þar með hvernig sveitarfélög muni standa gagnvart fjármálastefnunni. Það skal jafnframt tekið fram að stefnan byggir á því að skuldir sveitarfélaga lækki að nokkru.
Samantekt.
Margvíslegir þættir valda því að erfitt ef ekki útilokað er að fjalla á ábyrgan hátt um forsendur fjármálastefnunnar. Mikil óvissa er um efnahagslegar forsendur stefnunnar, tekjuforsendur næstu ára eru afar veikar, afkomu- og skuldabati byggist óþarflega mikið á óöruggum hagvaxtarforsendum auk þess sem afkomubati er það sem kallað er afturhlaðinn, þ.e. meiri hluti skuldalækkunar á að koma fram undir lok tímabilsins og jafnvel eftir áratug eða svo. Jafnframt eru lagaskilyrði skuldaþróunaráætlunar óljós og þar með ófullnægjandi. Boðuð stöðugleikaregla er í besta falli veik útgjaldaregla, raunvaxtahámark útgjalda er rúmt og verður að líta á sem hámark en ekki markmið, og þá liggur ekkert fyrir um hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar.
Þá ber að geta þess að ýmsa þætti efnahagsþróunar næstu ára skortir í forsendur fjármálastefnunnar, svo sem lýðfræðilega þróun. Öldrun þjóðarinnar er alvarlegt áhyggjuefni og sér litið til þróunar næstu ára hérlendis og hún borin saman við stöðuna á öðrum Norðurlöndum er ljóst að áhrif á vinnumarkað og útgjöld ríkisins verða meiri háttar. Um eina af stærstu áskorunum vestrænna hagkerfa er að ræða, sem fjármálastefnan nefnir þó ekki einu orði. Þaðan af síður bera afkomumarkmið stefnunnar þess merki að verið sé að undirbúa áskoranir framtíðarinnar, svo sem með tilliti til aukinnar þjónustu við þá sem eldri eru.
Síðast en ekki síst er alvarlegt að fjármálaráð geri alvarlegar athugasemdir við gegnsæi og trúverðugleika fjármálastefnu. Athugasemdir ráðsins eru víðtækar og raunar fordæmalausar. Gagnrýnin varðar bæði form og efni, tímasetningu framlagningar stefnunnar, veikburða afkomumarkmið, óljós hagræðingaráform, veika stöðugleikareglu, óvissu í efnahagsmálum sem ekki sé nægjanlega tekið tillit til og almennt ógegnsæi, svo sem um tekjustefnu næstu ára.
Að framangreindu virtu telur minni hlutinn framlagða þingsályktunartillögu um fjármálastefnu fyrir árin 2026–2030 ekki tæka til efnismeðferðar án frekari uppfærslu og lagfæringa, einkum með tilliti til afkomu- og skuldamarkmiða hennar. Jafnframt væri það gegn anda laga um opinber fjármál og almennrar skynsemi að samþykkja fjármálastefnuna óbreytta í ljósi ábendinga og athugasemda fjármálaráðs. Hlutverk ráðsins er að leggja mat á hvort fjármálastefna (og fjármálaáætlun) fylgi þeim grunngildum sem talin eru í 2. mgr. 6. gr. og skilyrðum 7. gr. Augljóst er að svo er ekki.
Alþingi, 19. júní 2025.
| Guðlaugur Þór Þórðarson, frsm. |
Stefán Vagn Stefánsson. | Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. |
| Þorgrímur Sigmundsson. |