Ferill 13. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 775 — 13. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um ungmenni.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu mörgum ungmennum, 18 ára og yngri, hefur lögregla haft afskipti af ár hvert undanfarin þrjú ár? Svar óskast sundurliðað eftir:
a. aldri,
b. kyni,
c. ríkisfangi,
d. lögregluumdæmi, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 90/1996.
Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra hafði lögreglan afskipti af samtals 802 ungmennum, 18 ára og yngri, árið 2022, 858 árið 2023, 928 árið 2024 og 360 á tímabilinu janúar til apríl árið 2025. Með orðinu afskipti er átt við þau tilvik þar sem einstaklingur er skráður grunaður um tiltekna hegðun eða afbrot. Þannig er í eftirfarandi sundurliðun ekki tekið tillit til afskipta lögreglu sem varða ekki slíkan grun.
Gögnin voru tekin saman 2. maí 2025 og eiga við um einstaklinga á aldrinum 10–18 ára, að báðum árum meðtöldum. Hér eftir verður farið yfir þá sundurliðun sem óskað var eftir.
a) aldur
Árið 2022 hafði lögreglan afskipti af 47 ungmennum á aldrinum 10 til 12 ára, 257 á aldrinum 13 til 15 ára og 541 á aldrinum 16 til 18 ára.
Árið 2023 hafði lögreglan afskipti af 65 ungmennum á aldrinum 10 til 12 ára, 319 á aldrinum 13 til 15 ára og 534 á aldrinum 16 til 18 ára.
Árið 2024 hafði lögreglan afskipti af 81 ungmenni á aldrinum 10 til 12 ára, 350 á aldrinum 13 til 15 ára og 559 á aldrinum 16 til 18 ára.
Á tímabilinu janúar til apríl 2025 hafði lögreglan afskipti af 60 ungmennum á aldrinum 10 til 12 ára, 126 á aldrinum 13 til 15 ára og 184 á aldrinum 16 til 18 ára.
Athygli er vakin á því að einstaklingar sem urðu fyrir afskiptum fyrir og eftir afmælisdag sinn innan sama árs eru taldir tvisvar í ofangreindum tölum, og því eru samanlagðar tölur í töflunni hærri en fjöldi einstaklinga.
b) kyn
Árið 2022 hafði lögreglan afskipti af 619 drengjum á aldrinum 10 til 18 ára, 181 stúlku og tveimur kynsegin einstaklingum.
Árið 2023 hafði lögreglan afskipti af 621 dreng á aldrinum 10 til 18 ára, 235 stúlkum og tveimur kynsegin einstaklingum.
Á tímabilinu janúar til apríl 2025 hafði lögreglan afskipti af 255 drengjum á aldrinum 10 til 18 ára og 105 stúlkum.
c) ríkisfang
Árin 2022 og 2023 voru 85% þeirra ungmenna sem lögregla hafði afskipti af íslenskir ríkisborgarar, en 15% þeirra höfðu annað ríkisfang.
Árið 2024 voru 84% þeirra ungmenna sem lögregla hafði afskipti af íslenskir ríkisborgarar, en 16% þeirra höfðu annað ríkisfang.
Á tímabilinu janúar til apríl 2025 voru 80% þeirra ungmenna sem lögregla hafði afskipti af íslenskir ríkisborgarar, en 20% þeirra höfðu annað ríkisfang.
d) lögregluumdæmi
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af 512 ungmennum árið 2022, 540 árið 2023, 641 árið 2024 og 259 á tímabilinu janúar til apríl árið 2025.
Embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hafði afskipti af 88 ungmennum árið 2022, 130 árið 2023, 89 árið 2024 og 37 á tímabilinu janúar til apríl árið 2025.
Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum hafði afskipti af 114 ungmennum árið 2022, 96 árið 2023, 62 árið 2024 og 29 á tímabilinu janúar til apríl 2025.
Embætti lögreglustjórans á Suðurlandi hafði afskipti af 62 ungmennum árið 2022, 66 árið 2023, 67 árið 2024 og 29 á tímabilinu janúar til apríl 2025.
Embætti lögreglustjórans á Vesturlandi hafði afskipti af 23 ungmennum árið 2022, 40 árið 2023, 54 árið 2024 og fjórum á tímabilinu janúar til apríl 2025.
Embætti lögreglustjórans á Austurlandi hafði afskipti af 15 ungmennum árið 2022, 12 árið 2023, 25 árið 2024 og sex á tímabilinu janúar til apríl 2025.
Embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum hafði afskipti af níu ungmennum árið 2022, 18 árið 2023, 18 árið 2024 og sex á tímabilinu janúar til apríl 2025.
Embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum hafði afskipti af 13 ungmennum árið 2022, 23 árið 2023, átta árið 2024 og tveimur á tímabilinu janúar til apríl 2025.
Embætti lögreglustjórans á Norðurlandi vestra hafði afskipti af átta ungmennum árið 2022, sex árið 2023 og sjö árið 2024. Engin afskipti voru höfð af ungmennum á tímabilinu janúar til apríl 2025.
Embætti ríkislögreglustjóra hafði afskipti af einu ungmenni árið 2022. Engin afskipti voru höfð af ungmennum árin 2023, 2024 og á tímabilinu janúar til apríl 2025.