Ferill 482. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 780  —  482. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um norrænt samstarf þjóðskráa.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Tekur ráðuneytið þátt í norrænu samstarfi um sjálfvirk upplýsingaskipti milli þjóðskráa?
     2.      Hver er afstaða ráðherra til slíkra upplýsingaskipta milli þjóðskráa á Norðurlöndum?
     3.      Hefur ráðherra í hyggju að beita sér fyrir því að slíkt samstarf verði eflt og að sjálfvirk upplýsingaskipti verði að veruleika?


Skriflegt svar óskast.