Ferill 418. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 760 — 418. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Hörpu Svavarsdóttur um tækjakost í heilbrigðisþjónustu.
1. Hefur nægjanlegu fjármagni verið varið í kaup á nauðsynlegum tækjakosti í vinnuumhverfi heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni sem er fjarri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu?
Árið 2022 skipaði ráðherra viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu. Hlutverk teymisins var að setja fram tímasetta áætlun til næstu 3–5 ára um breytingar og umbætur í bráðaþjónustu á landinu öllu með það að markmiði að bæta þjónustu, minnka sóun og auka árangur. Hluti af vinnu teymisins var að kortleggja tækjabúnað vegna bráðaþjónustu á öllum starfsstöðvum heilbrigðisstofnana í samvinnu við stjórnendur þeirra. Þegar hafa verið veitt viðbótarframlög frá ráðuneytinu vegna þess búnaðar sem upp á vantaði fyrir allar stofnanir. Það er síðan í höndum hvers forstjóra að viðhalda og uppfæra tækjabúnað eftir þörfum.
2. Tryggir núverandi tækjakostur í umhverfi heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni upplýsta faglega bráðagreiningu á sem skemmstum tíma?
Tækjakostur einn og sér tryggir ekki faglega bráðagreiningu, heldur skiptir þekking og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks þar höfuðmáli. Búið er að samræma og fjármagna þann tækjakost sem teymið taldi nauðsynlegan til að halda úti faglegri bráðagreiningu á hverri heilbrigðisstofnun.
3. Er markmið ráðuneytisins að upplýst bráðagreining fari fram á sem skemmstum tíma á landsbyggðinni og eru vinnuaðstæður heilbrigðisstarfsfólks þar fullnægjandi?
Skýrt er tekið fram í skýrslunni að markmið ráðuneytisins og viðbragðsteymisins sé að tryggja að hægt sé að veita hraða og upplýsta bráðagreiningu alls staðar á landinu. Þó verður ávallt áskorun að tryggja slíka greiningu, sérstaklega í dreifbýli. Viðbragðsteymið benti einkum á þrjá þætti sem auka mættu viðbragðsgetu um allt land:
* Að starfsstöðvar heilbrigðisstofnana verði skilgreindar eftir stigum bráðaþjónustu og að slík stig verði tengd þjálfun, búnaði og mönnun á hverjum stað.
* Markvissa þróun fjarskiptalausna til að læknar geti veitt heilbrigðisstarfsfólki á vettvangi stuðning úr fjarlægð (t.d. myndsímtöl, talstöðvar, aðgangur að sjúkraskrám).
* Sérhæfða þjálfun heilbrigðisstarfsfólks, t.d. með sérhæfðum námskeiðum um bráðameðferð á vettvangi, endurlífgunarnámskeið og þjálfun í bráðaómskoðun.
Samræming og fjármögnun tækjakosts til bráðaþjónustu á landsvísu, sem ráðist var í 2023, var liður í að bæta vinnuaðstæður heilbrigðisstarfsfólks og auka öryggi þjónustunotenda. Mönnun er og verður áskorun í heilbrigðisþjónustu hér eins og annars staðar. Símenntun og þjálfun vegur þungt til að auka hæfni og öryggistilfinningu heilbrigðisstarfsfólks í starfi sínu, sér í lagi þegar langt er í aðrar bjargir. Til að styrkja heilbrigðisstarfsfólk við bráðaþjónustu á landsvísu hóf ráðuneytið tilraunaverkefni fyrir réttu ári síðan, sem miðar að vakt fjarskiptalæknis sem heilbrigðisstarfsfólk og allir viðbragðsaðilar geta leitað til. Verkefninu var fyrst ætlað að standa til síðustu áramóta en hefur verið framlengt og unnið er að því að útvíkka þjónustuna og tryggja rekstur hennar til framtíðar.