Ferill 252. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 765 — 252. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um starfstengda eftirlaunasjóði.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (ArnaJ, SER, ÁLÞ, PawB, SSB).
1. Í stað orðsins „stofnuninni“ í lokamálslið 4. mgr. 6. gr. komi: sjóðnum.
2. Við 8. gr.
a. Í stað orðsins „lífeyrissjóði“ í 5. mgr. komi: honum.
b. 6. mgr. orðist svo:
Tryggingafræðileg athugun á fjárhag starfstengds eftirlaunasjóðs skal fara fram ár hvert. Athugunin skal framkvæmd af tryggingastærðfræðingi eða öðrum þeim sem hefur viðeigandi þekkingu til slíkra starfa og framkvæmd eftir tryggingafræðilegum aðferðum, sem viðurkenndar eru af Fjármálaeftirlitinu.
3. Í stað orðsins „lífeyrissjóðs“ í 2. mgr. 10. gr. komi: eftirlaunasjóðs.
4. Á eftir orðunum „skv. a-lið 1.“ í 2. málsl. 4. tölul. 11. gr. komi: tölul.
5. Í stað orðsins „lífeyrissjóðs“ í 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. komi: eftirlaunasjóðs.
6. Í stað orðsins „lífeyrissjóður“ í 1. mgr. 13. gr. komi: eftirlaunasjóður.
7. Í stað orðsins „lífeyrissjóður“ í 1. mgr. 14. gr. komi: eftirlaunasjóður.
8. 2. mgr. 19. gr. falli brott.
9. Í stað orðanna „til bærs“ í 1. málsl. 23. gr. komi: þar til bærum.
10. Við 24. gr.
a. Í stað orðanna „lög og reglur Sambandsins“ í 3. málsl. 1. mgr. komi: ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
b. Í stað orðsins „fjárvörslufyrirtæki“ í 2. mgr. komi: fjárvörslufyrirtækis.
c. 5. mgr. orðist svo:
Vörsluaðili skal ekki stunda aðra þá starfsemi sem valdið getur hættu á hagsmunaárekstrum á milli starfstengds eftirlaunasjóðs, sjóðfélaga hans og eftirlaunaþega nema hann gæti aðskilnaðar starfa sinna sem valdið geta hagsmunarárekstrum, og mögulegir hagsmunaárekstrar séu skilgreindir, þeim stjórnað, þeir vaktaðir og birtir með viðeigandi hætti fyrir stjórn, framkvæmdastjórn og eftirlitsstjórn starfstengds eftirlaunasjóðs sem og sjóðfélögum hans og eftirlaunaþegum.
d. Í stað orðanna „hagsmunaárekstra sem kunna að koma við úrlausn verkefna sem og lausn þeirra“ í 6. mgr. komi: og leysa úr hagsmunaárekstrum sem kunna að koma upp í tengslum við verkefni sem væru annars á hendi vörsluaðila.
11. Við 25. gr.
a. Í stað orðsins „sönnun“ í 2. mgr. komi: sönnur.
b. Í stað orðsins „lífeyrissjóði“ í 3. mgr. komi: eftirlaunasjóði.
c. Á undan orðinu „hvernig“ í d-lið 4. mgr. komi: um það.
12. Í stað tilvísunarinnar „24. gr.“ í 1. mgr. 26. gr. komi: 25. gr.
13. Við 28. gr.
a. Í stað orðsins „lífeyrissjóðsins“ í b-lið 1. mgr. komi: eftirlaunasjóðsins.
b. Í stað orðsins „lækkun“ í f-lið 1. mgr. komi: skerðingu.
c. Á eftir orðinu „hafa“ í síðari málslið 3. mgr. komi: áhrif.
14. Í stað orðanna „árlegrar nafnávöxtunar“ í 2. málsl. 3. mgr. 29. gr. komi: sína um árlega nafnávöxtun.
15. Við 32. gr.
a. Í stað orðsins „lífeyrissjóðurinn“ í 2. mgr. komi: eftirlaunasjóðurinn.
b. Í stað orðsins „lífeyrissjóð“ í 3. mgr. komi: sjóð.
16. Við 38. gr.
a. Í stað orðsins „stofnunin“ í 4. mgr. komi: sjóðurinn.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðist svo: Ráðstafanir Fjármálaeftirlitsins vegna brota á lögunum.
17. Í stað orðanna „sem liggja við brotum“ í 5. tölul. 2. mgr. 40. gr. komi: vegna brota.