Ferill 184. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 774 — 184. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um almannavarnir í Grindavík.
1. Stendur til að draga úr almannavarnaviðbragði í Grindavík og nýta frekar fjármuni til endurreisnar innviða þar?
Markmið almannavarna er að undirbúa, skipuleggja og framkvæma ráðstafanir sem miða að því að koma í veg fyrir og takmarka, eftir því sem unnt er, að almenningur verði fyrir líkams- eða heilsutjóni, eða umhverfi eða eignir verði fyrir tjóni, af völdum náttúruhamfara, farsótta eða hernaðaraðgerða eða af öðrum ástæðum og veita líkn í nauð og aðstoð vegna tjóns sem hugsanlega kann að verða eða hefur orðið.
Í desember 2019 hófst umbrotatímabil á Reykjanesskaga, með jarðskjálftavirkni, kvikuhreyfingum neðan jarðar og endurteknum eldgosum. Síðasta eldgos hófst 1. apríl sl. og lauk sama dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands heldur landris í Svartsengi áfram.
Viðbragð almannavarnakerfisins fer eftir alvarleika og umfangi atburðar hverju sinni, hversu brýn hættan er og nauðsyn þess að bregðast við. Ekki eru veittar fastar og fyrir fram ákveðnar fjárheimildir til almannavarnaviðbragða, þannig að mögulegt sé að færa þá til annarra verkefna. Ákvörðun um þetta er tekin hverju sinni miðað við þörfina sem blasir við og útgjöldum mætt með framlögum úr almennum varasjóði.
Með lögum um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024, var komið á fót framkvæmdanefnd til að fara með stjórn, skipulagningu og samhæfingu aðgerða og hafa heildarsýn yfir málefni Grindavíkurbæjar vegna þeirra margvíslegu úrlausnarefna í sveitarfélaginu sem tengjast yfirstandandi jarðhræringum á svæðinu. Markmið laganna er að tryggja skilvirka samvinnu við sveitarstjórn, önnur stjórnvöld og aðra hlutaðeigandi. Meðal verkefna nefndarinnar er meðal annars að hafa umsjón með nauðsynlegum viðgerðum á samfélagslegum innviðum, könnun á jarðvegi og gerð áhættumats fyrir þéttbýlið í Grindavíkurbæ. Nefndin er í nánu sambandi við marga aðila innan stjórnkerfisins, en nefndin er á forræði forsætisráðuneytis.
Í nefndinni sitja Árni Þór Sigurðsson, formaður, Jóhanna Lilja Birgisdóttir, forstöðumaður fyrir þjónustuteymi Grindvíkinga, og Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi í atvinnuteymi Grindavíkurbæjar. Nefndin er með heimasíðu til upplýsingar. 1
2. Koma heimamenn að gerð hættumats og viðbragðsáætlana í gegnum almannavarnanefnd Grindavíkur, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga um almannavarnir, nr. 82/2008?
Á grundvelli laga um almannavarnir, nr. 82/2008, starfar í hverju sveitarfélagi almannavarnanefnd sem sveitarstjórn skipar. Almannavarnanefnd skal skipuð lögreglustjóra þess umdæmis sem sveitarfélagið er í, fulltrúum úr sveitarstjórn og þeim fulltrúum sveitarstjórna sem í starfi sínu sinna verkefnum í þágu öryggis hins almenna borgara. Hlutverk almannavarnanefnda er stefnumótun og skipulagning starfs, þ.m.t. forvarnir og undirbúningsaðgerðir, ásamt því að vinna að gerð hættumats og viðbragðsáætlana ásamt viðeigandi lögreglustjóra, í samvinnu við ríkislögreglustjóra. Almannavarnanefnd viðkomandi sveitarfélags ber ábyrgð á því að gera viðeigandi hættumat og viðbragðsáætlanir og það hverjir koma að slíkri vinnu er háð mati þeirra hverju sinni.
1 island.is/v/fyrir-grindavik/um-grindavikurnefnd