Ferill 107. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 777  —  107. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 (framleiðendafélög).

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Félagi atvinnurekenda, Bændasamtökum Íslands, Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, Búnaðarsambandi Skagfirðinga, Búnaðarsambandi N-Þingeyinga, Samkeppniseftirlitinu, Langasjó ehf., Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, Samtökum iðnaðarins, Samtökum smáframleiðenda matvæla, Samtökum verslunar og þjónustu og Viðskiptaráði Íslands.
    Nefndinni barst 21 umsögn um málið auk þriggja minnisblaða frá atvinnuvegaráðuneyti, gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Markmið frumvarpsins er að fella úr gildi þær breytingar sem gerðar voru á búvörulögum, nr. 99/1993, með lögum nr. 30/2024. Frumvarpinu er ætlað að tryggja að samkeppnislög, nr. 44/2005, nái til sameininga afurðastöðva í landbúnaði.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Nefndin ræddi þær breytingar sem gerðar voru á búvörulögum með lögum nr. 30/2024 á 154. löggjafarþingi og áhrif þeirra lagabreytinga á íslenskan landbúnað, hagsmuni neytenda og samkeppnismarkað.
    Við meðferð málsins komu m.a. fram sjónarmið um að óráð væri að afgreiða frumvarpið óbreytt frá nefndinni og þar með fella brott þau ákvæði búvörulaga sem afgreidd voru sem lög nr. 30/2024. Vísað hefur verið til þess að forsendur málsins kunna að vera brostnar í ljósi dóms Hæstaréttar Íslands í máli nr. 56/2024 frá 21. maí sl. sem sneri við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-4204/2024 og féllst ekki á að við setningu laga nr. 30/2024 hefði verið farið út fyrir það svigrúm sem þingið nyti til breytinga á frumvarpi þannig að brotið hefði verið gegn reglu 44. gr. stjórnarskrárinnar um að ekkert lagafrumvarp megi samþykkja fyrr en það hafi verið rætt við þrjár umræður á Alþingi.
    Meiri hlutinn hefur tekið þessi sjónarmið til skoðunar. Að mati meiri hlutans er það ekki svo að forsenda frumvarpsins að gengnum dómi Hæstaréttar Íslands hafi brostið. Dómurinn snýr einvörðungu að stjórnskipulegum álitamálum en fjallar að engu um gæði laga nr. 30/2024 og áhrif þess á íslenskan landbúnað, hagsmuni neytenda eða samkeppnismarkað.
    Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að tryggja án alls vafa að samkeppnislög nái að fullu til afurðastöðva í landbúnaði. Meiri hlutinn telur rétt að ítreka að frumvarpið mun ekki hafa áhrif á þær sameiningar framleiðendafélaga (afurðastöðva) sem lokið er, en telur afar mikilvægt að frumvarpið nái fram að ganga og að ekki verði frekari sameiningar afurðastöðva á grundvelli laga nr. 30/2024.
    Meiri hlutinn leggur sérstaka áherslu á að samkeppnislög eru ein helsta trygging neytenda fyrir því að njóta virkrar samkeppni á matvörumarkaði, þá er það mat meiri hlutans að ekki skipti síður máli að samkeppnislögum er einnig ætlað að vernda frumframleiðendur matvöru, þ.e. bændur. Hagsmunir bænda af raunverulegum valkostum á aðilum sem taka við afurðum þeirra eru verulegir. Er það mat meiri hlutans að því fleiri valkosti sem bændur hafa við val á afurðastöðum því tryggari verði samningsstaða þeirra í viðskiptum.
    Meiri hlutinn fagnar því að samkvæmt greinargerð frumvarpsins er sérstaklega tekið fram að vinna standi yfir við smíði nýs frumvarps í atvinnuvegaráðuneyti sem miði að því að tryggja að innlendir framleiðendur hafi ekki lakara svigrúm til hagræðingar og samstarfs en gengur og gerist í nágrannalöndum, líkt og markmiðið var með frumvarpi matvælaráðherra frá 14. nóvember 2023 og í samræmi við landbúnaðarstefnu til ársins 2040, sbr. þingsályktun nr. 21/153.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Kristján Þórður Snæbjarnarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Alþingi, 24. júní 2025.

Sigurjón Þórðarson,
form., frsm.
Eiríkur Björn Björgvinsson. Eydís Ásbjörnsdóttir.
Kristján Þórður Snæbjarnarson. Lilja Rafney Magnúsdóttir. María Rut Kristinsdóttir.