Ferill 298. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 793  —  298. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu).

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá Landssambandi smábátaeigenda, Fiskistofu og Landssambandi grásleppuútgerða og grásleppusjómenn á Norðausturlandi.
    Nefndinni bárust tuttugu umsagnir og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að stjórn veiða á grásleppu verði færð í fyrra horf með vísan til þess að sú breyting sem gerð var með lögum nr. 102/2024 þjóni hvorki hagsmunum atvinnugreinarinnar né nytjastofnsins og þar með ekki hagsmunum almennings. Með frumvarpinu eru lagðar til annars vegar breytingar á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og hins vegar lögum um stjórn fiskveiða þess efnis að áðurnefndar breytingar gangi til baka.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Það er mat meiri hlutans að hrognkelsaveiðar séu mikilvægur þáttur í fjölbreyttu atvinnulífi margra byggðarlaga og að þær hafi sterk samlegðaráhrif með krókaaflamarki, strandveiðum og öðrum þeim veiðum sem byggjast á hinum félagslega þætti fiskveiðistjórnarkerfisins, þ.e. 5,3% pottinum.
    Að mati meiri hlutans skerða þær breytingar sem gerðar voru með lögum um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), nr. 102/2024, enn frekar möguleika smábátaútgerða til að stunda sjálfbærar veiðar og að fólk geti lifað af smábátaútgerð í samþættingu við aðrar veiðar og atvinnu. Brýnt sé að tryggja rétt sjávarbyggðanna til atvinnufrelsis í sínu nærumhverfi. Núverandi lagaumgjörð skerði afkomu margra útgerða og þar með lífsafkomu fjölda fólks.
    Að mati meiri hlutans liggja engin líffræðileg rök að baki kvótasetningu og mögulegu framsali líkt og gildandi lög heimila. Grásleppustofninn hefur í gegnum tíðina verið nýttur með skynsamlegum og sjálfbærum hætti með stýringu á fjölda veiðidaga og veiðileyfa, takmörkun á heildarafla, stærð báta, lengd neta, möskvastærð, svæðisskiptingu og þeim tíma árs sem veiðar eru heimilaðar.
    Sú þróun hefur átt sér stað undanfarna áratugi að aflaheimildir hafa þjappast saman á hendur færri og stærri aðila og er það mat meiri hlutans að sú þróun sé ekki heillavænleg. Hefur þessi þróun haft slæm áhrif víða á landsbyggðinni og er staðan orðin sú að örfáir aðilar hafa á hendi meiri hluta takmarkaðrar sameiginlegrar sjávarauðlindar þjóðarinnar.
    Er það mat meiri hlutans að núgildandi lög, með takmarkaðri nýliðun á grásleppuveiðum, setji aukinn þrýsting á fjölgun báta í strandveiðikerfinu og setji jafnvægi þar í uppnám. Í gildandi lögum eru engin stærðartakmörk á bátum, sem eykur hvata til samþjöppunar og tilfærslu afla á stærri skip. Er það mat meiri hlutans að það grafi undan smábátaútgerðinni sem hefur stundað þessar veiðar við strendur landsins og stuðlað að byggðafestu í veikari sjávarbyggðum landsins.
    Fyrir nefndinni og í umsögnum til hennar hefur komið ákall frá fjölda grásleppusjómanna um að færa veiðistjórn grásleppu í fyrra horf og að koma í veg fyrir framsal aflaheimilda með aukinni samþjöppun í greininni. Þá hafa verið færð fyrir því réttmæt rök að möguleikar til nýliðunar hafi verið skertir með núgildandi lögum og margir þeir sem hafa fjárfest í bátum og búnaði sitji nú uppi með verðlausar eignir og séu þar með sviptir atvinnurétti, sem skerðir afkomu margra útgerða og þar með lífsafkomu fjölda fólks. Þeir sem hafa áhuga og getu til að hefja útgerð á grásleppu muni ekki lengur hafa aðgang að auðlindinni nema helst fjársterkir aðilar.
    Það er mat meiri hlutans að brýnt sé að færa löggjöfina í fyrra horf, jafnvel þótt það kunni að leiða af sér að einhver fiskiskip sem frá gildistöku gildandi laga fengu aflahlutdeild í grásleppu muni með afgreiðslu frumvarpsins njóta breyttra réttinda, sem verða eins og áður var háð leyfum Fiskistofu.

Breytingartillögur meiri hlutans.
Veiðiréttindi grásleppu (1. gr.).
    Með 1. gr. frumvarpsins er lagt til að 1. mgr. 7. gr. laganna verði færð til fyrra horfs og kveði á um að grásleppuveiðar verði háðar sérstöku leyfi Fiskistofu og eiga þeir bátar einir kost á slíku leyfi sem rétt áttu til leyfis á grásleppuvertíðinni 1997, samkvæmt reglum þar um.
    Í umsögn sem barst frá Fiskistofu voru gerðar athugasemdir við ákvæði 1. gr. frumvarpsins þess efnis að óráðlagt væri að miða einungis við báta sem áttu rétt til leyfis á grásleppuvertíðinni 1997 því að þá yrði horft fram hjá því að grásleppuréttindi hafa frá þeim tíma gengið kaupum og sölum og verið flutt á milli báta. Auk þess hafi veiðireynsla verið flutt á milli báta í einhverjum tilvikum við hlutdeildarsetningu. Bátar sem fengu úthlutað aflamarki til veiða á grásleppu á grundvelli laga nr. 102/2024 væru því ekki endilega þeir sömu og áttu rétt til leyfis á grásleppuvertíðinni 1997. Þannig myndi 1. gr. frumvarpsins óbreytt leiða til þess að umræddir bátar ættu ekki rétt til veiðileyfis á grásleppu. Að mati Fiskistofu sé ótækt að fella niður aflahlutdeildir sem úthlutað var á grundvelli áðurnefndra laga án þess að bætur komi fyrir, einkum í ljósi þess að veiðiheimildir njóta vissrar verndar sem atvinnuréttindi. Mikilvægt sé því að tryggja rétt umræddra aðila til að stunda veiðar á grásleppu verði vikið frá aflamarksstjórn líkt og frumvarpið gerir ráð fyrir.
    Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í umsögn Fiskistofu og undirstrikar að í greinargerð frumvarpsins komi skýrt fram að með því að færa löggjöfina í fyrra horf sé ætlunin að tryggja að bæði þeir aðilar sem njóta réttinda samkvæmt gildandi lögum og þeir sem nutu réttinda samkvæmt eldri lögum njóti áfram réttar til grásleppuveiða. Þá telur meiri hlutinn að tryggja þurfi betur réttindi þeirra báta sem áttu rétt til leyfis á grásleppuvertíðinni 1997, eða þeirra sem leiða rétt sinn frá þeim bátum, en fengu ekki úthlutað hlutdeild í aflamarki til veiða á grásleppu á grundvelli laga nr. 102/2024.
    Lögð er til breyting á 1. gr. frumvarpsins í því skyni að víkka gildissvið ákvæðisins þannig að það taki einnig til báta sem fengu úthlutað hlutdeild í aflamarki til veiða á grásleppu á grundvelli laga nr. 102/2024 sem og báta sem áttu rétt til leyfis á grásleppuvertíðinni 1997, eða þeirra sem leiða rétt sinn frá þeim bátum, en fengu ekki úthlutað hlutdeild í aflamarki til veiða á grásleppu á grundvelli laga nr. 102/2024.

Stærðarviðmið (1. gr.).
    Meiri hlutinn leggur einnig til breytingu varðandi stærðarviðmið grásleppubáta. Leggur meiri hlutinn til að ekki verði gefin út ný leyfi til báta sem eru stærri en 15 brúttótonn. Fyrir nefndinni kom fram að um þrír bátar séu stærri en 15 brúttótonn. Leggur meiri hlutinn til að þeim bátum sem þegar hafa leyfi til grásleppuveiða og höfðu leyfi til veiða fyrir þær breytingar sem urðu með lögum nr. 102/2024 verði áfram heimiluð veiði. Ekki verði þó unnt að sækja um ný leyfi fyrir báta sem eru umfram áðurnefnd stærðarviðmið eða að framselja þau leyfi til báta sem eru stærri en 15 brúttótonn.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við 1. gr.
     a.      Við 1. málsl. bætist: eða leiða rétt sinn af þeim bátum.
     b.      Á eftir 1. málsl. komi nýr málsliður, svohljóðandi: Fiskistofu er óheimilt að gefa út ný grásleppuveiðileyfi, sem ekki byggjast á fyrri leyfum, til báta sem mælast stærri en 15 brúttótonn.

    Eiríkur Björn Björgvinsson og María Rut Kristinsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Alþingi, 26. júní 2025.

Sigurjón Þórðarson,
form.
Lilja Rafney Magnúsdóttir,
frsm.
Eiríkur Björn Björgvinsson.
Eydís Ásbjörnsdóttir. Kristján Þórður Snæbjarnarson. María Rut Kristinsdóttir.