Ferill 389. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 785  —  389. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um kostnað vegna umsókna um alþjóðlega vernd.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur verið árlegur heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess frá árinu 2015 vegna umsókna um alþjóðlega vernd? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum, verkefnum, úrræðum og öðru sem við á, þ.m.t. vegna endurgreiðslna skv. 15. gr. barnaverndarlaga.

    Með forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022, sem tók gildi 1. febrúar 2022, voru málefni barna og ungmenna, þar á meðal barnavernd og málefni barna og ungmenna skv. VIII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, falin mennta- og barnamálaráðuneyti. Upplýsingarnar eru því takmarkaðar við þann kostnað sem kom til eftir þann tíma.
    Ráðuneytið endurgreiðir sveitarfélögum útlagðan kostnað vegna barna sem sækja um alþjóðlega vernd og eru án forsjáraðila, þ.e. fylgdarlausra barna, og kostnað vegna fylgdarlausra barna sem veitt er alþjóðleg vernd, sbr. 7. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.
Heildarkostnaður ráðuneytisins vegna barnaverndarþjónustu sem ríkissjóður endurgreiðir skv. 15. gr. barnaverndarlaga fyrir árin 2022–2024 er 1.136.523.597 kr. og skiptist hann með þeim hætti að árið 2022 var kostnaðurinn 172.199.328 kr., árið 2023 var kostnaðurinn 501.844.932 kr. og árið 2024 var kostnaðurinn 462.479.337 kr.
    Skipting kostnaðar sveitarfélaga vegna barnaverndarþjónustu sem ríkissjóður endurgreiðir skv. 15. gr. barnaverndarlaga er eftirfarandi:

Sveitarfélag (upphæðir í kr.)
2022
2023 2024
Akureyrarbær 2.408.773 467.230 -
Hafnarfjarðarbær - 75.536.332 46.891.672
Kópavogsbær 12.948.433 15.385.092 15.972.277
Mosfellsbær 841.756 - -
Reykjavík 94.443.851 197.355.754 29.909.063
Seltjarnarnesbær - 7.134.967 -
Suðurnesjabær 61.556.515 197.279.214 303.295.072
Sveitarfélagið Árborg - 8.686.343 -
Reykjanesbær - - 20.411.253*
Samtals 172.199.328 501.844.932 416.479.337
*Kostnaður vegna Reykjanesbæjar nær til tveggja ára, þ.e. áranna 2023 og 2024.

    Ekki liggur fyrir sundurgreindur kostnaður eftir því hvort um er að ræða kostnað vegna fylgdarlausra barna sem eru umsækjendur um vernd eða fylgdarlausra barna sem eru komin með alþjóðlega vernd. Stærsti kostnaðarliðurinn snýr einkum að vistunarúrræðum og framfærslu fylgdarlausra barna. Aðrir kostnaðarliðir eru til að mynda aðkeypt sérfræðiþjónusta, svo sem lögfræðiþjónusta og túlkaþjónusta, heilbrigðisþjónusta, svo sem lækna-, tannlækna- og sálfræðiþjónusta, og ferðakostnaður.
    Mikil aukning hefur verið meðal fylgdarlausra barna sem sækja um alþjóðlega vernd hérlendis. Til að annast móttöku og starfrækja búsetuúrræði fyrir fylgdarlaus börn var gerður samningur við Suðurnesjabæ til eins árs árið 2024 með það að markmiði að hagræða og bæta þjónustuna. Samningurinn var endurnýjaður fyrir árið 2025. Með samningnum tók Suðurnesjabær að sér að þjónusta fylgdarlaus börn en áður var þjónustan á hendi fleiri sveitarfélaga. Kostnaður vegna samnings er 48 millj. kr. á ári og nær kostnaðurinn til 3,5 stöðugilda hjá sveitarfélaginu.
    Barna- og fjölskyldustofa sinnir fjölbreyttum verkefnum í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd. Þar á meðal eru verkefni sem tengjast hagsmunagæslu fylgdarlausra barna og leiðbeiningar og ráðgjöf vegna vinnslu mála barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd, bæði fylgdarlausra barna og barna sem eru í fylgd. Ráðuneytið leggur til tvö stöðugildi til stofnunarinnar vegna málefna barna á flótta, annars vegar vegna þess mikla fjölda flóttafólks sem kom frá Úkraínu og hins vegar vegna aðgerðar í framkvæmdaáætlun í barnavernd en um er að ræða aðgerð sem snýr að endurskoðun verklags vegna móttöku og þjónustu við fylgdarlaus börn.
    Heildarframlag ráðuneytisins til Barna- og fjölskyldustofu vegna þessara verkefna var samtals fyrir árin 2023 og 2024 45.500.000 kr. Sundurliðaður kostnaður Barna- og fjölskyldustofu ásamt heildarframlagi ráðuneytisins til stofnunarinnar vegna verkefna sem snúa að móttöku barna á flótta er eftirfarandi:

Barna- og fjölskyldustofa – börn á flótta (upphæðir í kr.) 2023 2024 Samtals
Launakostnaður (tvö stöðugildi) 13.842.634 28.000.000 41.842.634
Stofnkostnaður 1.100.000 - 1.100.000
Annar kostnaður* 2.170.000 4.000.000 6.170.000
Heildarframlag MRN – 13.500.000 – 32.000.000 – 45.500.000
Samtals kostnaður Barna- og fjölskyldustofu 3.612.634 0 3.612.634
*Annar kostnaður felst m.a. í hlutfalli af húsaleigu, styrkjum og tækni- og mötuneytiskostnaði.