Ferill 443. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 761  —  443. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um starfsnám læknanema við erlenda háskóla.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða reglur gilda um inntöku læknanema í starfsnám hjá íslenskum heilbrigðisstofnunum (sérnámsgrunnsár)? Eru nemendur við erlenda háskóla jafnsettir þeim sem hafa stundað grunnnám á Íslandi?

    Það gilda ólíkar reglur um inntöku læknanema í starfsnám annars vegar og um ráðningar lækna í sérnámsgrunn hins vegar og verður fyrirspurninni svarað varðandi hvort um sig.
    Læknanemar eru þeir sem stunda háskólanám í læknisfræði og hafa ekki fengið lækningaleyfi. Rík krafa er gerð um verklega þjálfun læknanema í háskólanámi og fer þjálfun að miklu leyti fram á heilbrigðisstofnunum en einnig í færni- og hermisetrum.
    Til að tryggja að þeir nemendur sem stunda nám til starfsleyfis heilbrigðisstarfsmanna hér á landi geti lokið námi með fullnægjandi verklegri þjálfun er kveðið á um kennsluhlutverk Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri og heilbrigðisstofnana í lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Gerðir eru samstarfssamningar á milli menntastofnana og heilbrigðisstofnana varðandi verklega kennslu nemenda á heilbrigðisstofnunum. Lagaleg ábyrgð heilbrigðisstofnana á kennslu er útfærð í samstarfssamningum og nemendum við íslenskar menntastofnanir tryggt aðgengi að verklegri þjálfun á innlendum heilbrigðisstofnunum, sem er forsenda þess að þeir útskrifist og geti öðlast starfsleyfi sem heilbrigðisstarfsmenn. Samstarfssamningur er í gildi milli Landspítala og Háskóla Íslands vegna kennslu læknanema. Heilbrigðisstofnanir hafa einnig tekið á móti íslenskumælandi læknanemum frá öðrum ríkjum ef forsendur eru til staðar án þess að vera það skylt og án þess að í gildi séu samningar þess efnis á milli erlendra háskóla og íslenskra heilbrigðisstofnana um veitingu verklegrar þjálfunar.
    Ómögulegt er að skera úr um það án frekari upplýsinga í hverju máli fyrir sig hvort nemendur við erlenda háskóla séu jafnsettir þeim sem stundað hafa grunnnám í læknisfræði á Íslandi í hvívetna, en ráðherra er ekki kunnugt um að sérstök vandkvæði séu til staðar varðandi veitingu lækningaleyfa eða aðgengi að sérnámi. Allir sem ljúka námi í læknisfræði, hérlendis sem erlendis, þurfa að sækja um lækningaleyfi frá embætti landlæknis til að mega kalla sig lækna og starfa sem læknar hér á landi.
    Gerð er krafa um að læknir sé með lækningaleyfi og fullnægjandi íslenskukunnáttu til þess að mega hefja sérnám hér á landi, þ.e. sérnámsgrunn og í kjölfarið frekari sérhæfingu innan læknisfræði. Krafist er íslenskukunnáttu sem samsvarar B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum. Sérnámsgrunnur lækna er að lágmarki tólf mánaða þjálfun og fer alfarið fram á heilbrigðisstofnunum. Árlega er ráðið í auglýstar sérnámsgrunnsstöður sem eru mun fleiri en sem nemur fjölda útskrifaðra lækna úr Læknadeild Háskóla Íslands og er því gert ráð fyrir íslenskumælandi læknum með menntun frá öðrum háskólum. Boðið er upp á sérnámsgrunn á opinberum heilbrigðisstofnunum um allt land. Í kjölfar sérnámsgrunns geta læknar sótt um sérnámsstöður til þess að sérhæfa sig í læknisfræði. Sérnámsstöður eru auglýstar a.m.k. tvisvar sinnum á ári og er ráðningaferlið gagnsætt. Varðandi ráðningar í sérnámsgrunnsstöður og sérnámsstöður eru umsækjendur jafnsettir óháð því hvar þeir hafa lokið læknanámi til grundvallar lækningaleyfis. Um ráðningar gildir óskráð meginregla opinbers starfsmannaréttar um að ráða skuli hæfasta umsækjandann, enda eru læknar í sérnámi á heilbrigðisstofnunum ráðnir þar sem starfsmenn. Sérnámsgrunnur og annað sérnám fer fram samkvæmt marklýsingu þar sem hæfniviðmið eru skilgreind með ítarlegum hætti.