Ferill 438. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 778  —  438. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um íþrótta- og tómstundastarf barna.


     1.      Hefur verið unnin stefna um þátttöku barna hælisleitenda og flóttafólks í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi?
    Meginmarkmið stjórnvalda á sviði íþrótta- og frístundastarfs er að efla innviði, auka gæði og styrkja faglega umgjörð um skipulagt íþrótta- og frístundastarf, þ.m.t. að unnið verði að því að efla nýjar svæðisstöðvar íþróttahreyfingarinnar sem vinna að því að efla faglegt starf innan íþróttafélaga um allt land með áherslu á jöfn tækifæri til þátttöku í íþróttastarfi, stuðning við þjálfara, farsæld barna, lýðheilsu og sjálfboðaliðastarf. Ekki hefur verið unnin sérstök stefna af stjórnvöldum eða öðrum aðilum um þátttöku barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólks í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Hins vegar er í stefnu mennta- og barnamálaráðuneytis um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna til 2030 lögð áhersla á að ná til jaðarsettra hópa og auka þátttöku þeirra. Stefnan byggist m.a. á því sjónarmiði að þátttaka í skipulögðu tómstunda- og félagsstarfi sé mikilvægur vettvangur samfélagslegrar þátttöku og stuðli að mannréttindum, félagslegri aðild, skoðanaskiptum, jafnrétti og virkri þátttöku. Öll börn og ungmenni eiga því rétt á þátttöku í tómstundum og skapandi starfi en eitt af undirmarkmiðum stefnunnar leggur áherslu á að samsetning hópa sé fjölbreytt er varðar bakgrunn og reynslu, m.a. jaðarhópa. Þá hefur mennta- og barnamálaráðuneyti gert samninga við íþróttafélög, svo sem í Reykjanesbæ, sem tekur mið af þeirri áherslu að auka þátttöku barna sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í íþrótta- og frístundastarfi.

     2.      Eru gerðar sérstakar ráðstafanir í samningum ríkisins og sveitarfélaga til að tryggja börnum í viðkvæmri félagslegri stöðu aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi?
    Á vegum ríkis og sveitarfélaga eru gerðar ýmsar ráðstafanir til að tryggja jöfn tækifæri barna til þátttöku í íþrótta- og frístundastarfi. Má þar nefna að flest sveitarfélög eru með frístundastyrki fyrir börn yngri en 18 ára. Þá er í gildi samningur mennta- og barnamálaráðuneytis við ÍSÍ og UMFÍ um stuðning við átta svæðisstöðvar íþróttahéraða sem leggur sérstaka áherslu á börn í viðkvæmri félagslegri stöðu. Í tengslum við svæðisstöðvarnar veitir hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar styrki til verkefna um allt land sem eiga að styðja m.a. við aukna þátttöku allra barna í íþróttum, með áherslu á aukna þátttöku fatlaðra barna, barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn auk barna frá tekjulægri heimilum. Mörg þessara verkefna taka mið af markmiði laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, þar sem þjónustuveitendum sem starfa með börnum ber að hafa samráð og samstarf með það að markmiði að þjónusta sé samfelld og samþætt í þágu velferðar og farsældar barna og foreldra. Að þessum verkefnum koma því íþróttafélög sem í hlut eiga, svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna, starfsfólk farsældarráða landshluta og viðkomandi sveitarfélög. Árangur af þessu starfi er þegar farinn að koma í ljós, þar á meðal með bættri upplýsingagjöf og má þar nefna útgáfu bæklingsins Vertu með! á níu tungumálum og er ætlaður foreldrum barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Í bæklingnum má finna hagnýtar upplýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins.

     3.      Er til skoðunar að efla þátttöku barna innflytjenda í íþrótta- og tómstundastarfi sem hluta af aðlögun þeirra að íslensku samfélagi?
    Nú þegar eiga stjórnvöld og sveitarfélög í samstarfi við ýmsa aðila um land allt um verkefni þar sem unnið er markvisst að því að auka þátttöku allra barna í íþrótta- og frístundastarfi, þar á meðal barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Vísast í þeim efnum jafnframt til umfjöllunar í 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Þá má greina þessar áherslur hjá stuðningssjóðum sem styðja íþrótta- og frístundastarf en ekki síður farsældarstyrkjum sem mennta- og barnamálaráðuneyti hefur veitt vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.