Ferill 397. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 782  —  397. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Gísla Stefánssyni um kaup ríkisins á húsnæði í Grindavík.


     1.      Hver er áætlaður kostnaður ríkisins vegna Þórkötlu og kaupa ríkisins á húsnæði í Grindavík árið 2025 og hvernig er áætlað að hann þróist á komandi árum?
    Samkvæmt upplýsingum frá Þórkötlu er gert ráð fyrir að kaupverð eigna á árinu 2025 verði á bilinu einn til fjórir milljarðar króna. Endanleg fjárhæð ræðst af fjölda umsókna einstaklinga um kaup félagsins á fasteignum þeirra og hvort þeir uppfylli lagaskilyrði.
    Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkisins vegna kaupa félagsins á fasteignum nemi 70% af heildarkaupverðinu, allt að 2,8 ma. kr.
    Áætluð rekstrarútgjöld Þórkötlu á árinu 2025 eru u.þ.b. 991 millj. kr. Reksturinn er fjármagnaður með annars vegar láni frá fjármálastofnunum og ríkinu og hins vegar tryggingabótum. Samkvæmt fjárlögum hefur félagið heimild til að taka allt að milljarð króna að láni. Ríkið lánar 43,5% af lánsfjárhæðinni, allt að 435 millj. kr.

     2.      Hefur ráðherra í hyggju að grípa til einhverra ráðstafana til að brottfluttir Grindvíkingar geti snúið aftur heim og draga þar með úr fjárútlátum hins opinbera vegna húsnæðiskaupa ríkisins í Grindavík.
    Þórkatla ber ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun þess íbúðarhúsnæðis í Grindavík sem félagið hefur keypt. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu stendur einstaklingum til boða að gerast hollvinir félagsins, en í því felst afnot af eign sem viðkomandi hefur forgangsrétt að samkvæmt ákvæðum laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024, og heimild til að sinna umhirðu hennar og minni háttar viðhaldi. Félagið hefur þá heimilað hollvinum gistingu í eignunum til reynslu í sumar, frá 28. maí til 30. september. Þá er samhliða unnið að undirbúningi útleigu og sölu eignanna með það að markmiði að hefja útleigu þeirra um leið og aðstæður leyfa.