Ferill 251. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.

Þingskjal 759  —  251. mál.
Breyttur texti.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuviðskipti).

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar (SigurjÞ, EÁs, EBB, MRK, LRM, VKO).


     1.      Við 1. gr.
                  a.      Við a-lið.
                      1.      Á undan 1. tölul. komi nýr töluliður, svohljóðandi: Aðili: Einstaklingur eða lögaðili.
                      2.      2. tölul. orðist svo: Heildsöluorkuafurð:
                          a.    Samningar um afhendingu á raforku.
                          b.    Afleiður sem tengjast raforku sem er framleidd, höfð eru viðskipti með eða afhentar.
                          c.    Samningar sem varða flutning og dreifingu á raforku.
                          d.    Afleiður sem varða flutning og dreifingu á raforku.
                          e.    Samningar sem varða geymslu á raforku.
                          f.    Afleiður sem varða geymslu á raforku.
                              Samningar um afhendingu, flutning og dreifingu á raforku til annarra notenda en stórnotenda teljast ekki heildsöluorkuafurðir.
                      3.      3. tölul. falli brott.
                      4.      4. tölul. orðist svo: Innherjaupplýsingar: Nægjanlega tilgreindar upplýsingar sem ekki hafa verið gerðar opinberar og varða, beint eða óbeint, eina eða fleiri heildsöluorkuafurð og eru líklegar, yrðu þær gerðar opinberar, til að hafa marktæk áhrif á verð heildsöluorkuafurðar sem þær varða. Hér er átt við:
                          a.    upplýsingar sem skylda er að birta samkvæmt ákvæðum raforkulaga, reglugerðum settum með stoð í þeim, og öðrum reglum, þ.m.t. netmálum flutningsfyrirtækisins,
                          b.    upplýsingar sem varða getu og nýtingu á búnaði til framleiðslu, notkunar eða flutnings raforku, þ.m.t. skipulegan eða ófyrirséðan ótiltækileika búnaðar,
                          c.    aðrar upplýsingar sem líkur eru á að hinn skynsami markaðsaðili mundi byggja á í ákvörðun sinni um viðskipti á heildsöluorkuafurðum eða viðskiptafyrirmæli.
                              Við beitingu 1. mgr. skal litið svo á að upplýsingar séu nægjanlega tilgreindar ef þær gefa til kynna aðstæður sem eru fyrir hendi eða sem telja má að verði fyrir hendi eða atburð sem hefur átt sér stað eða sem ætla má að muni eiga sér stað, ef þær eru nægjanlega nákvæmar til að unnt sé að draga ályktun um möguleg áhrif þeirra aðstæðna eða atburðar á verð heildsöluorkuafurða. Sé í þessu sambandi um að ræða langvarandi ferli sem ætlað er að ná fram eða sem veldur tilteknum aðstæðum eða tilteknum atburði má líta á þessar framtíðaraðstæður eða -atburð, og milliþrep í ferlinu sem tengjast því að ná fram eða valda þessum framtíðaraðstæðum eða -atburði, sem nægjanlega tilgreindar upplýsingar.
                              Milliþrep í langvarandi ferli ef það, eitt og sér, uppfyllir skilyrði um innherjaupplýsingar sem um getur í 1. mgr.
                              Að því varðar 1. mgr. skulu upplýsingar teljast tengjast beint eða óbeint heildsöluorkuafurð ef þær hafa hugsanleg áhrif á eftirspurn, framboð eða heildsöluorkuafurð, eða á væntingar um eftirspurn, framboð eða verð heildsöluorkuafurðar.
                              Að því er varðar 1. mgr. eru upplýsingar sem væru líklegar, yrðu þær gerðar opinberar, til að hafa marktæk áhrif á verð heildsöluorkuafurðar þær upplýsingar sem hinn skynsami markaðsaðili er líklegur til að nota sem hluta af þeim grunni sem hann byggir ákvörðun sína um að eiga viðskipti með heildsöluorkuafurð.
                      5.      5. tölul. orðist svo: Markaðsaðili: Til markaðsaðila telst hver sá aðili eða lögaðili, þ.m.t. flutningsfyrirtæki og dreifiveita, sem á í viðskiptum og/eða gefur fyrirmæli um viðskipti með heildsöluorkuafurð.
                  b.      Við b-lið bætist: og breytast númer síðari töluliða til samræmis við það.
     2.      Við 5. gr.
                  a.      Í stað orðanna „að taka þátt“ í a-lið (20. gr. a) komi: markaðsmisnotkunar eða þátttöku.
                  b.      Efnisgrein b-liðar (20. gr. b) orðist svo:
                      Aðilar sem búa að innherjaupplýsingum um heildsöluorkuafurðir raforku mega ekki:
                      a.    nota þær upplýsingar til að leggja inn viðskiptafyrirmæli, afturkalla eða breyta viðskiptafyrirmælum, fyrir eigin reikning eða reikning þriðja aðila, beint eða óbeint um heildsöluorkuafurð sem upplýsingarnar varða,
                      b.    miðla þeim upplýsingum til annarra nema miðlunin sé í eðlilegu sambandi við starf, stöðu eða skyldur,
                      c.    ráðleggja eða hvetja markaðsaðila til að kaupa eða selja heildsöluorkuafurð á grundvelli upplýsinganna. Fari markaðsaðili að slíkum ráðleggingum eða hvatningu teljast það innherjasvik ef markaðsaðili veit eða mætti vita að slíkt grundvallast á innherjaupplýsingum.
                      Ákvæði 1. mgr. gildir einnig um alla aðila sem búa yfir innherjaupplýsingum í tengslum við heildsöluorkuafurð vegna:
                      a.    setu sinnar í stjórn, starfs síns í framkvæmdastjórn eða eftirlitseiningum markaðsaðila,
                      b.    hlutdeildar í hlutafé markaðsaðila,
                      c.    aðgangs að upplýsingum í krafti starfs, stöðu eða skyldna,
                      d.    aðgangs að upplýsingum vegna þess að þeir eru viðriðnir refsiverða háttsemi,
                      e.    vitneskju um að um er að ræða innherjaupplýsingar.
                      Ákvæði 1. mgr. tekur ekki til:
                      a.    viðskipta kerfisstjórnar flutningsfyrirtækisins skv. 4. mgr. 9. gr.,
                      b.    viðskipta sem gerð eru til að uppfylla skyldu samkvæmt samningi um að afla eða ráðstafa heildsöluorkuafurð sem gerður hefur verið áður en viðkomandi hafði innherjaupplýsingar,
                      c.    viðskipta sem eru liður í neyðaraðgerðum á grundvelli laga þar sem stjórnvöld hafa gripið inn í til að tryggja örugga afhendingu raforku og markaðsfyrirkomulag hefur verið fellt tímabundið úr gildi,
                      d.    viðskipta vinnsluaðila sem gerð eru í þeim eina tilgangi að mæta beinu efnislegu tapi vegna ófyrirséðra truflana og misbrestur á því mundi leiða til þess að vinnsluaðilinn gæti ekki uppfyllt fyrirliggjandi samningsskuldbindingar eða vegna fyrirmæla frá flutningsfyrirtækinu í þeim tilgangi að tryggja öruggan og traustan rekstur kerfisins. Við slíkar aðstæður ber vinnsluaðila að tilkynna Raforkueftirlitinu um viðskiptin.
                  c.      1. efnismgr. c-liðar (20. gr. c) orðist svo:
                      Markaðsaðilar skulu birta opinberlega, á skilvirkan hátt og tímanlega innherjaupplýsingar sem þeir búa yfir er varða fyrirtæki eða aðstöðu sem hlutaðeigandi markaðsaðili, eða móðurfyrirtæki hans eða tengt fyrirtæki, á eða hefur yfirráð yfir eða ber rekstrarlega ábyrgð á að öllu eða nokkru leyti. Markaðsaðili skal tryggja að innherjaupplýsingarnar séu gerðar opinberar með þeim hætti sem gerir almenningi kleift að fá skjótan aðgang að upplýsingunum og leggja fullt, rétt og tímanlegt mat á þær. Birta skal jafnframt upplýsingar sem skipta máli um afkastagetu og notkun á búnaði til framleiðslu, geymslu, neyslu eða flutnings orku, þ.m.t. skipulagða og ófyrirséða óvirkni búnaðar sem umræddar innherjaupplýsingar varða.
                  d.      Fyrirsögn efnisgreinar c-liðar (20. gr. c) verði: Opinber birting innherjaupplýsinga.
                  e.      D-liður (20. gr. d) orðist svo:

                  Gagnaskil til Raforkueftirlitsins.

                      Markaðsaðilar eða aðilar sem koma fram fyrir þeirra hönd, viðskiptavettvangur raforku eða milligönguaðili í raforkuviðskiptum, skulu láta Raforkueftirlitinu í té skrá yfir viðskipti á heildsölumarkaði, þ.m.t. viðskiptafyrirmæli. Upplýsingarnar skulu innihalda nákvæma auðkenningu á keyptum og seldum heildsöluorkuafurðum, verð og magn sem hefur verið samið um, dagsetningar og tímasetningar viðskipta, samningsaðila í viðskiptum bæði milliaðila og endanlega samningsaðila viðskiptanna og allar aðrar upplýsingar sem skipta máli. Markaðsaðilar skulu greina frá útsettri áhættu í viðskiptum sínum eftir vörutegundum, þ.m.t. viðskipti sem eiga sér stað utan viðskiptavettvanga raforku. Markaðsaðili ber ábyrgð á gagnaskilum en hafi aðilar skv. 1. málsl. skilað gögnum um viðkomandi viðskipti telst gögnunum hafa verið skilað með fullnægjandi hætti. Upplýsingarnar skulu veittar í gegnum gagnagrunn Raforkueftirlitsins.
                      Rekstraraðilar viðskiptavettvanga raforku eða þriðju aðilar fyrir þeirra hönd skulu tilkynna Raforkueftirlitinu um skrá yfir viðskipti á heildsölumarkaði, þ.m.t. viðskiptafyrirmæli sem gerð eru með því að:
                      a.    veita Raforkueftirlitinu aðgengileg gögn varðandi pöntunarbók, í samræmi við þær leiðbeiningar sem Raforkueftirlitið setur,
                      b.    veita tafarlausan aðgang að pöntunarbók, að beiðni Raforkueftirlitsins, þannig að stofnunin geti fylgst með viðskiptum á heildsölumarkaði. Raforkueftirlitið birtir leiðbeiningar um gagnaskil til Raforkueftirlitsins þar sem kveðið er á um tæknileg atriði gagnaskila, tímafresti og form.
     3.      Við 9. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skal 5. gr. ekki öðlast gildi fyrr en 1. apríl 2026.