Ferill 260. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 790  —  260. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld (aðgerðir gegn peningaþvætti, viðurlög o.fl.).

Frá minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Minni hlutinn tekur undir meginmarkmið frumvarpsins sem lúta að eflingu lagaheimilda til að sporna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þrátt fyrir það telur minni hlutinn að nokkur ákvæði frumvarpsins séu ekki til bóta og að önnur þarfnist nánari skoðunar.
    
Breyting á tollalögum.
    Í 11. gr. frumvarpsins er lagt til að við 172. gr. tollalaga, nr. 88/2005, bætist ný málsgrein sem heimili að lögaðila verði gerð sekt fyrir brot gegn ákvæðinu, óháð því hvort brotið verði rakið til saknæms verknaðar fyrirsvarsmanns eða starfsmanns lögaðilans enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hafi notið hagnaðar af brotinu. Minni hlutinn telur, líkt og fram kemur í umsögn Samtaka atvinnulífsins (SA) og SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, að slík heimild gangi lengra en eðlilegt sé.
    Minni hlutinn tekur jafnframt undir þá afstöðu SVÞ og SA, sem komið var til skila á fundi nefndarinnar og í umsögn, að ábyrgð tollmiðlara samkvæmt gildandi lögum sé of íþyngjandi. Tollmiðlarar geta skv. 3. mgr. 172. gr. tollalaga borið refsiábyrgð vegna mannlegra mistaka í venjubundnum störfum án þess að nokkur saknæmur ásetningur eða stórfellt gáleysi liggi fyrir. Var í þessu samhengi óskað eftir því í umsögnum um frumvarpið og fyrir nefndinni að dregin yrði til baka, að hluta, breyting á ákvæðum 172. gr. tollalaga sem gerð var sumarið 2017. Til grundvallar lágu m.a. þau rök að á sínum tíma hefði Alþingi í raun ekki tekið afstöðu til þess hvort og hvers vegna væri nauðsynlegt og við hæfi að lækka saknæmisstig refsiábyrgðar tollmiðlara með þeim afleiðingum sem áður var getið. Má í því samhengi nefna það hvernig sú staða horfi við stjórnskipulegri meðalhófsreglu. Ætla verður að samkvæmt henni sé gerð sú krafa til refsiákvæðis að það grundvallist á mati þar sem leitt er í ljós að tilvist og efni refsiákvæðis samrýmist tilefninu og sé nauðsynlegt til að settu markmiði verði náð.
    
Um framkvæmd jöfnunar flutningskostnaðar raforku.
    Minni hlutinn telur, og tekur þar undir ábendingar Bændasamtaka Íslands og Samtaka fyrirtækja í landbúnaði (SAFL), að greining í frumvarpinu á hækkun jöfnunargjalds raforku sé ekki nægjanlega ítarleg og að ekki liggi fyrir trúverðugt mat á áhrifum fyrirkomulagsins á dreifbýli. Bæði samtök benda á að fyrri aðgerðir hafi ekki skilað tilætluðum jöfnunaráhrifum og að gjaldskrárhækkanir hafi ítrekað komið í kjölfar niðurgreiðslna. Með frumvarpinu er á engan hátt brugðist við þeim möguleika að sagan endurtaki sig í þessum efnum. Þá var bent á að núverandi gjaldskrár feli stundum í sér gjöld sem leggist sérstaklega á notendur í dreifbýli, svo sem umframlengdargjöld og spennistöðvagjöld sem bætast við fastan kostnað og draga úr virkni jöfnunarkerfisins. Að mati minni hlutans er nauðsynlegt að finna lausn sem virkar til framtíðar.
    
Ábendingar um réttaróvissu og ójöfnuð.
    Minni hlutinn telur rétt að tekið verði tillit til athugasemda Deloitte Legal þar sem bent er á að ef frumvarpið verður að lögum festist ójöfnuður á réttarstöðu skattaðila og skattyfirvalda í sessi, einkum hvað varðar rétt til endurupptöku skattamála. Eins og drepið er á í umsögn Deloitte Legal geta skattyfirvöld tekið upp mál og beitt afturvirkri endurákvörðun á grundvelli nýrra túlkunarviðmiða, jafnvel mörgum árum síðar, en skattaðilar hafa ekki sams konar rétt.
    Þá er sérstaklega gagnrýnt að ákvæði frumvarpsins bindi rétt skattaðila til leiðréttingar þegar ný gögn koma fram eða staða máls breytist en útiloki leiðréttingu á grundvelli lagalegrar túlkunar. Það leiði til þess að skattaðilar í sömu réttarstöðu njóti mismunandi málsmeðferðar eftir því hvor aðilinn, ríkið eða borgarinn, lætur reyna á réttinn.
    Minni hlutinn telur nauðsynlegt að vandað sé til refsiákvæða og málsmeðferðarreglna í skattarétti og að jafnræði sé tryggt með ríkinu og borgurunum, aðilum sem eiga að vera jafnir fyrir lögum.
    
    Minni hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Orðin „enda sé um verulega hagsmuni að ræða, þó lengst sex ár aftur í tímann, talið frá því ári þegar mál hófst, svo sem við móttöku beiðni“ í 3. efnismálsl. 8. gr. falli brott.
     2.      Við 11. gr.
                  a.      Á undan a-lið komi nýr stafliður, svohljóðandi: Á undan orðinu „gáleysi“ í 3. mgr. kemur: stórfelldu.
                  b.      C-liður falli brott.
     3.      2. efnismgr. 12. gr. falli brott.
     4.      Við b-lið 16. gr.
                  a.      Orðin „enda sé um verulega hagsmuni að ræða“ í 3. efnismálsl. falli brott.
                  b.      4. efnismálsl. falli brott.
     5.      Við b-lið 19. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Víkja má frá þessum tímamörkum ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi.

Alþingi, 12. júní 2025.

Vilhjálmur Árnason,
frsm.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.
Stefán Vagn Stefánsson.