Ferill 429. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 787 — 429. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (strandveiðar).
Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti, Byggðastofnun, Félagi skipstjórnarmanna, Fiskistofu, Fjarðabyggð, Hafrannsóknastofnun – rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, Landssambandi smábátaeigenda, Múlaþingi, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum smærri útgerða, Strandveiðifélagi Íslands, Skagafirði, Verðlagsstofu skiptaverðs og Viðskiptaráði Íslands.
Nefndinni bárust 18 umsagnir um málið, gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Markmið frumvarpsins er að tryggja 48 veiðidaga til strandveiða á árinu 2025. Atvinnuvegaráðherra er með frumvarpinu veitt bráðabirgðaheimild til að flytja milli ára aflamagn sem kæmi til úthlutunar á komandi árum innan 5,3% kerfisins, sbr. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.
Umfjöllun nefndarinnar.
Að mati meiri hlutans er ljóst að með frumvarpinu eru lagðar til þrjár meginbreytingar á lögunum.
Í fyrsta lagi er í ákvæði til bráðabirgða kveðið á um að Fiskistofa skuli ekki stöðva strandveiðar á fiskveiðiárinu 2024–2025. Er sú breyting lögð til svo unnt sé að ná fram markmiði frumvarpsins um 48 daga strandveiðitímabil, sem er liður í því að koma til móts við álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 24. október 2007 í máli nr. 1306/2004 um að gæta að atvinnufrelsi og tryggja jafnræði í aðgangi að fiskveiðiauðlindinni.
Þá er lagt til að ráðherra hafi skýrari heimild til að ráðstafa auknu aflamagni til strandveiða til viðbótar við núverandi aflamark á yfirstandandi fiskveiðiári. Verði það viðbótaraflamark fært til baka eigi síðar en að þremur fiskveiðiárum liðnum. Er það mat meiri hlutans að með þessu sé tryggt að strandveiðar á árinu 2025 verði innan skýrra heimilda, en vandséð er að takmarkaðar handfæraveiðar geti ógnað fiskstofnum með nokkru móti. Það má jafnvel leiða líkur að því að magnið sé það óverulegt að það rúmist innan vikmarka og sérstaklega í ljósi þess endurmats sem fer reglulega fram á stofnstærð viðmiðunarstofns hjá Hafrannsóknastofnun.
Að síðustu er um að ræða heimildir Fiskistofu til að fylgja betur eftir strandveiðum og tryggja að framkvæmd þeirra fari eftir lögum. Stofnuninni eru með frumvarpinu veittar auknar heimildir til að sekta og svipta skip leyfum séu brot ítrekuð. Um er að ræða annars vegar heimildir sem snúa að umframaflamagni í veiðiferð og hins vegar brot gegn skilyrðum um eignarhald lögaðila, eignarhald strandveiðibáta og lögskráningu. Meiri hlutinn leggur til breytingu á því fyrrnefnda, sem nánari grein er gerð fyrir hér að aftan.
Að mati meiri hlutans er það óumdeilt að strandveiðar færa líf í hafnir landsmanna sem liggja vel að fiskimiðum óháð því hvort umrædd byggðarlög hafa misst frá sér aflaheimildir eður ei. Aukið líf í höfnum er aðdráttarafl fyrir ferðamenn og styður við aðra þjónustu í sjávarþorpunum. Það felst því ákveðin byggðafesta í því að treysta strandveiðar enn betur í sessi. Strandveiðar eru að mati meiri hlutans mikilvægur þáttur í því að halda uppi fiskvinnslum víða um land yfir sumartímann, sérstaklega í hinum veikari byggðum landsins sem reiða sig í mismiklum mæli á almennan og sértækan byggðakvóta. Þá er það og mat meiri hlutans að strandveiðar séu mikilvægar fyrir fiskmarkaði víða um land, sem hafa með þeim aðgengi að nýju hráefni, af dagróðrabátum, yfir sumarmánuðina.
Breytingartillaga meiri hlutans.
Viðurlög (1. gr.).
Fyrir nefndinni og í umsögnum til hennar hafa komið fram ábendingar um viðurlagaákvæði frumvarpsins, þ.e. að frumvarpið geri ráð fyrir að sekt vegna umframafla verði andvirði gjaldskylds afla í stað meðalverðs á samsvarandi afla á fiskmörkuðum á þeim stað og því tímabili þegar landað var. Jafnframt verði Fiskistofu skylt að svipta skip leyfi til strandveiða fyrir ítrekuð brot, ef landað er oftar en þrisvar sinnum umframafla sem nemur 5% af leyfilegum afla í hverri veiðiferð. Í umsögn Landssambands smábátaeigenda er á það bent að í stað sviptingar veiðileyfis sé vænlegra að miða við að sektarupphæð verði tvöfölduð. Þá hefur komið fram fyrir nefndinni að svipting veiðileyfis sem viðurlög við brotum kunni að leiða til aukins brottkasts á afla. Í ljósi þessara athugasemda leggur meiri hlutinn til breytingu á frumvarpinu þess efnis að í stað sviptingar leyfis verði sektir fyrir brot tvöfölduð séu þau endurtekin, þ.e. að sekt miðist við tvöfalt andvirði gjaldskylds afla skv. 3. gr. laga um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, nr. 37/1992.
Áfram verði miðað við sama viðmið og lagt er til í frumvarpinu, þ.e. að með ítrekuðum brotum er átt við að aðili sem hefur leyfi til strandveiða hafi landað oftar en þrisvar sinnum umframafla sem nemur 5% yfir leyfilegum afla í hverri veiðiferð.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Í stað orðanna „svipta skip leyfi til strandveiða“ í 2. málsl. 3. efnismgr. 1. gr. komi: tvöfalda sektir skv. 2. mgr.
Eiríkur Björn Björgvinsson og María Rut Kristinsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 26. júní 2025.
| Sigurjón Þórðarson, form. |
Lilja Rafney Magnúsdóttir, frsm. |
Eiríkur Björn Björgvinsson. |
| Eydís Ásbjörnsdóttir. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. | María Rut Kristinsdóttir. |