Ferill 252. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 764 — 252. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um starfstengda eftirlaunasjóði.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Seðlabanka Íslands.
Nefndinni barst ein umsögn auk minnisblaðs frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um starfstengda eftirlaunasjóði. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2341 um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri, betur þekkt sem IORP II. Tilskipunin felur í sér endurútgáfu á IORP I sem var innleidd í íslenskan rétt með lögum um starfstengda eftirlaunasjóði, nr. 78/2007, en þau lög falla úr gildi samhliða gildistöku frumvarpsins.
Umfjöllun nefndarinnar.
Vísanir til laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.
Í umsögn frá Seðlabanka Íslands um frumvarpið kom fram ábending þess efnis að í frumvarpinu væru ákvæði laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, látin gilda um eða notuð sem fyrirmynd að ýmsum ákvæðum frumvarpsins. Taldi Seðlabankinn að nær væri að vísa til viðeigandi ákvæða í lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, eða þau notuð sem fyrirmyndir að þessu leyti í ljósi þess að bankinn hefði í nýlega útgefnu riti bent á vankanta á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og fjallað um æskilegar umbætur á þeirri löggjöf.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið tók saman minnisblað til nefndarinnar um viðbrögð þess við umsögn Seðlabanka Íslands. Í minnisblaði ráðuneytisins kom fram að í gangi væri vinna starfshóps með fulltrúum frá aðilum vinnumarkaðarins og lífeyrissjóðum um gerð grænbókar um lífeyrismál sem ætlað er að verði grundvöllur að endurskoðun á löggjöf um lífeyrismál. Taldi ráðuneytið það ekki heppilegt né nauðsynlegt að breyta tilvísunum á meðan vinnu starfshópsins væri ekki lokið.
Meiri hluti nefndarinnar tekur undir með ráðuneytinu og telur ekki þörf á að gera breytingar hvað þetta varðar. Meiri hlutinn gerir ráð fyrir að þegar heildarendurskoðun á löggjöf er varðar lífeyrismál lýkur og breytingar verða gerðar á þeirri löggjöf, verði til samræmis viðeigandi breytingar jafnframt gerðar á frumvarpi þessu.
Veiting starfsleyfis til starfstengdra eftirlaunasjóða (1. mgr. 4. gr.).
Nefndin fjallaði um hvort færi betur að veiting starfsleyfis til starfstengds eftirlaunasjóðs væri á hendi Seðlabanka Íslands eða fjármála- og efnahagsráðuneytis. Í 1. mgr. 4. gr. frumvarpsins segir að fjármála- og efnahagsráðuneytið veiti starfstengdum eftirlaunasjóði starfsleyfi að uppfylltum sömu skilyrðum og koma fram í V. kafla laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Seðlabanki Íslands benti á að skv. 3. mgr. 4. gr. frumvarpsins væri Fjármálaeftirlitinu falið að halda skrá yfir starfstengda eftirlaunasjóði sem hefðu höfuðstöðvar hérlendis og jafnframt falin ýmis önnur verkefni sem væru grundvöllur leyfis sjóðanna og að leggja mat á hvort starfsemi sé stunduð án leyfis. Benti Seðlabankinn einnig á að IORP II-tilskipunin gerði ráð fyrir að ein og sama stofnunin hefði þessar skyldur, þ.m.t. veitingu starfsleyfis.
Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að ákvæði frumvarpsins um að ráðuneytið veiti starfstengdum eftirlaunasjóðum starfsleyfi sé í samræmi við ákvæði núgildandi laga um starfstengda eftirlaunasjóði og önnur ákvæði laga sem varða m.a. veitingu starfsleyfa til lífeyrissjóða. Það sé hlutverk ráðuneytisins að veita innlendum lífeyrissjóðum starfsleyfi sem og staðfesta breytingar á samþykktum þeirra að undangenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins. Ráðuneytið benti á að það sama gilti um reglur innlendra og erlendra vörsluaðila séreignarsparnaðar en það sé hlutverk ráðuneytisins að staðfesta reglur sem gilda eiga um tryggingaverndina auk þess að staðfesta breytingar á reglunum, að undangenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins og því mat ráðuneytisins að óeðlilegt væri að annað gilti um starfsleyfi til starfstengdra eftirlaunasjóða.
Að mati meiri hluta nefndarinnar er ekki þörf á að gera breytingar á frumvarpinu hvað þessa athugasemd varðar og tekur meiri hlutinn undir röksemdir ráðuneytisins. Ef breyta eigi þessu fyrirkomulagi varðandi veitingu starfsleyfa eða staðfestingu á reglum verði að eiga sér stað heildstæð endurskoðun í þeim efnum og samræming á löggjöfinni. Þessi tilhögun sem lögð er til í frumvarpinu sé í samræmi við núgildandi lög um starfstengda eftirlaunasjóði sem og aðra löggjöf á sviðinu og því ekki tilefni til breytinga á fyrirkomulaginu í þessu frumvarpi.
Breytingartillögur.
Viðurkenning Fjármálaeftirlitsins (6. mgr. 8. gr. og 2. mgr. 19. gr.).
Í umsögn Seðlabanka Íslands kom fram að í frumvarpinu væri gert ráð fyrir að tryggingafræðileg athugun væri framkvæmd af tryggingastærðfræðingi eða öðrum þeim sem hlotið hafi viðurkenningu Fjármálaeftirlitsins til slíks starfs. Benti Seðlabankinn á að IORP II-tilskipunin gerði ekki kröfu um að lögbært stjórnvald í aðildarríki veitti slíka viðurkenningu og taldi bankinn að gengið væri lengra að þessu leyti í frumvarpinu en gert væri í tilskipuninni.
Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið taki undir framangreinda ábendingu Seðlabanka Íslands og leggi til breytingu á orðalagi. Meiri hlutinn telur tillögur ráðuneytisins til bóta og gerir þær að sínum. Annars vegar leggur meiri hlutinn til breytt orðalag í 6. mgr. 8. gr. frumvarpsins þess efnis að ekki verði gerð krafa um að aðili sem framkvæmi tryggingafræðilega athugun á fjárhag starfstengds eftirlaunasjóðs sé viðurkenndur af hálfu Fjármálaeftirlitsins til þess starfs heldur hafi til þess viðeigandi þekkingu og slík athugun sé framkvæmd eftir tryggingafræðilegum aðferðum sem viðurkenndar séu af Fjármálaeftirlitinu. Hins vegar leggur meiri hlutinn til samræmis til að samhljóða ákvæði í 2. mgr. 19. gr. frumvarpsins falli brott þar sem henni er ofaukið.
Aðrar minni háttar og tæknilegar breytingar.
Að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið leggur meiri hlutinn til orðalagsbreytingar á 5. og 6. mgr. 24. gr. frumvarpsins til nákvæmari innleiðingar viðeigandi ákvæða IORP II. Þá leggur meiri hlutinn til leiðréttingu á vísun í 1. mgr. 26. gr. frumvarpsins. Jafnframt leggur meiri hlutinn til orðalagsbreytingu á 3. mgr. 29. gr. til þess að auka skýrleika ákvæðisins.
Að lokum leggur meiri hluti nefndarinnar til frekari minni háttar orðalagsbreytingar og tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið.
Að framangreindu virtu leggur meiri hluti nefndarinnar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 19. júní 2025.
| Arna Lára Jónsdóttir, form. |
Sigmundur Ernir Rúnarsson, frsm. | Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | |
| Pawel Bartoszek. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | ||