Ferill 251. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 758 — 251. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuviðskipti).
Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá Elmu orkuviðskiptum, HS Orku, Landsneti, Landsvirkjun, Norðuráli, Orku náttúrunnar, Raforkueftirlitinu, Rarik ohf., Samáli, Samkeppniseftirlitinu, Samorku, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og Vonarskarði ehf.
Nefndinni bárust 19 umsagnir um málið auk minnisblaðs frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á raforkulögum, nr. 65/2003, sem mæla fyrir um tilteknar háttsemi- og eftirlitsreglur á sviði raforkuviðskipta með það að markmiði að tryggja gagnsæi og heiðarleika á raforkumarkaði.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
Við umfjöllun nefndarinnar og í umsögnum sem henni bárust eru gerðar athugasemdir við ákvæði um gildistöku laganna og lagt til að betur færi á að fresta gildistöku ákveðinna ákvæða í frumvarpinu svo að aðilum á raforkumarkaði gefist betra færi á að aðlaga sig breyttu regluverki.
Í umsögnum er því einnig haldið fram að frumvarpið taki ekki nægjanlega tillit til þeirra breytinga sem gerðar voru á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins með setningu reglugerðar (ESB) nr. 2024/1106 (REMIT II). Tilgangur REMIT II er einkum sá að festa í sessi þær túlkanir og framkvæmdaleiðbeiningar sem mótast höfðu í framkvæmd reglugerðarinnar. Að mati meiri hlutans er að nokkru leyti um að ræða útfærslu- og túlkunaratriði sem unnt væri að skýra frekar með leiðbeiningum Raforkueftirlitsins og/eða með setningu reglugerða. Meiri hlutinn áréttar að hvorki REMIT né REMIT II hafa verið innleiddar í EES-samninginn.
Í umsögn sinni til nefndarinnar leggur Rarik til að viðmið um aðila sem falla undir hugtakið stórnotendur samkvæmt skilgreiningu í 19. tölul. 3. gr. raforkulaga verði hækkað í 600 GWst. Meiri hlutinn bendir á að viðmið um stórnotendur er ekki til umfjöllunar í frumvarpinu og telur því ekki tilefni til að bregðast við tillögu Rariks.
Þá voru gerðar athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins, en heilt yfir er það mat meiri hlutans að flestir umsagnaraðilar fagni því að til standi að setja skýrar leikreglur á raforkumarkaði á Íslandi. Ljóst sé að án skýrra leikreglna kunni að vera hætt við því að markaðsmisnotkun eigi sér stað. Það er mat meiri hlutans að afgreiðsla frumvarpsins sé mikilvæg, það tryggi fyrirsjáanleika á raforkumarkaði og auki gagnsæi og traust.
Í umsögn Samtaka iðnaðarins er kallað eftir því að skýrt verði hvaða upplýsingar stórnotenda teljast vera innherjaupplýsingar sem þeim ber að birta. Hluti þeirra upplýsinga sem geta haft áhrif á raforkuverð sé bundinn trúnaði samkvæmt samningum. Þá geti birting ákveðinna upplýsinga skaðað hagsmuni viðkomandi fyrirtækis og móðurfyrirtækja þeirra. Telja samtökin mikilvægt að það liggi fyrir hvaða upplýsingar skuli birta og um hvaða upplýsingar trúnaður skuli ríkja, svo sem mikilvæga hagsmuni viðskiptavina raforkufyrirtækja.
Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið í umsögn samtakanna og telur mikilvægt að tiltaka að meðal upplýsinga sem stórnotendum væri skylt að birta gæti talist ófyrirséð rafmagnsleysi eða truflanir, fyrirhugað viðhald eða breytingar á eftirspurn, langtímabreytingar á eftirspurn, skuldbindingar um truflandi álag og þátttaka á orkumarkaði. Meiri hlutinn telur rétt að árétta að í undantekningartilvikum er markaðsaðila heimilt að fresta á eigin ábyrgð birtingu innherjaupplýsinga þegar það er nauðsynlegt til að skerða ekki lögmæta hagsmuni hans. Skilyrði fyrir frestun eru að hún villi ekki um fyrir almenningi, markaðsaðili geti tryggt trúnað um upplýsingarnar og taki ekki ákvarðanir um viðskipti með heildsöluorkuafurðir á grundvelli þeirra.
Breytingartillögur meiri hlutans.
Skilgreiningar (1. gr.).
Í umsögn Raforkueftirlitsins eru gerðar athugasemdir við skilgreiningar sem lagðar eru til í 1. gr. frumvarpsins. Eru athugasemdirnar ítarlegar og telur meiri hlutinn tilefni til að bregðast við nokkrum þeirra. Þannig leggur meiri hlutinn til að skilgreiningu markaðsaðila, aðila, innherjaupplýsinga og innherjasvika verði breytt til samræmis við það sem fram kemur í umsögn Raforkueftirlitsins.
Aðili. Meiri hlutinn leggur til að við 1. gr. frumvarpsins verði bætt skilgreiningu á hugtakinu aðili til samræmis við REMIT-reglugerðina. Breytingin sé til þess fallin að gera skýrari greinarmun á hugtökunum aðili, markaðsaðili og milligönguaðili í raforkuviðskiptum.
Heildsöluorkuafurð. Í frumvarpinu er lagt til að hugtakið heildsöluorkuafurð verði skilgreint þannig að samningar um afhendingu raforku til notenda undir 600 GWst á ári falli utan þess. Í umsögn sinni til nefndarinnar leggur Raforkueftirlitið til að til heildsöluorkuafurða teljist samningar um afhendingu, flutning og dreifingu raforku til notenda sem nota yfir 80 GWst á ári, innan þriggja ára á einum stað.
Í REMIT-reglugerðinni er lagt til grundvallar að samningar um afhendingu raforku til almennra notenda eru almennt ekki viðkvæmir fyrir markaðsmisnotkun. Hins vegar geta ákvarðanir stórnotenda haft marktæk áhrif á verðmyndun. Þar af leiðandi teljast samningar við notendur með notkun yfir 600 GWst heildsöluorkuafurðir í evrópsku samhengi. Þar sem íslenska raforkukerfið er ekki tengt öðrum kerfum má ætla að marktæk áhrif á verðmyndun komi fram við lægri notkun en á meginlandi Evrópu.
Meiri hlutinn telur því rétt að fallast á sjónarmið í umsögn Raforkueftirlitsins og í minnisblaði ráðuneytisins og leggja til að samningar við stórnotendur verði hluti af skilgreiningu heildsöluorkuafurðar. Þannig muni til heildsöluorkuafurðar teljast samningar um afhendingu á raforku, afleiður sem tengjast raforku sem er framleidd, höfð eru viðskipti með eða afhentar, samningar sem varða flutning og dreifingu á raforku, afleiður sem varða flutning og dreifingu á raforku, samningar sem varða geymslu á raforku, afleiður sem varða geymslu á raforku og samningar um afhendingu, flutning eða dreifingu á raforku til stórnotenda. Með breytingartillögu meiri hlutans yrði skýrt að stórnotendur teldust stunda viðskipti með raforku á heildsöluorkumarkaði en ekki smásölumarkaði.
Sem dæmi um upplýsingar stórnotenda sem þyrfti að birta mætti nefna: ófyrirséð rafmagnsleysi eða truflanir, fyrirhugað viðhald eða breytingar á eftirspurn, langtímabreytingar á eftirspurn, skuldbindingar um truflandi álag og þátttaka á orkumarkaði.
Innherjaupplýsingar. Meiri hlutinn leggur til að hugtakið innherjaupplýsingar verði skilgreint til samræmis við reglugerðina REMIT II. Er þeim breytingum ætlað að veita markaðsaðilum aukið réttaröryggi og auka skýrleika. Þá leggur meiri hlutinn til að breytt skilgreining verði felld undir 20. gr. g, sbr. g-lið 5. gr. frumvarpsins.
Innherjasvik. Meiri hlutinn leggur til að skilgreining hugtaksins innherjasvik verði felld brott úr 1. gr. frumvarpsins, þar sem hugtakinu eru þegar gerð greinargóð skil í ákvæði 20. gr. b, sbr. b-lið 5. gr. frumvarpsins, sbr. og tillögu meiri hlutans hér á eftir.
Markaðsaðili. Meiri hlutinn leggur til að hugtakið markaðsaðili verði skilgreint til samræmis við REMIT-reglugerðina. Skilgreiningin verði skýrari og taki af vafa um að bæði flutningsfyrirtækið og dreifiveitur teljast markaðsaðilar á heildsöluorkumarkaði. Þá leggur meiri hlutinn til að skilgreiningin nái einnig til þeirra sem eiga í viðskiptum og/eða gefa fyrirmæli um viðskipti. Að endingu leggur meiri hlutinn til að orðin „í atvinnuskyni“ falli brott úr skilgreiningunni.
Gagnaskil markaðsaðila (5. gr.).
Meiri hlutinn leggur til breytingar á 5. gr. frumvarpsins sem kveður á um að bæta við raforkulög sjö nýjum greinum sem er ætlað að gera skyldur til gagnaskila skýrar og afdráttarlausar.
Lagt er til að í nýrri 20. gr. d verði fjallað um skráningu markaðsaðila, í samræmi við skráningarskyldu REMIT-reglugerðarinnar, sem tryggir eftirlitsaðilum yfirsýn. Í umsögn sinni til nefndarinnar telur Raforkueftirlitið að ákvæði frumvarpsins séu ófullnægjandi hvað þetta varðar og ekki líkleg til að ná þeim árangri sem þeim er ætlað. Gagnsæi og eftirlit með markaðsviðskiptum verði ekki tryggt með núverandi orðalagi frumvarpsins.
Styrkja þurfi valdheimildir Raforkueftirlitsins og færa þær nær þeim sem eiga við um sambærilegar eftirlitsstofnanir líkt og Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið.
Í tillögu meiri hlutans er að finna hugtakið skynsamur markaðsaðili, en með því er vísað til hugtaksins bonus pater familias, þ.e. huglægs mælikvarða á það hvernig hinn góði og gegni þegn hegði sér við tilteknar aðstæður.
Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið Raforkueftirlitsins og leggur til breytingu sem er ætlað að gera ákvæðið afdráttarlaust um að í því felist skylda markaðsaðila, þriðju aðila sem koma fram fyrir hönd markaðsaðila og viðskiptavettvang eða milligönguaðila í raforkuviðskiptum til að standa skil á gögnum til Raforkueftirlitsins.
Bann við innherjasvikum (b-liður 5. gr.).
Meiri hlutinn leggur til breytingu á b-lið 5. gr. frumvarpsins, þar sem lögð er til ný grein (20. gr. b). Meiri hlutinn telur að betur fari á því að skilgreina hugtakið innherjasvik þar, svo reglugerðarheimild og heimild Raforkueftirlitsins til að setja leiðbeiningar um túlkun á innherjasvikum byggist fremur á sérstöku lagafrumvarpi en almennri heimild til setningar leiðbeininga skv. 3. mgr. 24. gr. laganna. Telur meiri hlutinn það til þess fallið að styrkja réttargrundvöll leiðbeininganna og koma í veg fyrir að ólögmæt háttsemi geti talist lögmæt á þeim grundvelli að leiðbeiningar Raforkueftirlitsins um innherjasvik hafi skort fullnægjandi lagastoð.
Birting innherjaupplýsinga.
Meiri hlutinn leggur til að fyrirsögn nýrrar greinar í c-lið 5. gr. (20. gr. c) verði „Opinber birting innherjaupplýsinga“. Þá leggur meiri hlutinn til breytingar á 1. efnismgr. sama liðar, sem ætlað er að skýra ákvæðið frekar og færa til samræmis við REMIT-reglugerðina.
Gildistaka.
Í umsögnum sem meiri hlutanum bárust kemur fram sú ósk aðila á raforkumarkaði að veittur verði frestur til aðlögunar, svo þeim gefist tækifæri til að bregðast við þeim breytingum sem lagðar eru til með frumvarpinu. Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið og leggur til að gildistöku ákvæðis 5. gr. frumvarpsins verði frestað um níu mánuði eða til apríl 2026.
Þá leggur meiri hlutinn til breytingar sem eru tæknilegs eðlis og þarfnast ekki frekari skýringar.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 13. júní 2025.
| Sigurjón Þórðarson, form. |
Eydís Ásbjörnsdóttir, frsm. |
Eiríkur Björn Björgvinsson. |
| María Rut Kristinsdóttir. | Lilja Rafney Magnúsdóttir. | Vilborg Kristín Oddsdóttir. |