Ferill 408. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 766 — 408. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og sveitarstjórnarlögum (endurmat á fjárhagslegum áhrifum).
(Eftir 2. umræðu, 20. júní.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016.
1. gr.
2. gr.
II. KAFLI
Breyting á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.
3. gr.
Viðkomandi ráðherra, sveitarfélög eða Samband íslenskra sveitarfélaga geta að liðnum fimm árum og í síðasta lagi tíu árum frá lagasetningu, setningu stjórnvaldsfyrirmæla eða samþykkt annarra stefnumarkandi ákvarðana, sem fela í sér veruleg áhrif á fjárhag sveitarfélaga, farið þess á leit við ríkisendurskoðanda að endurmat fari fram á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög samkvæmt þessari grein. Leiði skoðun ríkisendurskoðanda í ljós að kostnaður sem hlýst af lagasetningu, stjórnvaldsfyrirmælum eða öðrum stefnumarkandi ákvörðunum sé í verulegu ósamræmi við upprunalegt mat á fjárhagslegum áhrifum skal viðkomandi ráðherra eiga frumkvæði að viðeigandi ráðstöfunum sem geta m.a. falið í sér tillögur um breytingu á fjármögnun eða þjónustukröfum. Um ákvörðun ríkisendurskoðanda, hvort taka skuli beiðni til greina, fer samkvæmt lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga.
4. gr.